Þriðjudagur, 19. ágúst, 2025 @ 15:22
Bílablogg
Advertisement
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt

Mótorbaninn mikli

Jón Helgi Þórisson Höf: Jón Helgi Þórisson
24/06/2022
Flokkar: Umferð
Lestími: 3 mín.
288 9
0
142
DEILINGAR
1.3k
SMELLIR
Deila á FacebookDeila á Twitter

Mótorbaninn mikli

Í gegnum tíðina hefur undirritaður komið að málum sem varða bílmótora sem hafa beðið bana í einhverju vatnsfalli.

Þetta gerist jafnan þegar verið er að fara yfir vað í lækjum, ám og fljótum en eitt vað kemur oftar við sögu en önnur. Það vað er í Landmannalaugum.

Þeir eru vel á annan tug mótorarnir sem undirritaður veit um sem hafa stimplað sig út annað hvort strax eða fljótlega á eftir að mótornum svelgdist á og drap á sér í vaðinu. Því fer víðs fjarri að undirritaður frétti af öllum tilfellunum sem þarna verða.

Jafnvel mánuðum seinna hafa mótorar gefið sig að sögn eigenda bílaleigna ef ekkert er gert við þá.

Það sem gerist er að stimpilstöng bognar og liðast í sundur fyrr eða síðar. Svo brýtur brotna stimpilstöngin sér leið út úr vélarblokkinni eða olíupönnunni og smurolían puðrast út um allt. Mjög hávær, óþægileg og sóðaleg lífsreynsla fyrir eigendur og ökumenn.

Stundum sleppur þetta alveg ef það fer ekki nægilega mikið vatn inn í brunahólfið til að fylla það og mótorinn drepur á sér áður en skaðinn er skeður. En líklega vita flestir að vatn þjappast ekki saman svo ef það er meira vatn en rúmast fyrir í brunahólfinu í toppstöðu stimpilsins í þeim sama strokk þá stöðvast stimpillinn snarlega á þeim stað sem vatnsmagnið fyrir ofan hann leifir.

En sveifarásinn snýst áfram og beygir viðkomandi stimpilstöng.

En vindum okkur aftur að vaðinu í Landmannalaugum Vaðið er nokkuð djúpt en það er víst hægt að komast klakklaust í gegnum það á flestum hærri bílum og jafnvel fólksbílum ef ökumaðurinn fer varlega og veit hvað hann er að gera.

Það hafa verið sett grjót fyrir neðan vaðið sem dýpkar það en það er spurning hvort það megi ekki fækka grjótunum svo það verði grynnra? Svo mætti kannski setja upp skilti sem varar ferðamenn á bílaleigubílum við að fara yfir þetta vað enda þurfa þeir að greiða fyrir skemmdirnar ef einhverjar verða.

En af hverju skemmast svo margar bílvélar einmitt í þessu vaði? Það er mikill fjöldi af bílum sem fer yfir þetta vað á hverju sumri sem kann að vera ein skýringin. Önnur skýring er að þetta vað lítur mjög sakleysilega út og þá freistast ökumaðurinn til að keyra beint yfir og of hratt. Þriðja skýringin gæti verið að þegar þú ert kominn svona nálægt þá gleymir þú þér og lætur bara vaða til að komast sem fyrst yfir árnar.

En kannski er bara best að vera ekkert að þvælast yfir vaðið og leggja á bílastæðinu sem komið er að áður en komið er að vaðinu.

Það er ekki nein dagleið í labbi frá bílastæðinu að skálanum.

Reyndar eru vöðin tvö  og stutt á milli þeirra. Þetta má sjá greinilega í eftirfarandi myndbandi en vinsamlega akið ekki svona yfir vöðin ef þið eruð á smærri bílum en þeim sem sjást hér láta sig vaða yfir. Þessi jeppar eru með loftinntakið við efri brún framrúðu og ofar og gætu nánast farið á kaf í vatn og samt komist yfir.

Það gengur ekki á slyddujeppum og öðrum jepplingum.

[Greinin birtist fyrst í ágúst 2021]
Fyrri grein

Nýr 2022 Volkswagen Amarok pallbíll á leiðinni

Næsta grein

Kia Sportage: Svona á tvinnbíll að vera!

Jón Helgi Þórisson

Jón Helgi Þórisson

Bifvélavirki og blaðamaður

Svipaðar greinar

Auðvitað eru bíleigendur hundfúlir með kílómetragjaldið

Auðvitað eru bíleigendur hundfúlir með kílómetragjaldið

Höf: Pétur R. Pétursson
27/03/2025
0

Við settum í gang könnun um kílómetragjaldið. Þetta gjald hefur verið mikið í umræðunni frá því það var innleitt um...

Hvað gerist í árekstri á 100 km. hraða?

Hvað gerist í árekstri á 100 km. hraða?

Höf: Pétur R. Pétursson
17/04/2024
0

Miðað við fjölda ökumanna, umferðarþunga og ástands vega mætti ætla að hér ættu að vera fleiri umferðarslys en raun ber...

Hversu öruggur er bíllinn þinn?

Hversu öruggur er bíllinn þinn?

Höf: Pétur R. Pétursson
08/01/2024
0

Spáum við í það hversu öruggur eða ekki bíllinn er sem við ætlum að festa kaup á? Nú á tímum...

Tesla innkallar meira en 2 milljónir bíla í Bandaríkjunum vegna öryggisgalla sjálfstýringar

Tesla innkallar meira en 2 milljónir bíla í Bandaríkjunum vegna öryggisgalla sjálfstýringar

Höf: Jóhannes Reykdal
16/12/2023
0

Innköllunin er afleiðing margra ára langrar gallarannsóknar NHTSA í Bandaríkjunumsem verður áfram opin þar sem stofnunin fylgist með virkni lagfæringa...

Næsta grein
Kia Sportage: Svona á tvinnbíll að vera!

Kia Sportage: Svona á tvinnbíll að vera!

Umræður um þessa grein

Greinaflokkar

  • Aðsent
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Fréttatilkynning
  • Hugmyndabílar
  • Kynning
  • Mótorsport
  • Ritstjórn
  • Tækni
  • Umferð

Tögg

Cadillac Eldorado e power Hyundia Ioniq 6 klassík lögreglubílar mahindra Rafgmagnsbíll rafhlöður rafmagn Rafmagnsbíll Shanghai sjúkrabílar tata World car of the year

Óháður bílavefur

Bílablogg.is er sjálfstætt starfandi fjölmiðill sem skrifar með þarfir lesenda í huga. Við leggjum metnað okkar í að reynsluaka nýjum bílum og flytja fréttir af því helsta sem er að gerast í bílaheiminum, bæði heima og erlendis.

Greinar

  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð

Reynsluakstur

  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar
  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar

Nýjustu færslurnar

Álit

Volkswagen ID.Buzz GTX – fortíðin mætir nútímanum

18/08/2025
Bílaframleiðsla

Nýr rafknúinn Nissan Micra

18/08/2025
Bílaframleiðsla

Nýr Skoda Octavia Electric er forsýndur með Vision O hugmyndabílnum

05/08/2025

2023 © Bílablogg.is • Allur réttur áskilinn • Bílablogg sf • Kt. 5911211460

Welcome Back!

Skráðu þig inn á aðganginn þinn

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband

© 2022 Bílablogg sf. - Allur réttur áskilinn.