Hinn nýi Jimnyheldur grófu og ferköntuðu yfirbragði fyrirrennarans. Hann er með rúnnuðökuljós, fimm raufar í grillinu og stækkaða hjólboga.
Suzuki er aðsetja sig í stellingar að hleypa af stokkunum fjórðu kynslóð af litla jeppanumsínum Jimny – 20 árum eftir að þriðja kynslóðin kom í sölu.
Myndir frá Suzukisýna að fyrirtækið hefur haldið í sömu tveggja kassa hönnunina sem hefureinkennt Jimny síðan fyrstu gerðinni var hleypt af stokkunum árið 1970.
Suzuki hefur ekkienn gefið neinar upplýsingar um hvenær vænta má þessa nýja Jimny í Evrópu, enfréttir hafa birst í breskum fjölmiðlum sem segja að bíllinn verði kynntur ábílasýningunni í París í haust.
Hægt hefur veriðá framleiðslu á núverandi Jimny, sem hleypt af stokkunum árið 1998, og söluhefur þegar hætt á sumum mörkuðum, þar á meðal í Bretlandi. Suzuki seldi 14.444Jimny í Evrópu á síðasta ári, samkvæmt tölum frá JATO Dynamicsmarkaðsrannsóknum. Suzuki hefur selt 2,85 milljónir Jimny-jeppa um allan heim í48 ára sögu sinni að sögn fyrirtækisins.
Núverandi gerðvar byggt fyrir Evrópu í Iwata verksmiðjum Suzuki í Japan. Suzuki hefur ekkigefið upp framleiðslustað fyrir nýju gerðina.
Hin nýja gerðJimny mun halda sig við vélrænt fyrirkomulag fyrri gerðar, sem er hannað meirafyrir akstursgetu á erfiðari landslagi en þægindi á vegum. Það mun notastiga-gerð undirvagns með aðskildri yfirbyggingu, eins og mynd frá Suzukisýnir. Gerðir munu vera með fjórhjóladrifskerfi með hlutastillingu ogmillikassa til að auðvelda akstur utan vega.
Suzuki hefurekkert gefið upp um aflvélar, en líklegt er að það sé lítil fjögurra strokkabensínvél, annað hvort 1,0 lítra eða 1,3 lítra. Mjög líklegt að tengitvinngerðmuni líta dagsins ljós síðar.



