Nýr 2022 Dacia Bigster mun færa fyrirtækið yfir á markað stærri jeppa
- Bigster jeppinn mun verða fyrstur til að fá nýtt merki vörumerkisins og verður stærsti bíll Dacia til þessa
- Bigster mun sitja fyrir ofan Duster jeppann í framboði Dacia
- Mun veita kaupendum mjög hagkvæman kost á stórum jeppamarkaði
Dacia ætlar að kynna þrjár nýjar gerðir árið 2025, en sú fyrsta kemur á næsta ári í formi stærri bróður Duster jeppans, sem kallast Bigster.
Nýi bíllinn mun færa framboð Dacia, sem fram að þessu hefur verið beint að ódýrari markaðshlutanum á ábatasamari markað, en samt mun það halda meginreglu vörumerkisins um að vera með nýja bíla fyrir kaupendur sem vilja halda utan um budduna.

Nýi Dacia Bigster jeppinn verður fyrsta gerðin sem kynnir með nýtt merki fyrirtækisins.
Dacia hefur þegar skráð merkið sem vörumerki, sem er með nýja leturgerð og mun birtast á nýjum gerðum fyrirtækisins.
Þetta er einnig hluti af mikilvægri endurskoðun fyrir fyrirtækið, sem nýlega hefur verið tekið inn í nýtt viðskiptakerfi innan Renault samstæðunnar.

Þegar bíllinn kemur á markað mun Bigster sitja fyrir ofan Duster í framboði fyrirtækisins sem flaggskip og verður fáanlegt með bæði „annarri orku“ og sem tengitvinnbíll.
Nýi bíllinn verður keppinautur meðalstórra jeppa, þar á meðal Skoda Karoq og Volkswagen Tiguan, en jafnframt óbeinn keppinautur stærri jeppa eins og Skoda Kodiaq.
Nýi bíllinn er byggður á CMF-B grunninum, sem hann deilir meðal Renault, Nissan og Mitsubishi. Bigster, sem er 4,6 metrar að lengd, verður stærsta Dacia-gerðin enn sem komið er.
Þrátt fyrir stærð sína hefur Dacia sagt að nýi bíllinn muni enn tákna gott gildi fyrir peningana, með verðmiða nær því sem er á minni jeppa: „Bigster er Dacia-leiðin til að gera C-stærðarflokkinn aðgengilegan og skila stærri og hæfari ökutæki á þeim kostnaði sem kaupendur myndu búast við.“

Framhlið bílsins er með grill í fullri breidd sem er með nýjustu útgáfuna af Y-laga ljósi Dacia. Hann er einnig með aðliggjandi LED ljósum í grillinu, sem hluta af ljósastikunni að framan.
Fyrir neðan þetta er stuðari með stóru miðlægu grilli með lóðrétt op loftinntaka.

Horft frá hlið deilir Bigster nokkrum hönnunareinkennum með minni Duster jeppanum, svo sem breiða brettakanta sem hýsa stóra fimm arma álfelgur. Allur neðri hluti bílsins er með svartar plastklæðningar.

Að aftan eru Y-laga afturljós ásamt einfaldir útlitshönnun á afturhleranum sem er með stóra útgáfu af nýja Dacia-merkinu.
Móðurfyrirtæki Dacia, Renault, er að hefja sókn í flokkum fjölskyldubíla og meðalstórra jeppa og Bigster mun standa undir nafni með því að leika lykilhlutverk í þessari nýju fjölskyldu bíla.
CMF-B grunnurinn veitir Dacia aðgang að fjölmörgum aflrásum fyrir Bigster. Miðað við stærð bílsins er ólíklegt að hann verði boðinn með SCe 65 valkostinn sem er vélin í ódýrasta Sandero og nýi bíllinn byrjar líklega með túrbóvél TCe 90.
Öflugri vélar gætu verið fengnar frá Captur, með öflugri 1,3 lítra fjögurra strokka TCe 130 vél sem er 128 hestöfl.
Dacia hefur einnig gefið í skyn að Bigster verði fáanlegur með BiFuel bensín / LPG drifbúnaði eins og minni Sandero, en kynning á tvinnrænum aflrásum í framboði Dacia er ný áhersla fyrir Bigster.
Valkostir fela í sér 1,6 lítra fjögurra strokka tvinndrifstæki sem er í Clio E-Tech og er 138 hestöfl.
Renault hefur einnig staðfest að ný tvinnræn drifrás sem er hönnuð með jeppa í huga sé í þróun fyrir árið 2022. Þessi drifrás notar 1,2 lítra túrbó, þriggja strokka vél og getur verið allt að 200 hestöfl.

En við verðum að bíða enn um sinn eftir þessum nýja jeppa frá Dacia, Bigster gæti haft mikið að segja fyrir kaupendur sem leita að hagkvæmari stórum jeppa.
(fréttir á vefsíðum Carbuyer og Auto Express)



