Suzuki þróar Jimny enn frekar

139
DEILINGAR
1.3k
SMELLIR

Suzuki þróar Jimny enn frekar

Sýna hugmyndir að Jimny pallbíll og torfærujeppa á bílasýningunni í Tókýó í janúar

Við höfum fjallað um Jimny-jeppann frá Suzuki hér á vefnum bæði í fréttum og með reynsluakstri en á bílasýningunni í Tókýó sem verður haldin 11. til 13. janúar næstkomandi mun Suzuki kynna tvær nýjar hugmyndir byggðar á Suzuki Jimny jeppanum. Þetta eru hugmyndir að nýrri útfærslu á þessum nýja jeppa og engar upplýsingar eru tiltækar um hvort þeir muni framleiða þessa bíla.

Núverandi gerð Suzuki Jimny

Suzuki Jimny Pick Up Style

Sá fyrri af þessum er kallaður „Suzuki Jimny Pick Up Style“. Hugmyndin byggist á Jimmy Sierra búnaðarstigi og kemur aftur með einstakt gamalkunnugt útlit. Þetta má sjá með nýju grillinu, viðarklæðninu á hliðum og hvítum stálfelgum með stálhjólkoppum. Aðrar áberandi breytingar eru sérstök gulllituð áferð á málningu, aukin veghæð, LED-ljóskastarar á þaki og stuðarar úr stáli með dráttarkrókum. Þessi hugmyndabíll virðist fanga kjarna fyrstu torfærujeppanna og líkist að mörgu leyti Toyota Land Cruiser FJ40.

Suzuki Jimny Pick Up Style

Jimny Survive hugmyndabíll

Hinn er „Jimny Survive“-hugmyndabíll. Þetta er alvöru „off-roader“ og er kominn með grindur til hlífðar ljósum, undirvagnsvörn úr stálplötum að frama og aftan, dráttarkróka og spil. Það er einnig stór þakgrind sem er búin stálplötum fyrir akstur í torfærum. Toppgrindin virkar einnig sem veltibúr. Aðrar viðbætur eru belgmeiri hjólbarðar og hækkuð veghæð.

Engar upplýsingar liggja fyrir um hvort einhverjar breytingar hafi verið gerðar á válbúnaði á þessum bílum. Á Japansmarkaði er Jimny með 0,66 lítra R06A turbó vél, en Jimny-jeppinn sem er seldur á alþjóðlegum mörkuðum er með 1,5 lítra K15B vél sem kemur í stað 1,3 lítra vélarinnar í eldri gerðinni. 1.5 lítra bensínvélin er 100 hö við 6.000 sn/mín og gefur 130Nm við 4.000 sn/mín, sem gefur það að auki 17 hö og 20Nm miðað við gömlu vélina. Jimmy er byggður á stiga-grind undirvagns og er með fullbúið fjórhjóladrifskerfi.

Lítið fótspor Jimmy og hæfileikar í torfæruakstri þýða að hann er mjög fjölhæfur bíll. Hann er einnig með tiltölulega einfalda hönnun sem gerir það auðvelt að aðlaga hann að margvíslegri notkun. Þessar hugmyndir sem Suzuki mun sýna í Tókýó vekja athygli á þeim möguleika.

Jimny Survive hugmyndabíll

Svipaðar greinar