Sunnudagur, 29. júní, 2025 @ 16:19
Bílablogg
Advertisement
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt

Stellantis: samruni FCA og PSA staðfestur

Jóhannes Reykdal Höf: Jóhannes Reykdal
16/01/2021
Flokkar: Bílaheimurinn
Lestími: 3 mín.
264 20
0
136
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR
Deila á FacebookDeila á Twitter

Stellantis: samruni FCA og PSA staðfestur

Opinbert: samruni tveggja bílarisa öðlast gildi frá og með 16. janúar 2021

Þá er loks löngu ferli lokið með því að gengið hefur verið frá sameiningu Groupe PSA (Citroen, DS, Peugeot og Vauxhall-Opel) og FCA (Fiat, Alfa Romeo, Abarth, Lancia ásamt Chrysler, Dodge, Jeep, Ram og Mopar) og búin til fjórði stærsti framleiðanda á heimsvísu að magni. Carlos Tavares, fyrrverandi yfirmaður PSA, mun stjórna hinu nýstofnaða fyrirtæki sem forstjóri en aðrar stjórnunarstöður verða staðfestar á næstu dögum.

Merki nýju samstypunnar – Stellantis.

Nafnið Stellantis vísar til latneska orðsins „stello“ sem þýðir „að birta með stjörnum“. Miðað við nýjustu sölutölur ætti Stellantis að hafa árlegt framleiðslumagn upp á 8,7 milljónir bíla, sem setur fyrirtækið aðeins á eftir Volkswagen Group, Toyota og Renault-Nissan Alliance.

Þetta nýja sameinaða fyrirtæki verður einnig þriðji stærsti framleiðandi heims miðað við tekjur, með ársveltu upp á 170 milljarða evra.

Sameiningin virðist vera hagstæð ráðstöfun fyrir báða aðila – PSA mun fá aðgang að bandarískum mörkuðum og FCA gæti mögulega nýtt sér nýrri (og rafvæddar) ökutækjagrunna PSA. Frekari tækifæri, svo sem verkefni á sviði sjálfakandi og tengdra ökutækja, geta einnig verið í farvatninu.

Eignarhaldi á sameinuðu fyrirtæki verður skipt 50/50 á milli hluthafa PSA og FCA. Fjárfestum fyrrnefnda vörumerkisins verður úthlutað 5,5 milljarða evra arði en hluthafar síðarnefnda fyrirtækisins fá um 3 milljarða evra.

PSA: stefna á Ameríkumarkað

Eins og staðan er núna gæti samruninn sett fyrirhuguð áform PSA um að koma inn á Norður-Ameríkumarkaðinn í biðstöðu, samkvæmt Tavares, í ljósi sterkrar veru FCA þar þegar. „Við sjáum að styrkur FCA í Norður-Ameríku er framúrskarandi og við höfum 12 mánuði fram undan á meðan  sameiningarferlinu lýkur til að hugsa um það.“

Hins vegar, ef Bandaríkjamenn kynnu að koma fram með reglubreytingar sem tengjast losun koltvísýrings, væri PSA til þess fallið að kynna farartæki með litla losun þar.

Tavares bætti við: „Öll rafvæðingarþekkingin sem við höfum þróað fyrir evrópska markaðinn væri mjög mikilvæg eign til að koma á bandaríska markaðinn varðandi viðeigandi framvindu“.

Carlos Tavares forstjóri PSA og Mike Manley forstjóri FCA handsala samninginn um samrunann. Tavares verður hinn nýi stjórnandi Stellantis-samsteypunnar.

Það gæti þurft að bíða eftir áhrifum samrunans, en hugsanlega ekki lengur en í nokkur ár. Mike Manley, fyrrverandi forstjóri FCA, benti á skjótan þróunartíma nýja Opel / Vauxhall Corsa eftir að PSA keypti vörumerkin og sagði að „það sýnir þér að með hraðanum og fókusnum geturðu raunverulega runnið saman“.

Hagnaður, sameining og alþjóðleg þróun samstarfs

FCA var með nettótekjur upp á 115,4 milljarða evra eftir á sölu á 4,84 milljónum bíla á milli vörumerkja, þar á meðal Fiat og Jeep árið 2018, en þar var hagnaður upp á 5 milljarða evra – aukning um 34 prósent frá fyrra ár. Groupe PSA seldi 3,88 milljónir ökutækja árið 2018 og skilaði 74 milljörðum evra í tekjum og 3,295 milljörðum evra í hreinum tekjum samstæðunnar – sem var 40,4 prósent aukning frá árinu 2017.

Bílafyrirtæki leita í auknum mæli eftir samlegðaráhrifum og samruna fyrirtækja eftir því sem markaðir verða sífellt samkeppnishæfari og fjölmennari – og reglugerðir halda áfram að gera framtíð framleiðslu ökutækja óvissa.

Í apríl 2019 bárust fréttir af því að FCA myndi tengjast Tesla til að deila áhrifum af CO2 losun til að fara að reglum ESB. Ford mun á sama tíma nota MEB vettvang Volkswagen til að smíða rafbíla frá 2023.

Fyrri grein

Kia mun setja sjö nýja rafbíla á markað fyrir árið 2027

Næsta grein

Nýr Nissan Qashqai mun fá e-Power tvinntækni

Jóhannes Reykdal

Jóhannes Reykdal

Ritstjóri og blaðamaður

Svipaðar greinar

Novan var vinsæl á rúntinum í denn

Novan var vinsæl á rúntinum í denn

Höf: Pétur R. Pétursson
29/06/2025
0

Þessi Nova hefur farið í gegnum algera „Frame Off“ endurbyggingu þar sem engu hefur verið til sparað. Bíllinn er sprautaður...

Nýi Recon-jeppinn frá Jeep er að mótast sem Wrangler rafbílanna

Nýi Recon-jeppinn frá Jeep er að mótast sem Wrangler rafbílanna

Höf: Jóhannes Reykdal
28/06/2025
0

Breytingin í jeppaheiminum er mikil með tilkomu rafbílanna og Peter Johnson hjá electrek-vefnum í Bandaríkjunum var að birta grein um...

Kia EV3 GT-Line frumsýndur á Íslandi

Kia EV3 GT-Line frumsýndur á Íslandi

Höf: Pétur R. Pétursson
25/06/2025
0

Laugardaginn 28. júní kl. 12-16 í sýningarsal Kia að Krókhálsi 13 Við höfum beðið spennt eftir því að frumsýna loksins...

Nýr smart #5 frumsýndur á Íslandi

Nýr smart #5 frumsýndur á Íslandi

Höf: Jóhannes Reykdal
24/06/2025
0

Frumsýning laugardaginn 28. Júní kl. 12-16 í sýningarsal smart að Krókhálsi 11 Bílaumboðið Askja frumsýnir nýjan og alrafmagnaðan smart #5...

Næsta grein
Nýr Nissan Qashqai mun fá e-Power tvinntækni

Nýr Nissan Qashqai mun fá e-Power tvinntækni

Umræður um þessa grein

Greinaflokkar

  • Aðsent
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Fréttatilkynning
  • Hugmyndabílar
  • Kynning
  • Mótorsport
  • Ritstjórn
  • Tækni
  • Umferð

Tögg

Cadillac Eldorado e power Hyundia Ioniq 6 klassík lögreglubílar mahindra Rafgmagnsbíll rafhlöður rafmagn Rafmagnsbíll Shanghai sjúkrabílar tata World car of the year

Óháður bílavefur

Bílablogg.is er sjálfstætt starfandi fjölmiðill sem skrifar með þarfir lesenda í huga. Við leggjum metnað okkar í að reynsluaka nýjum bílum og flytja fréttir af því helsta sem er að gerast í bílaheiminum, bæði heima og erlendis.

Greinar

  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð

Reynsluakstur

  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar
  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar

Nýjustu færslurnar

Bílaheimurinn

Novan var vinsæl á rúntinum í denn

29/06/2025
Bílaframleiðsla

Nýi Recon-jeppinn frá Jeep er að mótast sem Wrangler rafbílanna

28/06/2025
Bílaheimurinn

Kia EV3 GT-Line frumsýndur á Íslandi

25/06/2025

2023 © Bílablogg.is • Allur réttur áskilinn • Bílablogg sf • Kt. 5911211460

Welcome Back!

Skráðu þig inn á aðganginn þinn

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband

© 2022 Bílablogg sf. - Allur réttur áskilinn.