Þriðjudagur, 17. júní, 2025 @ 11:03
Bílablogg
Advertisement
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt

Nýr Tesla Model Y – endurbætt akstursupplifun, betri fjöðrun og meiri tækni

Pétur R. Pétursson Höf: Pétur R. Pétursson
21/02/2025
Flokkar: Bílaframleiðsla, Bílasýningar
Lestími: 14 mín.
603 46
0
310
DEILINGAR
2.8k
SMELLIR
Deila á FacebookDeila á Twitter

Við hjá Bílablogg vorum svo heppin að fá að prófa nýjan Model Y, fyrstir fjölmiðla. Við tókum góðan bíltúr á þessum frábæra bíl sem áður hefur slegið svo rækilega í gegn í heiminum en kemur nú enn betri og flottari.

Fyrir tæpum fimm árum voru fyrstu Model Y bílarnir afhentir eigendum sínum þegar þessi metsölubíll leit fyrst dagsins ljós. Í dag kynnir Tesla nýjan Model Y. 

Ný og glæsileg hönnun þó svo að lag bílsins haldi sér að mestu.

Miklar endurbætur hafa verið gerðar á Model Y sem hámarka sparneytni, þægindi, tengimöguleika og öryggi, auk þess sem bíllinn skartar glænýrri hönnun á innanrými og ytra byrði. 

Model Y er mestsölubíll um allan heim 

Model Y hefur verið framleiddur í yfir 3,5 milljón eintökum í Gigafactory verksmiðjum Tesla í þremur heimsálfum. Frá fyrsta degi hefur Model Y hlotið lof um heim allan fyrir fjölhæfni, einfalda notkun, hagkvæmni, öryggi og sparneytni á viðráðanlegu verði. 

Árið 2023 skráði Model Y sig í sögubækurnar þegar hann varð fyrsti rafbílinn til að ná efsta sætinu á listanum yfir mest seldu bílana á heimsvísu, meðal allra aflrása og orkugerða.

Þetta er frekari sönnun þess að rafbílar höfði til breiðs hóps og henti við margvíslegar aðstæður. 

Framendinn er stórhuggulegur. Ljósin hafa tekið talsverðum breytingum.

Model Y sló í gegn í Evrópu, rétt eins og annars staðar í heiminum. Hann trónaði á toppi skráningarlista og var mest seldi bíllinn af öllum gerðum á svæðinu árið 2023, ásamt því að ná ýmsum öðrum staðbundnum árangri.

Model Y er mest seldi rafbíllinn á Íslandi frá upphafi og mest seldi bíllinn á Íslandi árið 2023. Model Y hefur verið framleiddur í Evrópu fyrir Evrópubúa í Berlín-Brandenburg Gigafactory verksmiðju Tesla frá árinu 2022 og hefur nú þegar haft umtalsverð áhrif á umskipti bílaflotans þar yfir í sjálfbærar samgöngur, í takti við markmið Tesla. 

Öflugt og sportlegt útlit.

Nýr Model Y er byggður eftir gríðarvinsælu byggingarlagi sem setur ný viðmið á markaðinum. 

Nýr og endurbættur bíll

Verkfræði- og hönnunarteymi Tesla nýttu sér ábendingar eigenda við þróun nýja Model Y og innleiddu umtalsverðar endurbætur á fágun, glæsileika og hönnun á öllum sviðum, án þess þó að víkja frá því sem gerði hann að metsölubíl. 

Skottið er eins og fótboltavöllur.

Hægt er að leggja niður sætin með rafstýrðum hnöppum. Þá tala framsætin og aftursætin saman þegar þau eru niðurfelld.

Í nýja Model Y er lögð áhersla á þægindi í akstri um leið og haldið er í þá lipurð og tengingimöguleika sem Tesla er þekkt fyrir. Nýjungar í undirvagni byggja á endurbótum uppfærðs Model 3 og tryggja öllum farþegum mikil þægindi án þess að skerða aksturseiginleika. 

Eftirtektarvert er hve fjöðrun bílsins hefur verið endurbætt – enda prófuðum við að aka yfir allskyns misfellur og hraðahindranir – og meira að segja tékkuðum á smá ómalbikuðum bút á höfuðborgarsvæðinu.

Í nýa Model Y situr framhliðin nú lægra og skartar nýrri ljósarönd að framan sem sækir innblástur frá fagurfræði bæði Cybertruck og nýlega afhjúpuðum Cybercab. Ljósið er úr þremur pörtum, er í fullri lengd og er hannað fyrir skilvirkt loftflæði og eykur öryggi gangandi vegfarenda.

Ný og hagnýt hönnun 

Nýr Model Y er með endurhannað ytra byrði sem dregur úr loftviðnámi og býður upp á stöðugleika á miklum hraða, árekstraöryggi og gæðasmíði. Ljósastikurnar að framan og aftan eru innblásnar af hönnun Cybertruck og Cybercab í stað Model 3.

Ljósastikan að framan hefur nýtt og einkennandi útlit og styður sjálfvirk aðalljós. Ljósastikan að aftan nær yfir allan afturhluta bílsins, sem gerir hana ekki aðeins að einni stærstu ljósastikunni í bransanum, heldur er hún einnig með fyrsta óbeina endurskinsljósakerfið í heiminum sem varpar aðgerðum afturljóssins á sérsniðið skraut.

Endurhönnun ytra byrðisins dregur úr viðnámi og nýjar felgur með minni loftmótstöðu og hjólbarðar með litlu viðnámi auka drægnina.

Model Y var sparneytnasti SUV bíllinn í sínum flokki og með því að endurhanna hvert undirkerfi vandlega hefur Tesla náð fram umtalsverðum endurbótum á orkunýtingu, sem eigendur njóta ávinnings af án aukakostnaðar. 

Nýjar felgur með minna viðnámi.

Nýi afturhjóladrifni Model Y setur nýjan staðal í sparneytni – hann notar einungis 13.9kWh/100km. Þetta gerir hann skilvirkari en margir smábílar, án þess að gefa afslátt af plássi og hentugleika sem fylgir stærri SUV bílum. Í

Model Y er með nægt pláss fyrir alla fjölskylduna og farangurinn og gerir hann tilvalinn fyrir lengi ferðalög. Þegar þú parar þetta með Trip Planner og aðgangi að stærsta og áreiðanlegasta hraðhleðsluneti heims, eru ferðalögin nú leikur einn.

Nýr smurvökvi hefur verið hannaður til að ná minni núningstapi með háþróaðari sameindahönnun. Slípunarferlið á gírnum hefur verið uppfært til að bæta yfirborðsfræði gíryfirborðs og draga úr núningstapi gírsins. Að auki hefur hver segull verið skipt í sundur til að draga úr hringstraumstapi inni í seglunum. Rennslisstýringar olíudælunnar eru fínstilltar til að bæta skilvirkni í akstri á auknum hraða.

Myndavélin er kýrskýr og sýnir vel afstöðu bílsins bæði fram og afturenda.

Ný myndavél hefur verið sett á framenda bílsins. Hún veitir bílstjórum betri sýn á umhverfið á miðjuskjánum og er með hreinsibúnað og hita til að koma í veg fyrir móðu og bjóða upp á afísingu þegar kalt er í veðri. 

Vandaðra og þægilegra farþegarými 

Lykiláhersla var lögð á endurbætur í innanrými og bætt andrúmsloft við hönnun nýja Model Y. Farþegarýmið er framleitt úr fyrsta flokks endingargóðum efnum, þar á meðal áli og textíl, og búið sérstillanlegri stemningslýsingu sem aðlöguð er að nóttu sem degi. Að auki skila ný framleiðsluferli betra handverki. 

Gluggar bílsins eru með hljóðeinangrandi gleri og þar með býður Model Y upp á verulega hljóðlátan akstur.

22% minna veghljóð, 20% lægra högghljóð og 20% minna vindgnauð. Nýtt low-E gler endurkastar einnig 26% meiri sólarorku og hjálpar til við að viðhalda fullkomnu hitastigi í samvinnu við hljóðlátara og skilvirkara loftræstikerfi. 

Uppfært low-E glerþak endurkastar sólargeislum sjö sinnum betur, og háþróuð HEPA-síu tækni auk framsækinni varmadælutækni sem er hljóðlát og stórvirk tryggir þægindi allra farþega.

Gírskipting er komin í skjá líkt og í Model 3.

Framsætin voru endurhönnuð til að auka þægindi og eru nú með loftkælingu. Sætin í annarri sætaröð bjóða einnig upp á aukin þægindi með aðgengilegri beltissylgjum, lengri höfuðpúðum, betri sætisskorðun, rafknúinni hallastillingu og aðgerð til að leggja þau niður.

Fyrsta og önnur sætaröðin eru með hita í sætum og vinna snurðulaust með innbyggðu hitastýringarkerfi. Fyrsta og önnur sætaröðin samstilla hreyfingar sínar, þannig að framsætin færast fram þegar enginn situr í þeim og seinni sætaröðin er felld niður. Þessi sætadans er sjálfvirkur og bætir upplifun notenda.

Nýr álklæddur miðjustokkurinn er nú með rennilokunum sem líða mjúklega til og veita aðgang að glasahaldara og aukalegu geymslurými. Álinnfellingar er einnig að finna á stýrinu, hurðaklæðningum og mælaborði. 

Nýi Model Y heldur í einfalda og þægilega akstursupplifun og er því búinn bæði snertirofum og hnöppum. Sérstillanlegir rofar á stýrinu bæta hönnun og notagildi þess og veita skjótan aðgang að vinsælum aðgerðum bílsins.

Ný sérhönnuð stefnuljósastöng tryggir áreynslulausa stjórn við akstur. 

Ný stefnuljósa armur er þægilegur í notkun.

Blindblettavísum hefur verið bætt við framhurðar, sem er viðbót við núverandi myndavélar sem sýna blindbletti á myndbandi á skjánum. 

Bætt tengigeta og afþreying fyrir alla 

Farþegar í annarri sætaröð eru nú með sinn eigin 8 tommu snertiskjá með innbyggðri hitastýringu og afþreyingarvalkostum, þar á meðal leikjum, hljóði og myndstreymi. 

Ekkert mál er að hlaða fartölvur og önnur smátæki með hraðhleðslu þar sem eitt USB-C hleðslutengi er í framhluta bílsins og tvö í afturhlutanum, sem skila allt að 65 W afli. 

Aftur í geta krakkarnir leikið sér með því að tengja sín tæki við nýjan aftursætisskjá – án þess að trufla fullorðna fólkið.

Tesla þróaði hljóðkerfið sem skartar 16 hátölurum og hefur verið endurhannað til að bjóða upp á enn betri tónlistarupplifun. Sumir hátalarana eru ósýnilegir þökk sé hljóðleiðandi textílefni sem hannað var af Tesla, sem fellur vel að útliti innanrýmisins og bætir hljómgæði. Einnig hafa verið gerðar endurbætur á hljóðnemunum til að auka gæði símtala, sem nú eru 66% skýrari.

Ný kynslóð tengigetu er kynnt til leiks með endurhönnuðum vélbúnaði sem eykur afköst tengingar við farsímakerfi: 50% hraðara niðurhal og 30% lengra sendisvið. Wi-Fi tengigeta hefur einnig verið endurbætt til muna og skilar allt að 300% hraðara niðurhali, sem býður upp á snurðulaust myndstreymi og hugbúnaðaruppfærslur, og allt að 200% lengra sendisviði, sem tryggir tengigetu á svæðum eins og í bílskúrum og heimreiðum.

Afköst og áreiðanleiki símalykils hafa verið tífölduð með tilkomu ofurbreiðbands og annarra endurbóta, sem bjóða einnig upp á að opna skottið sjálfkrafa ef símalykillinn er paraður við Tesla appið. 

Þessar endurbætur á vélbúnaði munu bjóða eigendum allra Tesla bíla upp á frekari eiginleika í gegnum ókeypis þráðlausar hugbúnaðaruppfærslur í framtíðinni. 

Nú er hægt að panta nýjan Model Y á Íslandi

Nánari upplýsingar um verð: Smelltu hér!

Verð á síðunni eru birt án rafbílastyrks. Nýi Model Y er í boði í tveimur nýjum litum: Ultra Red og Stealth Grey.

Ulta Red er litur með háu litagildi og dínamískri, fjöllaga áferð. Stealth Grey er djúpur, dökkur málmlitur sem undirstrikar fallegar línur Model Y.

Hægt er að skoða Model Y í Vatnagörðum laugardaginn 22. Febrúar: Smelltu hér!

Fyrri grein

Jeppasýning Toyota á laugardag

Næsta grein

Vetrarsýning: Konungarnir á svæðinu hjá Toyota í Kauptúni í dag

Pétur R. Pétursson

Pétur R. Pétursson

Vefstjóri og blaðamaður

Svipaðar greinar

Apple CarPlay fær mikla, notendavænni uppfærslu og með sérstillingum

Apple CarPlay fær mikla, notendavænni uppfærslu og með sérstillingum

Höf: Jóhannes Reykdal
17/06/2025
0

Breytingar verða gerðar sem hluti af iOS 26 hugbúnaðaruppfærslunni fyrir iPhone, sem kemur út í haust Apple CarPlay mun fá...

Toyota segir að nýi Aygo X tvinnbíllinn verði hreinasti bíll Evrópu án tengils

Toyota segir að nýi Aygo X tvinnbíllinn verði hreinasti bíll Evrópu án tengils

Höf: Jóhannes Reykdal
11/06/2025
0

BRUSSEL — Toyota segir að nýi smábíllinn Aygo X, sem er full-tvinnbíll, sé hreinasti bíll Evrópu sem þarf ekki að...

Verksmiðjur í Evrópu loka vegna skorts á sjaldgæfum jarðefnum

Verksmiðjur í Evrópu loka vegna skorts á sjaldgæfum jarðefnum

Höf: Jóhannes Reykdal
08/06/2025
0

Reuters News - BERLÍN — Nokkrum evrópskum varahlutaverksmiðjum og framleiðslulínum hefur verið lokað vegna skorts á sjaldgæfum jarðefnum af völdum...

Afmælissýning Kvartmíluklúbbsins og Krúser – myndir

Afmælissýning Kvartmíluklúbbsins og Krúser – myndir

Höf: Pétur R. Pétursson
04/06/2025
0

Kvartmíluklúbburinn – 50 ára afmæli Kvartmíluklúbburinn, stofnaður árið 1975, hefur verið í fararbroddi íslensks mótorsports í hálfa öld. Klúbburinn rekur...

Næsta grein
Vetrarsýning: Konungarnir á svæðinu hjá Toyota í Kauptúni í dag

Vetrarsýning: Konungarnir á svæðinu hjá Toyota í Kauptúni í dag

Umræður um þessa grein

Greinaflokkar

  • Aðsent
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Fréttatilkynning
  • Hugmyndabílar
  • Kynning
  • Mótorsport
  • Ritstjórn
  • Tækni
  • Umferð

Tögg

Cadillac Eldorado e power Hyundia Ioniq 6 klassík lögreglubílar mahindra Rafgmagnsbíll rafhlöður rafmagn Rafmagnsbíll Shanghai sjúkrabílar tata World car of the year

Óháður bílavefur

Bílablogg.is er sjálfstætt starfandi fjölmiðill sem skrifar með þarfir lesenda í huga. Við leggjum metnað okkar í að reynsluaka nýjum bílum og flytja fréttir af því helsta sem er að gerast í bílaheiminum, bæði heima og erlendis.

Greinar

  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð

Reynsluakstur

  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar
  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar

Nýjustu færslurnar

Bílaframleiðsla

Apple CarPlay fær mikla, notendavænni uppfærslu og með sérstillingum

17/06/2025
Bílaframleiðsla

Toyota segir að nýi Aygo X tvinnbíllinn verði hreinasti bíll Evrópu án tengils

11/06/2025
Bílaframleiðsla

Verksmiðjur í Evrópu loka vegna skorts á sjaldgæfum jarðefnum

08/06/2025

2023 © Bílablogg.is • Allur réttur áskilinn • Bílablogg sf • Kt. 5911211460

Welcome Back!

Skráðu þig inn á aðganginn þinn

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband

© 2022 Bílablogg sf. - Allur réttur áskilinn.