Laugardagur, 11. október, 2025 @ 7:27
Bílablogg
Advertisement
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt

Nýr Peugeot E-3008 rafbíll frumsýndur í Brimborg 

Pétur R. Pétursson Höf: Pétur R. Pétursson
13/06/2024
Flokkar: Bílaheimurinn, Fréttatilkynning
Lestími: 7 mín.
292 3
0
141
DEILINGAR
1.3k
SMELLIR
Deila á FacebookDeila á Twitter

Brimborg frumsýnir glænýjan Peugeot E-3008 rafbíl með framúrskarandi drægni, góðum hleðsluhraða, nýju stórfenglegu Panoramic i-Cockpit innra rými, ríkulegum útbúnaði, snjallhleðslu og víðtækri 7 ára ábyrgð á bílnum og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu. Frumsýningin verður í sýningarsal Peugeot við Bíldshöfða 8 í Reykjavík dagana 13.-27. júní.

Sýningar- og reynsluakstursbílar verða á staðnum og ráðgjöf varðandi hleðslu rafbíla, uppsetningu hleðslustöðva og sérkjör í hraðhleðslu. Það hefur aldreið verið öruggara að eiga rafbíl og á þessu ári mun Peugeot gera það enn auðveldara með breiðustu rafbílalínunni á Íslandi. 

VERÐLAUNABÍLL Á FRÁBÆRU KYNNINGARVERÐI

Peugeot hefur gjörbylt hönnun á nýjum E-3008 í takt við ný hönnunarmarkmið Peugeot þar sem heillandi og frumleg hönnun eru höfð að leiðarljósi. Auk glæsilegrar hönnunar er akstursgleði og einstök afköst höfð að leiðarljósi sem skilar sér í meiri ávinningi fyrir væntanlega eigendur.

Red Dot er ein stærsta hönnunarsamkeppni heims og hafa verðlaunin verið veitt frá árinu 1955. Peugeot E-3008 hlaut verðlaunin að þessu sinni fyrir framúrskarandi hönnun og er þetta er í níunda sinn sem Peugeot hlýtur þessi eftirsóttu verðlaun. 

Nýr Peugeot E-3008 fær 900.000 kr. rafbílastyrk frá Orkusjóði og býðst á frábæru kynningarverði eða frá aðeins 7.090.000 með rafbílastyrk. 

LANGDRÆGUR MEÐ ALLT AÐ 525 KM DRÆGNI 

Peugeot E-3008 er kraftmikill, 210 hestafla rafbíll, með 73 kWh drifrafhlöðu og varmadælu sem endurnýtir orku fyrir miðstöðina og því er drægni bílsins skv. WLTP mælingu framúrskarandi eða allt að 525 km. 

SNJÖLL OG ÖFLUG HLEÐSLA

Peugeot E-3008 er með 73 kWh drifrafhlöðu og þriggja fasa innbyggð hleðslustýring er staðalbúnaður en bíllinn styður einnig einfasa þar sem því er eingöngu til að dreifa.

Auðvelt er að skjóta inn á rafhlöðuna í hraðhleðslu (DC) ef þörf er á aukaorku. Í hraðhleðslu leyfir hleðslustýringin allt að 160 kW hraðhleðslu sem nýtist til hleðslu frá 20%- 80% af hámarksgetu drifrafhlöðunnar og tekur það um 35 mínútur. 

HÁGÆÐA AKSTURSUPPLIFUN OG ÖRYGGI

Peugeot E-3008 er fyrsti bíllinn sem Peugeot framleiðir á glænýjum STLA undirvagni, sem setur ný viðmið í rafbílatækni og gerir vörumerkið að leiðandi rafbílamerki í Evrópu.

Þessi nýstárlegi rafbílaundirvagn hefur verið hannaður til að bjóða upp á hágæða akstursupplifun, framúrskarandi drægni, öflug hraðhleðsluafköst, skilvirkni, stafrænar þjónustur og snjallhleðslumöguleika.

Peugeot E-3008 rafbíll er með þráðlausar uppfærslur yfir netið (OTA) fyrir reglulegar uppfærslur á hugbúnaði bílsins svo að bíllinn sé alltaf með nýjasta hugbúnaði sem völ er á. Nýr Peugeot E-3008 rafbíll er með ríkulegan öryggisbúnað. 

NÝ KYNSLÓÐ AF PANORAMIC I-COCKPIT INNRA RÝMI 

Glænýr Peugeot E-3008 er með stórfenglegri, nýrri kynslóð af Panoramic i-Cockpit innréttingu sem hefur verið sérhönnuð til að veita einstaka akstursupplifun. Innra rýmið er 

fullkomið þar sem notagildi og þægindi fyrir ökumann er haft að leiðarljósi þar sem öll stjórntæki, mælar og skjáir eru í sjónlínu ökumanns. Ný kynslóð af Panoramic i-Cockpit inniheldur fullkomin víðmyndarskjá sem er ýmist tveir 10“ HD margmiðlunarskjáir í Allure útfærslu eða 21“ HD margmiðlunar- og víðmyndarskjár með LED stemmingslýsingu sem skapar skemmtilega stemmningu við aksturinn í GT útfærslu.

Í skjánum eru allar helstu stafrænu nýjungar, þráðlausar tengingar fyrir snjallsíma og raddstýring. Peugeot E-3008 GT er með þráðlausri símahleðslu og upphitanlegu stýri.

Fyrirferðalítið leðurklætt stýrið hefur alltaf leikið lykilhlutverk í i-Cockpit innréttingunni og hefur enn á ný verið endurhannað til að bjóða upp á enn betri akstursupplifun og þægindi. 

7 ÁRA VÍÐTÆK ÁBYRGÐ Á BÍL OG 8 ÁRA ÁBYRGÐ Á DRIFRAFHLÖÐU

Peugeot er fullviss um gæði, áreiðanleika og endingu rafbíla sinna. Gæði Peugeot bíla eru staðfest með víðtækri 7 ára ábyrgð á bílnum og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðunni. Ábyrgðin er aðeins í boði á bílum keyptum af Brimborg og er háð því að bíllinn fylgi þjónustuferli framleiðanda. 

PEUGEOT 3008 HYBRID

Síðar í sumar er einnig von á Peugeot 3008 með hybrid tækni,rafmagn og bensín. Hann er sjálfhlaðanlegur og því þarf ekki að stinga í samband til að hlaða rafhlöðuna heldur hleður hann sig í akstri.

Peugeot 3008 hybrid er sparneytinn með allt að 26% minni eyðslu en sambærilegur bensínbíll, ríkulegum útbúnaði og stórfenglegu Panoramic i-Cockpit innra rými sen tryggir hágæða akstursupplifun og öryggi. Peugeot 3008 hybrid er nú fáanlegur í forsölu á frábæru kynningarverði eða frá 6.690.000 kr. 

BREIÐASTA RAFBÍLALÍNAN Á ÍSLANDI

Peugeot bílaframleiðandinn hefur sett sér metnaðarfullt markmið að verða leiðandi rafbílamerki í Evrópu með breiðustu rafbílalínuna. Næstum 5 ára reynsla er af Peugeot rafbílum á Íslandi.

Í lok árs 2024 mun Peugeot bjóða 9 tegundir rafmagnsfólksbíla sem verður þá breiðasta rafbílalínan á Íslandi með E208, E-2008, E-308, E-308 Station, E3008, E-408, E -5008, E-Rifter og E-Traveller. Einnig er í boði úrval rafmagnssendibíla í mörgum stærðarflokkum. 

ÞAÐ HEFUR ALDREI VERIÐ ÖRUGGARA AÐ EIGA RAFBÍL

Brimborg er í hópi stærstu innflytjenda rafbíla á Íslandi undanfarin ár. Með auknu úrvali rafbíla, meiri drægni, auknum hleðsluhraða, ódýrari heimahleðslu, þéttara hraðhleðsluneti, lengri ábyrgð, lægri rekstrarkostnaði, minni mengun, betri endursölu og meiri þægindum hefur aldrei verið öruggara að eiga rafbíl. 

HÆGT AÐ SKOÐA ÚRVALIÐ AF PEUGEOT E-3008 Í VEFSÝNINGARSAL BRIMBORGAR

Í Vefsýningarsal Brimborgar er að finna Peugeot E-3008 rafbíla sem eru á leiðinni til landsins. Söluráðgjafar Peugeot veita viðskiptavinum ráðgjöf við valið á rétta bílnum, upplýsingar um rafbílastyrki sem eru í boði og aðstoða við val og uppsetningu á hleðslustöð.

Þegar draumabíllinn er fundinn er send fyrirspurn beint úr Vefsýningarsalnum sem söluráðgjafi svarar um hæl. Viðskiptavinir geta auðveldlega breytt bílum í pöntun að sínum smekk með aðstoð söluráðgjafa Peugeot. 

SÉRKJÖR Á HLEÐSLULAUSNUM OG Í HRAÐHLEÐSLU

Peugeot á Íslandi og Brimborg bjóða viðskiptavinum sínum sérlega hagstæð kjör á hleðslustöðvum og uppsetningu þeirra ásamt sérkjörum í hraðhleðsluneti Brimborgar Bílorku. Söluráðgjafar Peugeot veita allar upplýsingar um sérkjör til viðskiptavina. 

NÁNARI UPPLÝSINGAR UM PEUGEOT E-3008 RAFBÍL

Nánari upplýsingar um Peugeot E-3008 má finna á vef Peugeot á Íslandi eða hjá söluráðgjafa Peugeot í sýningarsal Peugeot við Bíldshöfða 8 í Reykjavík. 

Fyrri grein

Biðin heldur áfram eftir breyttu útliti á Tesla Y

Næsta grein

Ford hættir að smíða Focus

Pétur R. Pétursson

Pétur R. Pétursson

Vefstjóri og blaðamaður

Svipaðar greinar

 LEAPMOTOR er ný tegund rafbíla á Íslandi

 LEAPMOTOR er ný tegund rafbíla á Íslandi

Höf: Jóhannes Reykdal
10/10/2025
0

ÍSBAND hefur verið valið sem umboðsaðili Leapmotor á Íslandi. Þetta markar komu merkisins á íslenskan markað. Forsala er hafin og...

Nýr Kia PV5 mun keppa við VW ID Buzz

Nýr Kia PV5 mun keppa við VW ID Buzz

Höf: Jóhannes Reykdal
09/10/2025
0

Kia keppir við VW um forystu í markaðssetningu rafknúinna fólksflutningabíla SEÚL — Volkswagen ID Buzz, söluhæsti meðalstóri fólksflutningabíll Evrópu, mun...

Nýr og alrafmagnaður Kia EV4 frumsýndur um land allt

Nýr og alrafmagnaður Kia EV4 frumsýndur um land allt

Höf: Pétur R. Pétursson
09/10/2025
0

Laugardaginn 11. október kl. 12-16 í sýningarsal Kia að Krókhálsi 13 og hjá umboðsaðilum Kia um land allt. Reykjavík, október...

Kia Soul hættir framleiðslu eftir árgerð 2025

Kia Soul hættir framleiðslu eftir árgerð 2025

Höf: Jóhannes Reykdal
08/10/2025
0

Eftir meira en áratug á markaðnum er Kia Soul að hverfa á braut. Kia hefur staðfest að framleiðslu Soul lýkur...

Næsta grein
Ford hættir að smíða Focus

Ford hættir að smíða Focus

Segðu okkur hvað þér finnst! Hætta við svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Greinaflokkar

  • Aðsent
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Fréttatilkynning
  • Hugmyndabílar
  • Kynning
  • Mótorsport
  • Ritstjórn
  • Tækni
  • Umferð

Tögg

Cadillac Eldorado e power Hyundia Ioniq 6 klassík lögreglubílar mahindra Rafgmagnsbíll rafhlöður rafmagn Rafmagnsbíll Shanghai sjúkrabílar tata World car of the year

Óháður bílavefur

Bílablogg.is er sjálfstætt starfandi fjölmiðill sem skrifar með þarfir lesenda í huga. Við leggjum metnað okkar í að reynsluaka nýjum bílum og flytja fréttir af því helsta sem er að gerast í bílaheiminum, bæði heima og erlendis.

Greinar

  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð

Reynsluakstur

  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar
  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar

Nýjustu færslurnar

Bílaframleiðsla

 LEAPMOTOR er ný tegund rafbíla á Íslandi

10/10/2025
Bílaframleiðsla

Nýr Kia PV5 mun keppa við VW ID Buzz

09/10/2025
Bílasýningar

Nýr og alrafmagnaður Kia EV4 frumsýndur um land allt

09/10/2025

2023 © Bílablogg.is • Allur réttur áskilinn • Bílablogg sf • Kt. 5911211460

Welcome Back!

Skráðu þig inn á aðganginn þinn

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband

© 2022 Bílablogg sf. - Allur réttur áskilinn.