Nýja „rafmagns rúgbrauðið“ frá VW kemur í mars

136
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR

Nýja „rafmagns rúgbrauðið“ frá VW kemur í mars

Forstjóri VW Herbert Diess sendi frá sér á Twitter skissu af útlínum nýrrar hönnunar „rúgbrauðsins“, sem byggir á línum upprunalegu gerðarinnar

Samkvæmt fréttum frá Bloomberg og Reuters ásamt vefsíðu Automotive News Europe ætlar Volkswagen Group að afhjúpa ID Buzz þann 9. mars; rafknúinn bíl sem byggir á gamla „rúgbrauðinu“ frá hippatímanum.

Forstjórinn Herbert Diess tilkynnti dagsetninguna í Twitter-færslu þar sem útlínur nýju hönnunarinnar voru teiknaðar upp, sem líkjast mjög línum upprunalega bílsins.

Færsla Herbert Diess á Twitter

Upprunalega „rúgbrauðið“ frá VW – litríki, sendibíllinn sem var algeng sjón á sjöunda áratugnum á tónlistarhátíðum þar á meðal Woodstock – á sér marga og dygga aðdáendur.

VW hafði sagst áður ætla að selja rafdrifinn arftaka bílins í Evrópu og Bandaríkjunum.

Rafdrifna frumgerðin sást í prófunum í Þýskalandi síðasta sumar.

ID Buzz er ein „mest eftirsótta og mest spennandi“ gerðin sem væntanleg hefur verið frá VW vörumerkinu síðan fyrirtækið setti nýju bjölluna sína á markað seint á tíunda áratugnum, sagði Scott Keogh, yfirmaður Volkswagen í Norður-Ameríku á fjölmiðlafundi á netinu.

VW hefur sýnt röð frumgerða fyrir nýja „Microbus“, eins og hann er almennt kallaður hjá öðrum, undanfarinn áratug. En þessir sýningarbílar – Budd.E og Bulli – komust aldrei í framleiðslu, aðdáendum bílsins til gremju, en hér má sjá nýjasta hugmyndabílinn ásamt „frumgerð“ rúgbrauðsins.

Keogh sagði að þriggja sætaraða útgáfa af ID.Buzz muni koma á markað í Bandaríkjunum, þar sem upprunalega rúgbrauðið varð táknmynd friðarsinna, síðla árs 2023 eða snemma árs 2024.

VW mun setja tveggja sætaraða útgáfu á markað í Evrópu.

Fram að þessu höfum við aðeins fengið að sjá hugmyndabílinn ID Buzz, sem er hér á myndinni, en endanlega útgáfan kemur í ljós í mars.

VW hefur hafið metnaðarfulla sókn til að velta Tesla úr sessi sem leiðtoga rafbílasölu á heimsvísu.

Þýski bílaframleiðandinn varði í síðasta mánuði 89 milljörðum evra til rafbíla- og hugbúnaðarþróunar fyrir næstu fimm árin og hefur byggt upp sérstakan grunn bíla sem mun standa undir samtals 27 rafknúnum gerðum í lok þessa árs.

[Bloomberg, Reuters ásamt vefsíðu Automotive News Europe]

Svipaðar greinar