Nýr BMW 2 Series Coupé árgerð 2021 mun halda sig við afturhjóladrifið
- Næsta kynslóð BMW 2 Series Coupé mun ekki vera með framhjóladrif og með hefðbundnu útliti sportbíla, og myndir á vef Auto Express sýna hvernig bíllinn gæti litið út
BMW hefur nú einbeitt sér að því að þróa flota nýrra rafknúinna ökutækja, en þýski framleiðandinn hefur ekki gleymt grunni viðskiptavina sinna, þess vegna er nýr 2 Series Coupé á leiðinni.

Nýju gerðinni er beinlínis beint að áhugamönnum um akstur, því hún verður afturhjóladrifin, en handvirkir gírkassar og sex strokka línu bensínvél birtast.
Koma nýja Coupé-bílsins á markað á árinu 2021 þýðir að gerð 2 seríunnar verður áfram sú fjölbreyttasta í röð BMW. Bíllinn mun sitja við hlið fjögurra dyra 2 Series Gran Coupe og dúet fyrirtækisins – 2 Seríu-merktu bílanna – Active Tourer og sjö sæta Gran Tourer. En undir yfirborðinu mun Coupé-bíllinn nánast ekki deila neinu með þessum gerðum.
Í viðtali við Auto Express, staðfesti Gernot Stuhl, framleiðslustjóri 2 Series Gran Coupé, áætlanir BMW um að kynna nýjan 2 seríu Coupe sem muni hætta með framhjóladrif og draga úr þróun á minni bíl.
„Það verður arftaki sem verður afturhjóladrifinn“, upplýsti Stuhl. „Svo að viðskiptavinir sem vilja nýja 2 seríu Coupé-inn munu finna það í okkar bíl, sem og einnig þeir sem vilja sex strokka vél.“

Á meðan Gran Coupé notar framhjóladrifinn UKL grunn BMW, sem er deilt með MINI, mun Coupé með afturdrifi nota mjög breytta útgáfu af CLAR grunni BMW. Sá grunnur er notaður í nýjustu bílunum í seríu 3, sem og nýlega afhjúpuðum Seríu 4 Coupé.
Staðalgerð 2 seríu Coupé mun treysta á 1,5 lítra þriggja strokka vél, sem og 2,0 lítra fjögurra strokka bensínvél og hugsanlega 2,0 lítra dísilvél, en þær síðarnefndu eru teknir úr 320i og 320d gerðum. Sportleg M235i útgáfa mun líklega nota 302 hestafla turbó 2,0 lítra fjögurra strokka vélina sem er í M235i Gran Coupé.
Sex strokka vél kemur væntanlega í flaggskipinu M2 Coupé. Líklegt er að þar verði notuð útgáfa af 3.0 lítra og tveggja túrbó bensín línuvél, sex strokka, sem er í X3 M og X4 M jeppunum. Þessi mótor verður einnig notaður í næstu M3 og M4 gerðum.
M2 Coupé verður boðinn í venjulegri gerð og keppnisútgáfu.
Aflið verður líklega lokað við um 420 hestöfl til að halda M2 samkeppnishæfum við Mercedes-AMG A 45 og næsta Audi RS 3, svo og einnig til að tryggja að það sé bil á milli hans og M3 og M4 gerðanna. Sex gíra handskiptur gírkassi mun líklega verða í bílnum.
(frétt á vef Auto Express)



