Studebaker Gran Turismo Hawk – „örsögu” upprifjun

137
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR

Einn af þeim elstu

Hundrað og fjórtán ára sögu Studebaker bílaframleiðandans lauk árið 1966. Einn elsti bílaframleiðandi í Bandaríkjunum hafði lagt upp laupana. Oft á tíðum brilleraði þessi bílaframleiðandi með flottum bílum en rétt um það leyti sem endalokin nálguðust kynnti Studebaker uppfærðan Studebaker Gran Turismo Hawk.

Studebaker Starliner árið 1953.

Þetta var árið 1961. Það var Raymond nokkur Loewy sem hannaði hinn þekkilega Studebaker Starliner árið 1953. Þegar Loewy kom á bás Studebaker á Alþjóðlegu bílasýningunni í París árið 1961 strunsaði hann beinustu leiða að næsta símaklefa og spurði af hverju þeir hefðu leyft Brooke Stevens að breyta hönnun bílsins svona róttækt.

1962 Studebaker Gran Turismo Hawk. Framhlutinn minnir eilítið á Mercedes Benz.

Frábær hönnuður

Brooke Stevens var iðnhönnuður sem fenginn var til verksins af Studebaker og þótti hönnun 1961 Gran Turismo Hawk bílsins standa uppúr varðandi keppinautana. Enginn hafði komið með svona lag á bíl sem virkaði svona vel áður. En það átti eftir að breytast.

Stevens fékk stuttan tíma og nánast ekkert fé til að klára nýja uppfærslu af bílnum.

Útkoman varð hins vegar glæsilegur bíll sem skartaði tímalausri hönnun og þykir einn af flottari bílum frá sjöunda áratugnum.

Bílar framleiddir af sterkari og stærri framleiðendum þóttu alveg bera keim af Hawkinum, sérstaklega að innan. Við erum að tala um þess tíma Ford Thunderbird og bíla frá GM.

Studebaker fór illa út úr hruninu í kringum 1930 eins og svo margir.

Það, auk fjölda rangra beygja í rekstrinum gekk að lokum fram af þessu elsta bílaframleiðslu fyrirtæki í Bandaríkjunum.

Fjöldi samgöngutækja

Stevens kom að hönnun bíla eins og Wagoneer, VW 411 einnig Harley Davidson mótorhjól og samgöngutæki eins og lestar innan Bandaríkjanna.

Það var hins vegar ofangreindur Loewy sem hannaði síðasta meistarverkið fyrir Studebaker en það var árgerð 1963 Studebaker Avanti, framúrstefnulegur bíll sem vakti athygli.

1963 Studebaker Avanti.

Dræm sala á flottum bíl

Ekki seldust mörg eintök af Studebaker Gran Turismo Hawk árið 1962 eða undir tíu þúsund eintökum, helmingi minna árið eftir og undir tvö þúsund árið 1964 en það er síðasta framleiðsluár Studebaker í South Bend verksmiðjunni í Indianafylki.

Síðustu Studebaker bílarnir runnu svo út af færibandi í verksmiðju í Kanada árið 1966.

Þar var um að ræða Studabaker Cruiser, ósköp venjulegan bíl sem minnti helst á AMC Rambler eða álíka bíla. Þar með var saga Studebaker, sem Studeabker öll.

Til sölu

Bíllinn sem kveikti hugmyndina af þessari „örsögu” upprifjun bílaframleiðandans Studebaker er þessi 1962 árgerð af Studebaker Gran Turismo Hawk sem er til sölu hjá Hemmings úti í Bandaríkjunum.

Það eru fjórir dagar eftir til að bjóða í bílinn en hæsta boð er um 8.750 dollarar eins og staðan er þegar þessi grein er skrifuð. Hér linkur á gripinn hjá Hemmings.

Nokkuð vel með farinn

Græjan þykir í mjög þokkalegu ástandi þó ekki komi fram hvort búið er að gera bílinn upp í heild sinni á líftíma hans. Lakk þykir mjög gott er sagt í sölulýsingu og innrétting einnig. Aðeins ekinn um sex þúsund mílur.

Vélin í þessu eintaki er 289 cu.in. OHV V8, sjálfskiptur, Ermini White á litinn og Mauve vínil/tau áklæði á sætum. 210 hestöfl.

Ekki vitað um uppruna vélar og stilla þarf sjálfskiptingu.

Aðeins voru framleidd um 9.335 eintök af bílnum á framleiðsluárinu og þykir því gripurinn nokkuð eftirsóttur.

Skipt hefur verið um byrðing undir stuðara að framan. Bíllinn er að öllu leyti laus við ryð.

Gler og króm eru í mjög góðu ástandi og undirvagn er ekki sjáanlega ryðgaður – þó eru blettir á stangli.

Svipaðar greinar