Miðvikudagur, 14. maí, 2025 @ 23:08
Bílablogg
Advertisement
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt

Nýr Honda HR-V 2021 kynntur með e: HEV tvinndrifrás

Jóhannes Reykdal Höf: Jóhannes Reykdal
30/04/2021
Flokkar: Bílasýningar
Lestími: 5 mín.
279 6
0
136
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR
Deila á FacebookDeila á Twitter

Nýr Honda HR-V 2021 kynntur með e: HEV tvinndrifrás

  • Nýr Honda HR-V crossover: Nýtt útlit, betri umbúðir og ný 129 hestafla, 1,5 lítra tveggja mótora tvinndrifrás

Við, ásamt fleiri bílavefsíðum, vorum að velta því fyrir okkur hvort rafdrifni hugmyndabíllinn sem Honda frumsýndi í Shanghai á dögunum væri það sem vænta mætti í nýjum Honda HR-V, en núna hefur Honda tekið nýjan HR-V „úr umbúðunum“ ef svo má segja.

Þriðja kynslóð Honda HR-V fær nýtt áberandi útlit, aukatækni, rúmbetri innréttingu og endurunna útgáfu af snjallri tveggja mótora e:HEV tvinndrifrás, sem er aðlöguð úr nýjasta Honda Jazz.

Þessi nýja aflrás Honda HR-V notar sömu 1,5 lítra bensínvél með tveimur rafmótorum, þó að hún sé tengd aðeins stærri rafhlöðu sem er fest undir gólfinu í skottinu. Samanlögð afköst kerfisins eru meiri eða 129 hestöfl og 253 Nm tog, til að takast á við aðeins stærri bíl.

Eins og í Honda Jazz virkar bensínvél HR-V fyrst og fremst sem rafall fyrir rafmótorakerfið. Hins vegar getur bensínvélin einnig keyrt hjólin beint á hærri ökuhraða.

Þrátt fyrir áherslu drifrásarinnar á rafknúinn akstur hefur Honda ekki í raun staðfest hámarks rafmagnsdrægni fyrir HR-V. En Kojiro Okabe, einn yfirverkfræðinga nýja HR-V verkefnisins, greindi frá því að drægnin á rafmagninu væri ekki forgangsatriði.

„Við höfum ekki lagt mikla áherslu á hversu langt má aka á rafmagni eingöngu. Þetta snýst meira um heildarjafnvægið og hvernig hægt er að framleiða raforkuna með skilvirkni.“

Okabe sagði enn fremur að í borgarakstri væri oftast hægt að keyra á hreinu rafmagni. Meginatriðið væri tækniþróunin að baki því að hámarka hreina drægni á rafmagninu.

Nýr 2021 Honda HR-V: hönnun og innrétting

Honda HR-V hefur alltaf boðið meira coupé-útlit en keppinautarnir; eitthvað sem þessi þriðja kynslóð hefur þróað enn frekar. Innblásturinn er að hluta fenginn frá hönnun Honda e: Concept frumgerðinni sem kynnt var í fyrra.

Eins og hugmyndabíllinn var þá er HR-V með breitt grill og hallandi yfirbragð með þaklínu sem er 20 mm lægri en á gamla bílnum. Honda hefur einnig aukið veghæð HR-V um 10 mm og sett stærri 18 tommu álfelgur sem staðalbúnað og þannig bætt stöðu bílsins. Restin af bílnum er með hreint og einfalt yfirborð.

Honda segir að útlitsbreytingarnar séu þó ekki bara vegna hönnunarinnar. Það er loftspjald meðfram neðri brún stuðarans sem og smá brún við aftari brún hliðarsílsanna, sem bæta loftflæðið við bílinn. Nýja vindskeiðin hjálpar einnig til við að hreinsa óstöðuga loftið í kjölfar HR-V, dregur úr dragi og bætir sparneytni.

Að innan hefur Honda tekið upp mínímalískt hönnunarmál. Mælaborðið er einfalt og samanstendur aðeins af sjö tommu mælaklasa, níu tommu upplýsingakerfi og nokkrum einföldum snúningsrofum fyrir loftslagsstýringu fyrir ofan miðjustokkinn.

Honda hefur komið fyrir nýju loftdreifikerfi í stað hefðbundinna loftstúta sem eru festir í miðju innanrýmisins. Það notar tvo L-laga stúta við A-bitana, sem beina lofti niður rúðurnar á bílnum til að stilla innra hitastigið.

Þrátt fyrir að vera jafnlangur og gamli HR-V segist Honda hafa bætt innra rými nýja bílsins, með nýrri difrás. Við aftursæti er 35 mm meira fótapláss og tveggja gráðu sætishalli mögulegur til viðbótar.

Nýr Honda HR-V 2021: öryggistækni

„Sensing“ öryggisbúnaður Honda sést hér í fyrsta sinn í þriðju kynslóð HR-V og bætir enn akstursaðstoð við ökumenn. Stærsta uppfærslan er ný myndavél að framan og myndvinnslukubbur, sem bætir búnaðinn sem greinir hættu á árekstri við gangandi vegfarendur. Stýrikerfið nær einnig til sjálfvirka hemlakerfisins sem tekur við sér þegar viðvörun berst um mögulega hættu. Með því að draga sjálfkrafa úr hraða er höggið lágmarkað.

Nýja myndavélin getur, þegar ekið er í náttmyrkri, betur greint gangandi vegfarendur, en endurbættur hugbúnaður ber kennsl á farartæki í námunda við bílinn; þar á meðal hjólreiðamenn og mótorhjól, og beitt sjálfvirkri hemlun.

Skriðstillikerfi bílsins státar af nýjum hugbúnaði sem Honda segir að vinni betur, til dæmis við framúrakstur. Ökutækið getur nú reiknað besta horn stýringar og þá hröðun sem þarf til framúrakstursins.

Nýi HR-V verður einnig boðinn með Hill Descent Control í fyrsta skipti í Evrópu, sem getur unnið allt niður í 3 km hraða. Honda segir að kerfið geti aðstoðað ökumenn við ýmsar aðstæður, allt frá „akstri á hálum bílastæðum til brattra vega í vetrarfærð“.

Hinn nýi Honda HR-V kemur í sölu síðar á þessu ári.

(frétt á Auto Express – myndir Honda)

Fyrri grein

Hér er alvöru Bronco!

Næsta grein

Hekla og Bílablogg í samstarfi

Jóhannes Reykdal

Jóhannes Reykdal

Ritstjóri og blaðamaður

Svipaðar greinar

Volkswagen vakti mikla athygli í Kína

Volkswagen vakti mikla athygli í Kína

Höf: Jóhannes Reykdal
02/05/2025
0

Volkswagen leggur mikið kapp á að vera áberandi fyrir kínverska bílakaupendur. Á bílasýningunni í Sjanghæ sýndi framleiðandinn þrjá nýja hugmyndabíla....

Bílasýningin í Sjanghæ opnar með tolla Trumps og öryggi í aðalhlutverki

Bílasýningin í Sjanghæ opnar með tolla Trumps og öryggi í aðalhlutverki

Höf: Jóhannes Reykdal
23/04/2025
0

SHANGHAI - Reuters News - Helstu árlegar bílasýningar Kína eru orðnar sýningargluggi fyrir uppgang sífellt ódýrari rafbíla sem afkasta betur...

Atvinnubílavika ÍSBAND 7.-11. apríl

Atvinnubílavika ÍSBAND 7.-11. apríl

Höf: Jóhannes Reykdal
07/04/2025
0

Ert þú í kraftmiklum rekstri? Atvinnubílavika ÍSBAND er í fullum gangi. ÍSBAND umboðsaðili Fiat og RAM á Íslandi efnir til...

Bíll númer 570 af aðeins 1974 til sýnis hjá Bílabúð Benna

Bíll númer 570 af aðeins 1974 til sýnis hjá Bílabúð Benna

Höf: Jóhannes Reykdal
28/03/2025
0

50 ára afmælisútgáfa 911 Turbo frumsýnd á laugardag Á síðasta ári kynnti Porsche sérstaka 50 ára afmælisútgáfu af hinum goðsagnakennda...

Næsta grein
Hekla og Bílablogg í samstarfi

Hekla og Bílablogg í samstarfi

Umræður um þessa grein

Greinaflokkar

  • Aðsent
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Fréttatilkynning
  • Hugmyndabílar
  • Kynning
  • Mótorsport
  • Ritstjórn
  • Tækni
  • Umferð

Tögg

Cadillac Eldorado e power Hyundia Ioniq 6 klassík lögreglubílar mahindra Rafgmagnsbíll rafhlöður rafmagn Rafmagnsbíll Shanghai sjúkrabílar tata World car of the year

Óháður bílavefur

Bílablogg.is er sjálfstætt starfandi fjölmiðill sem skrifar með þarfir lesenda í huga. Við leggjum metnað okkar í að reynsluaka nýjum bílum og flytja fréttir af því helsta sem er að gerast í bílaheiminum, bæði heima og erlendis.

Greinar

  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð

Reynsluakstur

  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar
  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar

Nýjustu færslurnar

Bílaframleiðsla

Alrafmagnaður Isuzu D-MAX 4×4 á markaði Evrópu í haust

14/05/2025
Bílaframleiðsla

Volvo XC70 snýr aftur sem tengitvinnbíll með 199 km drægni á rafmagninu

13/05/2025
Álit

Audi Q6 e-tron S-line – punkturinn yfir i-ið hjá Audi

12/05/2025

2023 © Bílablogg.is • Allur réttur áskilinn • Bílablogg sf • Kt. 5911211460

Welcome Back!

Skráðu þig inn á aðganginn þinn

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband

© 2022 Bílablogg sf. - Allur réttur áskilinn.