Nýr Nissan Max-Out hugmyndabíll forsýnir framtíðar rafsportbíl
Nissan Max-Out blæjugerð á rafbíl er raunveruleg gerð af stafræna hugmyndabílnum sem fyrst var sýndur árið 2021
Nissan hefur færst skrefi nær því að kynna hreinan rafknúinn sportbíl með því að smíða „raunverulega og áþreifanlega“ útgáfu af Max-Out hugmyndabílnum sem þeir sýndu í stafrænu formi árið 2021.
Max-Out er tveggja sæta blæjubíll með flókinni þrívíddaráferð í framljósum, afturljósum og hjólhlífum.

Nissan segir að bíllinn muni veita „frelsandi tilfinningu um opið rými“ og að þrátt fyrir hefðbundin fótstig og uppsetningu óvenjulegs stýris hafi hann verið hannaður til að bjóða upp á „nýja akstursupplifun með stöðugleika og þægindum, þéttri meðhöndlun og takmörkuðum hreyfingum“.

Upprunalegt útlit hugmyndabílsins, á stafrænu formi, var hluti af hópi „hugsjónalegra farartækja“ sem einnig innihélt „Chill-Out“-bílinn – sem sagt er að forsýni bíl sem gæti komið í staðinn fyrir núverandi Leaf-rafbílinn, og þá sem „crossover“ EV – og pallbíl sem heitir „Surf-Out“.
Heimildarmenn Nissan hafa neitað að tjá sig um framleiðslumöguleika Max-Out. Sagt er að fyrirtækið sé að undirbúa rafknúninn arftaka núverandi GT-R sportbílsins og það selur einnig ódýrari Z coupe sportbílinn utan Evrópu.
En japanska vörumerkið sýndi þessa raunverulegu gerð bílsins í höfuðstöðvum sínum í Japan, sem hluta af viðburði til að sýna hvernig það er að „móta framtíð sjálfbærra bíla og nýstárlegrar hönnunar“.
Sú staðreynd að Max-Out var upphaflega sýndur undir merkinu „Nissan Ambition 2030“ gefur einnig Nissan nokkur ár til að smíða einhvern framleiðslubíl sem er innblásinn af honum; það þýðir að hann gæti verið með næstu kynslóð rafmótora og hugsanlega jafnvel væntanlegri „solid-state“ rafhlöðutækni.
(frétt á vef Auto Express – Myndir frá Nissan)



