Minnisstæðir eru mér ferðalangarnir sem komu hver af öðrum bröltandi út úr gömlum slökkvibílnum á tjaldstæðinu. Þeir voru löðrandi sveittir, rétt eins og vagninn væri gufubað eða logandi bíll sem þyrfti að slökkva í. En þeir voru kátir og stoltir af bílnum sem þeir höfðu breytt í ferðabíl.

En þetta er nú ekki það furðulegasta. Hér eru fleiri dæmi um húsbíla sem gegndu allt öðru hlutverki í upphafi.
Líkbílar
Eins óLÍKlegir ferða- eða húsbílar manni þykja líkbílar nú vera þá er töluvert um að fólk vilji einmitt ferðast í slíkum „návögnum“. Af þeim líkbílaferðalöngum sem undirrituð hefur rambað á (á veraldarvefnum) virðist hópurinn nokkuð einsleitur. Ákveðin líkindi með fólkinu, ef svo má segja.

Oftar en ekki ungt fólk sem farið hefur óhefðbundna leiðir og tekið undarleg sundtök í lífsins ólgusjó. Oftar en ekki er um að ræða „gothic“ fólk. Það er að segja fólk sem heillast af dökkum klæðnaði, krítarhvítu andliti, svartri augnmálningu og drungalegu húðflúri.

Þetta er svona greining á því sem ég sá í fyrsta kasti en nú er þetta ekki mannlegur þáttur heldur er umfjöllunarefnið bílar og það sem fólk gerir við bíla þegar það hefur tíma til og getu.

Á fimm ára gömlum umræðuþræði á reddit.com hafði fólk m.a. þetta að segja um „líkhúsbíla“:
„Eigum við bara að líta framhjá þeirri staðreynd að fjöldi látinna hefur verið fluttur í þessum bíl?“ skrifar einn.
„Einhvern daginn kemur nú að því að maður sjálfur verður fluttur með svona bíl. Er þá ekki eins gott að venjast þessu?“ svarar annar.

„Skyndilega er ég gripinn óstjórnlegri löngun til að kaupa mér gamlan líkbíl, lyfta þakinu og gera úr honum sturlaðan páfabíl og rúnta um torg og stræti á græjunni,“ skrifar enn annar.

„Þú munt pottþétt steinsofa, já bara sofa eins og dauðrotaður.“


Slökkvibílar
Eins og komið var inn á í upphafi greinar þá er nú eitt og annað í hönnun slökkvibíla sem gerir það að verkum að mannfólk rúmast ekki endilega vel inni í þeim. Þeir eru þó til í svo mörgum útfærslum að það er ómögulegt að alhæfa nokkuð í þessum efnum.

Margir af þeim gömlu henta kannski bara prýðilega sem húsbílar.

Á nokkurra ára gömlum umræðuþræði á reddit.com var rætt um „slökkvihúsbíla“ og þar kom m.a. eftirfarandi fram:
„Án þess að ég vilji setja út á bílinn þinn [Mercedes 1987, sjá mynd fyrir neðan] þá minnir hann mig nú aðallega á bílinn sem pósturinn Páll var á,“ skrifaði einn.


„Í vinnunni er ég alla daga á gaffallyftara. Þegar ég kem heim úr vinnunni óska ég að gaffallyftarinn væri þar,“ skrifaði annar en ég held að fáir hafi skilið hvað hann átti við.

„Þetta er virkilega svalur bíll! En á hlið lítur hann samt út eins og Tetrisleikur sem fór úr böndunum,“ skrifaði einhver um slökkvibíl sem ekki var með ávalar línur, ef svo má segja. Enda slökkvíbílar sjaldnast verulega straumlínulagaðir.

Sjúkrabílar
Af þessum þremur flokkum (þ.e. líkbílar, slökkvibílar og sjúkrabílar) í útfærslu húsbíla, virðast sjúkrabílar koma einna helst til greina og njóta þeir nokkurra vinsælda í samanburði við hina. Kannski henta þeir betur til breytinganna o.s.frv.

Áhugavert er þó að lesa hvað þeir segja um „sjúkrahúsbílana“ sem ekki kæra sig um þá og eru hér fáein dæmi, fengin af umræðuþræði á síðunni reddit.com undir mynd sem einn deildi.

?„Ég vann sem sjúkraflutningamaður í nokkur ár. Mæli með því að þú sótthreinsir bílinn í drasl. Tilhugsunin um að borða inni í þessu veldur mér ógleði,“ skrifaði einn.

„Ég myndi fara varlega í þetta. Bíllinn gæti verið andsetinn,“ skrifaði annar.

„Einmitt það sem ég hugsaði! Hvað skyldu margir hafa dáið í þessum sjúkrabíl,“ svaraði næsti.

Auðvitað fer það eftir reynslu manna af slíkum farartækjum hvort þeim hugnist að ferðast í slíku. Sá sem var fluttur nær dauða en lífi í sjúkrabíl hefur kannski lítinn áhuga á að hreiðra um sig í slíku apparati. Öðru máli gegnir um líkbílana…
Fleiri kúnstug tæki til ferðalaga:
Húsbíll með bílskúr og auðvitað bíl
Kerrur úr ólíklegustu áttum
28 fermetra hjólhýsi: Lítið en líka stórt
Citroënlengjarinn sérstaki: Pierre Tissier
Cityrama Citroën 55: Furðulegasta furðufar sögunnar?
?Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.
Umræður um þessa grein