Ókláraðir pallbílar Ford bíða eftir íhlutum
Ford leggur þúsundum ókláraðra pallbíla á Kentucky Speedway kappakstursbrautinni sem er ónotuð
Þeir nota bílastæði gömlu NASCAR brautarinnar á meðan beðið er eftir íhlutum sem hefur seinkað í framleiðslu
Verð á fólks- og pallbílum gæti farið hægt og rólega aftur niður á jörðina, en áframhaldandi skortur á íhlutum hrjáir enn helstu bílaframleiðendur.
Stór bílastæði full af pallbílum og jeppum eru orðin algeng í skugga stóru þriggja bílaframleiðendanna í Michigan, en þetta eru ekki einu bráðabirgða geymslusvæðin sem hýsa þúsundir pallbíla og jeppa sem bíða eftir íhlutum sem sitja fastir í viðvarandi alþjóðlegri flutningakreppu, eins og sést á gervihnattamyndum af Kentucky Speedway sem nú er ekki í notkun, í Sparta í Kentucky.

Ókláraðir pallbílar streyma inn á gríðarstór bílastæði kappakstursbrautarinnar – og þetta er ekki í fyrsta skipti, segir The Drive.
Þetta svæði var fyrst notað fyrr á þessu ári þegar birgðir fóru yfir getu Ford til að geyma þær í eigin aðstöðu.
Fjöldi ófullgerðra pallbíla tók að aukast aftur í ágúst og hefur vaxið umtalsvert undanfarinn mánuð. Þá voru dregnar fram gamlar myndir af víðfeðmum yfirgefnum bílastæðum Pontiac Silverdome sem var eins konar biðstöð fyrir dísilknúna VW bíla sem biðu í röðum við „mulningsvélina“ í kjölfar „Dieselgate“-hneyklisins.

Kentucky Speedway er um það bil miðja vegu milli Cincinnati, Ohio, og Louisville, Kentucky – heimilis Ford Louisville Assembly verksmiðjunnar. Verksmiðjan var smíðuð fyrir rúmum tveimur áratugum, þegar uppsveifla NASCAR virtist framundan. Það var hætt að nota brautina eftir 2020 tímabilið og hefur hún ekki verið notuð fyrr en nú – og þá sem geymslurými.
(frétt á Autoblog)



