Nýr 2024 Audi Q6 e-tron rafbíll á leiðinni

137
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR

Nýr 2024 Audi Q6 e-tron rafbíll á leiðinni

Audi hefur birt nýjar kynningarmyndir af næsta rafbíl sínum, 2024 Q6 e-tron rafdrifna sportjeppanum.

Þessar myndir sýna frumgerðir af nýja Q6 e-tron í prófunum norðarlega í Evrópu.

2024 Audi Q6 e-tron

Q6 e-tron er fyrsti rafbíllinn sem smíðaður er á nýja Premium Platform Electric (PPE) tæknigrunninum, sem Audi þróaði með Porsche. Hann er með 800 volta rafkerfi.

Audi hefur ekki gefið út neinar forskriftir, en þar sem Q6 e-tron mun deila palli sínum með Porsche Macan EV, gæti RS útgáfan verið um það bil 600 hestöfl og toppgerð Macan EV.

Q6 e-tron verður boðinn í tveimur útgáfum, rétt eins og Q8 e-tron og Q4 e-tron, sem koma í sportjeppa- og Sportback-útgáfum.

Audi hefur ekki gefið út hvenær 2024 Q6 e-tron verður frumsýndur. Q6 er aðeins byrjunin, þar sem Audi hefur staðfest að hann muni kynna meira en 20 nýjar gerðir árið 2025 og meira en tíu þeirra verða rafknúnar.

(frétt og myndir á vef TorqueReport)

Svipaðar greinar