Stórsýning í Öskju á laugardag
– Nýir EQB frá Mercedes-EQ og Kia Sportage frumsýndir
Tveir nýir og spennandi bílar verða frumsýndir hjá Bílaumboðinu Öskju á morgun, laugardag frá klukkan 12 til 16. Um er að ræða nýjan EQB frá Mercedes-EQ og nýja kynslóð Kia Sportage.
Nýr Kia Sportage verður í boði bæði sem tengitvinnbíll (plug-in hybrid) og sem tvinnbíll (hybrid). Tengitvinnútfærslan skilar samanlagt 265 hestöflum í gegnum öfluga 1,6 lítra bensínvél og hagkvæmum rafmótorum sem skila bílnum allt að 70 km drægi á rafmagni samkvæmt WLTP staðli.
Þetta er fimmta kynslóð Kia Sportage sem hefur verið gríðarlega vinsæll hér á landi og á traustan og góðan aðdáendahóp.
Bíllinn breytist mikið í útliti og hönnun miðað við forverann. Stórt og kraftmikið grillið að framan og fallega hönnuð LED ljósin gefa fögur fyrirheit um fágun og framsækni.

Framendinn tengist vel við sportlegan hliðarsvip bílsins. Kraftalegur afturhluti og rennileg afturljós fullkomna svo fallegar formlínur og glæsileika bílsins.
Innanrýmið er nútímalegt þar sem tveir 12,3 tommu snertiskjáir gefa upplýsingar um allt sem tengist akstrinum og tengir ökumann og farþega við umheiminn í gegnum tæknivædd Kia Connect snjallforritið. Farangursrými bílsins hefur stækkað um 80 lítra frá síðustu kynslóð og er nú 591 lítrar en með því að fella aftursætin niður stækkar það í 1.780 lítra. Kia Sportage er með 7 ára ábyrgð eins og allir bílar frá Kia.
EQB er rúmgóður rafbíll með pláss fyrir allt að sjö manns og býður upp á mjög gott farangursrými að auki. EQB er 100% rafbíll með allt að 474 km drægi.

Hleðsluhraði er allt að 11 kW m.v. heimahleðslu en að hámarki 100 kW m.v. hraðhleðslu.
EQB er jafnframt í boði með 4MATIC fjórhjóladrifi. Bíllinn er með 20 cm veghæð sem gerir aðgengi mjög gott og bílstjóri og farþegar sitja hátt í bílnum.
Bíllinn býður upp á mikil þægindi eins og Mercedes-Benz er von og vísa. EQB er einnig afar tæknivæddur og MBUX margmiðlunarkerfið margrómaða stuðlar að þægilegri og einfaldari akstursupplifun.
Í nýjum EQB samtvinnast hönnunarþættir sem eru dæmigerðir fyrir Mercedes-EQ með fjörlegum og svipsterkum hönnunarformum.
Einkennandi, svört vatnskassahlíf og samfelld ljósaröð að framan og aftan sýnir svo ekki verður um villst að EQB sver sig í ætt Mercedes EQ fjölskyldunnar.
Stafrænt mælaborðið með MBUX stýrikerfinu sem og baklýst innrétting einkenna nútímalegt og hátæknilegt útlit innanrýmisins í EQB.
Sýningin í Öskju fer fram á Krókhálsi 11 og Krókhálsi 13 í húsakynnum Öskju og er opið á morgun, laugardaginn 19. mars, frá klukkan 12-16. Einnig verður Sportage sýndur hjá umboðsmönnum á Akureyri, Akranesi, Egilsstöðum, Reykjanesbæ og Selfossi.
Umræður um þessa grein