Rafbílarnir sækja líka á í Ameríku

136
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR

Rafbílarnir sækja líka á í Ameríku

Tesla Model 3 hefur selst mun betur en mun ódýrari Honda Civic og er núna söluhæsti fólksbíll Kaliforníu á fyrsta ársfjórðungi 2020.

Bifreiðaframleiðandinn Tesla, sem er að aðalstöðvar sínar í Kaliforníu hefur stöðugt staðið sig vel á heimamarkaði sínum, sem er einnig einn stærsti markaður í heimi.

Á fyrstu þremur mánuðum ársins hefur Tesla aukið hlutdeild sína í Kaliforníu, samkvæmt skráningargögnum.

Í vikunni sendu samtök umboðsaðila nýrra bíla í Kaliforníu út ársfjórðungslega skýrslu sína fyrir fyrsta ársfjórðung og hún sýnir að Tesla Model 3 seldist betur en Honda Civic og náði því að verða söluhæsti fólksbíll ríkisins, óháð því á hvaða hluta markaðarins er horft.

Samtök söluaðila nýrra bíla í Kaliforníu flokka Tesla Model 3 sem „nærri lúxus“ bifreið.

Model 3 er í fremstu röð og selst betur en allair keppinautarnis samanlagt. Þar með hefur hann haft betur gagnvart söluhæstu bílum eins og Honda Civic og Toyota Camry:

Svipaðar greinar