Svíar hætta að niðurgreiða rafbíla
Svíþjóð nær grænu markmiði – hættir niðurgreiðslum á rafbílum án viðvörunar
Ríkisstjórn Svíþjóðar hefur tilkynnt að frá og með þriðjudeginum 8. nóvember, muni stjórnvöld ekki lengur hvetja til kaupa á rafknúnum ökutækjum.
Sænska ríkisstjórnin hefur ákveðið að hætta skyndilega greiðslu á hvata vegna kaupa á rafbílum, þar sem þau halda því fram að farartækin hafi náð verðjöfnuði við gas og dísilolíu.
Ákvörðunin var tilkynnt 7. nóvember og tók gildi strax næsta dag, 8. nóvember.
Svipaðri stefnu hefur verið fylgt í öðrum Evrópulöndum þar sem hlutfall rafbílakaupa hefur aukist hratt undanfarna mánuði.
Sambærilegur kostnaður
„Kostnaðurinn við að eiga og keyra loftslagsbónusbíl er farinn að vera sambærilegur við kostnað við að eiga og keyra bensín- eða dísilbíl.
Því er loftslagsbónusinn afnuminn. Þetta þýðir að sá sem kaupir eða pantar loftslagsbónusbíl eftir 8. nóvember 2022 mun ekki fá loftslagsbónus.“
Í tilkynningunni er kveðið á um að ef borgarar geta sannað að kaupin hafi verið gerð fyrir birtingu tilkynningarinnar, muni þeir eiga rétt á hvatanum í allt að 6 mánuði eftir kaup.

Þar sem mörg Evrópulönd nálgast sífellt hærri sölutölur á rafknúnum ökutækjum eru þau líka farin að minnka eða fjarlægja rafbílahvata; síðast í Þýskalandi hafa rafbílahvatningar verið skertir fyrir komandi ár.
Í tilfelli Svíþjóðar, samkvæmt tilkynningu stjórnvalda, eru „loftslagsbónusbílar í dag um helmingur af sölu nýrra bíla fólksbíla og eru fáanlegir í flestum verðflokkum“.
Þess vegna eru stjórnvöld að fjarlægja hvatana.
Hingað til hafa Svíar getað fengið afslátt sem nemur um einni milljón ISK þegar þeir kaupa rafknúin farartæki, en lægri niðurfellingu vegna tvinnbíla og jarðgasbíla.
Það er enn óljóst hvernig eftirspurn eftir rafknúnum ökutækjum í Svíþjóð verður fyrir áhrifum, en margir búast við að stöðugur vöxtur rafbílamarkaðarins í Skandinavíu haldi áfram að vaxa.