Þessi Nova hefur farið í gegnum algera „Frame Off“ endurbyggingu þar sem engu hefur verið til sparað. Bíllinn er sprautaður í djúpum svörtum lit (Jet Black) og er með SS útlitspakka og 18 tommu felgum frá 3030 Autosport.








Undir húddinu er GM LS3 6, 2L V8 vél með rafrænu innspýtingarkerfi og með ryðfríum útblástursgreinum.
Aflinu er skilað til hjólanna í gegnum 4 þrepa 4L80E sjálfskiptingu og 12 bolta afturdrif með Posi Traction og hlutfallinu 3.73:1.








Sérlega sportlegir bílar
Meðal annars búnaðar má nefna: Vintage loftkælingu, nýjr bensíntankur, ryðfrítt útblásturskerfi, Baer diskabremsur á öllum hjólum, álvatnskassi og ryðfrítt Pypes tvöfalt útblásturskerfi með „crossover“.

Að innan er þessi Nova með glænýtt innréttingarsett í upprunalegum stíl. Þar eru svartir vinylklæddir stólar að framan, bekkur aftur í og svart gólfteppi.
Mælaborðið er með Dakota Digital mælum, Autosound Bluetooth útvarpi, Vintage Air loftkælingu, fiber klæddu skotti, vökva og veltistýri og í miðjustokknum má finna klassíska „Staple Shifter“ gírstöng.







Yngra fólk keypti
Chevrolet Nova var upprunalega hannaður sem lítill, einfaldur og ódýr bíll, en á sjöunda áratugnum breyttist hann í sannkallaðan sportbíl þegar kaupendur fóru að velja stærri vélar á þessa annars nettu grind.
Árið 1970 var Nova orðinn einn vinsælasti „muscle car“ kosturinn fyrir þá sem vildu kraft og hraða á við Camaro eða Chevelle, en á lægra verði og léttari grind.

Margir ungir bílakaupendur á þessum tíma keyptu Nova þar sem hann var ódýr í grunninn, en gátu pantað hann með stórum V8 vélum og þannig fengið flotta græju með miklu afli og lágu þyngdarhlutfalli.
Algengt var að menn keyptu sér Nova með lítilli vél fyrst – og settu svo stærri vél í hann þegar fjárhagurinn leyfði.

Leynir á sér
„Sleeper“ Nova: Vegna þess hve lítill og látlaus hann var, notuðu margir ökuþórar Nova í götukeppnir. Þeir héldu honum útlitslega eins og venjulegum fjölskyldubíl, en settu í hann 350 eða 396 cid vélar – og komu þannig keppinautum á óvart á þegar spænt var af stað á grænu ljósi.

Lítið pláss, stór sál: Nova fékk stundum viðurnefnið „No va“ á spænskum mörkuðum, sem þýðir bókstaflega „fer ekki“, og olli það Chevrolet vandræðum í markaðssetningu í Rómönsku Ameríku.
Bíllinn stóð sig hins vegar svo vel og þótti flottur að hann varð aðdráttarafl ungs fólks sem vildi vera á flottum bíl sem hægt væri að spyrna á.

Chevrolet Nova 1970
Framleiðsluár: 1970 (þriðja kynslóð Nova, 1968–1972)
Framleiðandi: Chevrolet (General Motors)
Grunnverð: Um 2,200 USD nýr (fer eftir vél og búnaði)
Heildarfjöldi framleiddra 1970 Nova: Um 315,000 eintök
– þar af voru margir með sex strokka vélum, en V8 gerðirnar orðnar mjög vinsælar.

Helstu vélar í boði árið 1970
✅ 250 cid (4.1L) línu-6
155 hö
Grunnvélin í mörgum bílum, einföld og endingargóð.
✅ 307 cid (5.0L) V8
Um 200 hö
Mjúk, áreiðanleg V8 vél fyrir daglegt akstur.
✅ 350 cid (5.7L) V8
Í SS (Super Sport) útgáfum var hún vinsælust.
Framleiddi allt að 300 hö með 4-barrel Rochester fjögurra-gata blöndung.
Gaf bílnum alvöru „muscle car“ karakter og mikinn kraft miðað við þyngd.
✅ 396 cid (6.5L) V8 (big block)
Árið 1970 var hægt að fá Nova SS með 396 vél (þó hún væri reyndar merkt sem 375 hö, var raunafl stundum hærra).
Þessi vél gerði Nova að einum hröðustum bílnum í sínum flokki og keppinaut við Chevelle SS 396.

Byggt á sölulýsingu vef Vanguard Motor Sale.
Umræður um þessa grein