Miðvikudagur, 18. júní, 2025 @ 5:49
Bílablogg
Advertisement
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt

Nýr Model 3 með meiri drægni en nokkru sinni fyrr og lækkað verð

Jóhannes Reykdal Höf: Jóhannes Reykdal
08/10/2024
Flokkar: Bílaframleiðsla, Bílaheimurinn
Lestími: 4 mín.
315 24
0
162
DEILINGAR
1.5k
SMELLIR
Deila á FacebookDeila á Twitter

  • Tesla á Íslandi kynnir nýjan Model 3 með meiri drægni en nokkru sinni fyrr. Tesla lækkar verð á Íslandi á Model 3 og Model Y

Í dag kynnir Tesla nýja viðbót við Model 3 línuna í Evrópu – Model 3 Long Range með afturhjóladrifi.

Model 3 Long Range með afturhjóladrifi er með 702 km drægni (WLTP) og notar 12.5 kWh/100 km og er því með meiri drægni en nokkur annar Model 3, ásamt því að vera sparneytnasti bílinn sem Tesla hefur framleitt til þessa.

Hagkvæmasti rafbíllinn sem er í boði í Evrópu

Model 3 Long Range með afturhjóladrifi er fáanlegur á Íslandi frá 6.690.000 kr. og er hagkvæmasti rafbíllinn sem í boði er í Evrópu um þessar mundir. Þessi ótrúlega drægni sem fæst á viðráðanlegu verði er afrakstur stöðugrar tækniþróunar hjá Tesla sem hefur verið miðað að aukinni orkunýtingu fyrir lægri kostnað. Auðveld leið til að lýsa afrakstur þessarar tækniþróunnar: Model 3 Long Range með afturhjóladrifi getur ekið heilan kílómetra á þeirri orku sem þarf til að hita frosna máltíð í örbylgjuofni. Sé þetta sett í samhengi þýðir þetta að framtíðareigendur geta ekið fleiri kílómetra á hverja krónu sem varið er í hleðslu.

Model 3 Long Range með afturhjóladrifi þarfnast mjög lítils viðhalds og býður upp á óviðjafnanlega upplifun fyrir nánast sama heildarkostnað og fyrir hefðbundna fjöldaframleidda bíla. Rétt eins og allir Tesla bílar er Model 3 Long Range með afturhjóladrifi búinn öllum þeim staðalbúnaði sem fáanlegur er í Model 3.

Allt sem gerði Model 3 að söluhæsta bílnum – nú með enn meiri drægni

Model 3 Long Range með afturhjóladrifi víkur ekki frá því sem gerði Model 3 að söluhæsta bílnum á heimsvísu. Hann skilar frábærri drægni, sparneytni og aksturseiginleikum á við sportbíl og er búinn háþróuðum tæknibúnaði – allt á viðráðanlegu verði. Þessi nýja útfærsla inniheldur allar endurbæturnar sem gerðar voru á Model 3 línunni á síðasta ári og býður upp á meiri fágun, þægindi og úrvalsgæði – að utan sem að innan.

Umlykjandi hönnun farþegarýmisins úr hágæða efnum, sem útfærð er af einstakri nákvæmni, er hljóðlátari en nokkru sinni fyrr, þökk sé hljóðeinangruðu 360° gleri, endurbættum fjöðrunarbúnaði, þéttingum og hljóðdempandi eiginleikum sem voru fyrst kynntir á uppfærðum Model 3.

Vandað hljóðkerfi sem hannað er af Tesla og samanstendur af 9 hátölurum, bassahátalara og magnara, ásamt innbyggðum stuðningi við streymisþjónustur á borð við Spotify, Apple Music, YouTube Music og fleira, ýtir undir þessa umlykjandi tilfinningu.

8 tommu skjár í annarri sætaröð býður farþegum í aftursætum upp á auðvelt aðgengi að hitastýringu og afþreyingu. Farþegar í framsætum geta notið þægindanna sem fylgja loftræstum sætum og hita í sætum í bæði fyrstu og annarri sætaröð sem veita hlýju þegar hitastigið lækkar.

Model 3 Long Range með afturhjóladrifi er tilvalinn valkostur fyrir fólk sem ferðast mikið og elskar að skoða sig um. Með óviðjafnanlega orkunýtni og aðgang að yfir 60 Tesla Supercharger hleðslustöðvum á Íslandi – sem eru hluti af stærsta og áreiðanlegasta ofurhraðhleðsluneti í heimi – geturðu farið hvert sem er í helgarfríinu.

Model 3 Long Range með afturhjóladrifi er nú í boði á Íslandi frá 6.690.000 kr., eða 5.790.000 kr. að frádregnum rafbílastyrk – hannaðu þinn hér.

Afhending á Model 3 Long Range með afturhjóladrifi til viðskiptavina í Evrópu hefst í nóvember.

Tesla lækkaði í dag verð á öllum gerðum Model Y og Model 3 á Íslandi, og er nú hægt að kaupa Tesla bíl frá 5.090.000 kr. (með rafbílastyrk frá Orkusjóði).

Hér má sjá nýju verðin að frádregnum styrk til rafbílakaupa frá Orkusjóði:

RWDLong Range RWDLong Range AWDPerformance
Model 35.090.0005.790.0006.390.0007.267.502
Model Y5.990.0006.590.0016.990.0017.490.00
     

(fréttatilkynning frá Tesla á Íslandi)

Fyrri grein

Styttist í frumsýningu á Renault 4 E-Tech

Næsta grein

Renault, BYD, Tesla rafbílar verða meðal stjarna á Parísarsýningunni

Jóhannes Reykdal

Jóhannes Reykdal

Ritstjóri og blaðamaður

Svipaðar greinar

Apple CarPlay fær mikla, notendavænni uppfærslu og með sérstillingum

Apple CarPlay fær mikla, notendavænni uppfærslu og með sérstillingum

Höf: Jóhannes Reykdal
17/06/2025
0

Breytingar verða gerðar sem hluti af iOS 26 hugbúnaðaruppfærslunni fyrir iPhone, sem kemur út í haust Apple CarPlay mun fá...

Toyota segir að nýi Aygo X tvinnbíllinn verði hreinasti bíll Evrópu án tengils

Toyota segir að nýi Aygo X tvinnbíllinn verði hreinasti bíll Evrópu án tengils

Höf: Jóhannes Reykdal
11/06/2025
0

BRUSSEL — Toyota segir að nýi smábíllinn Aygo X, sem er full-tvinnbíll, sé hreinasti bíll Evrópu sem þarf ekki að...

Verksmiðjur í Evrópu loka vegna skorts á sjaldgæfum jarðefnum

Verksmiðjur í Evrópu loka vegna skorts á sjaldgæfum jarðefnum

Höf: Jóhannes Reykdal
08/06/2025
0

Reuters News - BERLÍN — Nokkrum evrópskum varahlutaverksmiðjum og framleiðslulínum hefur verið lokað vegna skorts á sjaldgæfum jarðefnum af völdum...

Afmælissýning Kvartmíluklúbbsins og Krúser – myndir

Afmælissýning Kvartmíluklúbbsins og Krúser – myndir

Höf: Pétur R. Pétursson
04/06/2025
0

Kvartmíluklúbburinn – 50 ára afmæli Kvartmíluklúbburinn, stofnaður árið 1975, hefur verið í fararbroddi íslensks mótorsports í hálfa öld. Klúbburinn rekur...

Næsta grein
Renault, BYD, Tesla rafbílar verða meðal stjarna á Parísarsýningunni

Renault, BYD, Tesla rafbílar verða meðal stjarna á Parísarsýningunni

Umræður um þessa grein

Greinaflokkar

  • Aðsent
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Fréttatilkynning
  • Hugmyndabílar
  • Kynning
  • Mótorsport
  • Ritstjórn
  • Tækni
  • Umferð

Tögg

Cadillac Eldorado e power Hyundia Ioniq 6 klassík lögreglubílar mahindra Rafgmagnsbíll rafhlöður rafmagn Rafmagnsbíll Shanghai sjúkrabílar tata World car of the year

Óháður bílavefur

Bílablogg.is er sjálfstætt starfandi fjölmiðill sem skrifar með þarfir lesenda í huga. Við leggjum metnað okkar í að reynsluaka nýjum bílum og flytja fréttir af því helsta sem er að gerast í bílaheiminum, bæði heima og erlendis.

Greinar

  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð

Reynsluakstur

  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar
  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar

Nýjustu færslurnar

Bílaframleiðsla

Apple CarPlay fær mikla, notendavænni uppfærslu og með sérstillingum

17/06/2025
Bílaframleiðsla

Toyota segir að nýi Aygo X tvinnbíllinn verði hreinasti bíll Evrópu án tengils

11/06/2025
Bílaframleiðsla

Verksmiðjur í Evrópu loka vegna skorts á sjaldgæfum jarðefnum

08/06/2025

2023 © Bílablogg.is • Allur réttur áskilinn • Bílablogg sf • Kt. 5911211460

Welcome Back!

Skráðu þig inn á aðganginn þinn

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband

© 2022 Bílablogg sf. - Allur réttur áskilinn.