Morgan Plus Four – sportbíll í „gamla stílnum“

136
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR

Morgan Plus Four – sportbíll í „gamla stílnum“

-fyrsti bíll fyrirtækisins sem er með fjögurra strokka túrbó vél

Einn þeirra bíla sem átti að kynna á bílasýningunni í Genf hefur verið kynntur formlega. Þetta er sportbíll í anda „gömlu“ opnu sportbílanna – Morgan Plus Four, sem við höfum fjallað lítillega um hér áður á vefnum.

Plus Four er tveggja sæta „roadster“ sportbíll, sem þessi gamalgróni sportbílaframleiðandi framleiðir á Bretlandi. Bíllinn er smíðaður á nýja álpalli fyrirtækisins í stað undirvagns með stigaramma sem er á útleið.

Vélin í bílnum er fjögurra strokka eining frá BMW sem gefur 255 hestöfl.

Frammistaðan hefur verið færð „á alveg nýtt stig.“

Eftir stöku smáfréttir í síðustu viku hefur Morgan afhjúpað hinn nýi Plus Four sportbíl. „Við notum nánast allt nýtt hér, þar sem ökutækið deilir aðeins þremur prósentum íhluta með forveranum og nafnbreytingin frá Plus 4 í Plus Four kemur til með að endurspegla þetta.

Eins og fram kom hér að framan situr þessi nýi bíll á undirvagni úr áli og verður fyrsti bíll vörumerkisins til að nota fjögurra strokka vél með forþjöppu.

Það er þekkt 2,0 lítra túrbó-fjögurra strokka frá BMW, sem í þessum bíl býr til 255 hestöfl (190 kW) og allt að 400 Newton metra tog.

Það svífur glæsileiki horfinna ára enn yfir þessum nýja Morgan Plus Four. Það vantar eiginlega bara gömlu góðu leðurreimina sem var spennt yfir húddið á þeim gömlu!
Hér sést vel munurinn á undirvagninum á gamla bílnum og þeim nýja – sá nýi er nær á myndinni.

Svipaðar greinar