Rafdrifinn Ram 1500 REV staðfestur
Í síðasta mánuði sýndi Ram hugmyndabílinn Ram 1500 Revolution rafknúna á Consumer Electronics Show sýningunni í Las Vegas, eins og við fjölluðum um á sínum tíma.
Nú hefur Ram staðfest að fyrsti rafknúni pallbíllinn þeirra verði kallaður Ram 1500 REV.

„Hjá Ram hófum við byltingu á síðasta ári þar sem við buðum neytendum með í upphaf rafvæðingarferðar okkar og leituðum eftir viðbrögðum þeirra um nákvæmlega það sem þeir eru að leita að í rafmagns pallbíl,“ sagði Mike Koval Jr., forstjóri Ram vörumerkisins – sem er í eigu Stellantis.
„Við hlökkum til að afhenda þessum neytendum fyrsta rafdrifna pallbílinn okkar – hinn nýja Ram 1500 REV – á næsta ári.”
Við erum fullviss um að Ram 1500 REV muni gera betur en samkeppnin og bjóða upp á það sem verður leiðandi samsetning eiginleika sem viðskiptavinum þykir mest spennandi: drægni, hleðslu, dráttargetu og hleðslutíma.“
Ram 1500 REV verður byggður á nýja STLA Frame grunninum.
Ram hefur ekki tilkynnt neinar tæknilýsingar varðandi framleiðsluútgáfuna, en 800 volta rafmagnshleðsla verður til staðar sem mun leyfa allt að 350 kW DC hraðhleðslu.
Framleiðsla á Ram 1500 REV hefst á næsta ári, svo það gæti verið von á rafdrifnum RAM hjá Ísband í kjölfarið.
(frétt á vef TorqueReport)



