Nýr SsangYong Torres EVX rafbíll

139
DEILINGAR
1.3k
SMELLIR

Nýr SsangYong Torres EVX rafbíll

SsangYong hefur sýnt okkur fyrstu myndir af nýjum litlum rafdrifnum „crossover“ sportjeppa

Væntanlegur Torres sportjeppi var fyrst sýndur á síðasta ári en nú hefur SsangYong opinberað rafknúnu EVX útgáfuna fyrir 2023.

Bíllinn verður frumsýndur opinberlega á Seoul Mobility Show 2023 þann 30. mars næstkomandi ásamt nokkrum hugmyndabílum.

Við höfum áður fjallað um Torres sportjeppann hér áður á Bílabloggi og þess vegna er ekki síður gaman að geta upplýst lesendur okkar nánar um framhaldið.

Áætlun SsangYong um að vera með stóra viðveru á stærstu bílasýningu Kóreu er ekki tilviljun.

Bílaframleiðandinn slapp naumlega undan gjaldþroti árið 2022 og var keyptur á síðustu stundu af kóreska fyrirtækinu KG Group.

Sem slíkur mun SsangYong brátt breyta nafni sínu í KG Mobility og þó að kynning á netinu flokki Torres EVX enn sem SsangYong, birtist nafnið ekki á bílnum sjálfum.

Rafbíllinn Torres EVX lítur allt öðruvísi út en Torres með brunavél, þrátt fyrir að deila sama grunni og yfirbyggingu.

Sumir framleiðendur rafbíla fylla upp í grillið og láta gott heita en SsangYong hefur gefið EVX sérsniðinn framenda með þunnum LED ræmum fyrir framljós, grilli í jeppastíl með sex (ekki sjö eins og Jeep) einstökum ræmum og algjörlega endurskoðaðum stuðara.

Inni í EVX eru fleiri breytingar – innrétting rafmagns Torres mjög frábrugðin gerðinni með 1,5 lítra túrbóvél.

Stóra skjánum með spjaldtölvuútliti í miðjunni er skipt út fyrir tvöfalda skjái, svipaða heildarhönnun og BMW býður upp á.

Stjórnborðið undir miðjuskjánum er líka öðruvísi og það virðist ekki vera annar skjár fyrir neðan fyrir loftræstikerfið.

Ekki hafa sést myndir af restini af mælaborðinu en þá má sjá að stýrið er eins og í bílnum með bensínvélina og það lítur út fyrir að vera raunverulegir hnappar á báðum hliðum þess.

Sömu felgur og á og bensínknúna Torres eru til staðar á rafbílnum.

Torres mun ætla að nota sama grunn og Korando í svipaðri stærð, sem þýðir að EVX mun líklega fá tækni frá fyrsta rafbíl fyrirtækisins – Korando e-Motion.

Þetta myndi þýða rafmótor að framan sem knúinn er af 61,5kWh rafhlöðu og drægni í kringum 340 km.

Vefur Auto Express á Bretlandi segir að miðað við að verðlag byrjar á yfir 30 þúsund pundum (um 5,2 milljónum ISK) fyrir Korando e-Motion, gerir hann ráð fyrir að hinn öflugari Torres EVX, sem SsangYong segir skuldbinda sig til „Powered by Toughness“ hönnun vörumerkisins, fari nær 40.000 punda markinu (um 6,8 milljónum ISK).

Það er engin tilkynning frá SsangYong eða reyndar KG Mobility um hvort Torres EVX muni koma til Bretlands.

Við hér á Íslandi bíðum líka eftir fréttum af því hvort þessi nýi rafjeppi komist til Bílabúðar Benna.

(byggt á frétt á vef Motor1 og Auto Express)

Vídeó sem sýnir meira af þessum nýja Torres EVX

Svipaðar greinar