Föstudagur, 19. september, 2025 @ 12:24
Bílablogg
Advertisement
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt

Mitsubishi Motors Europe kynnir nýjan 100% rafmagnaðan Eclipse Cross

Jóhannes Reykdal Höf: Jóhannes Reykdal
19/09/2025
Flokkar: Bílaframleiðsla, Bílaheimurinn, Fréttatilkynning
Lestími: 5 mín.
279 5
0
136
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR
Deila á FacebookDeila á Twitter

Mitsubishi Motors Europe frumsýndi í gær, 17. september, nýjan Eclipse Cross, 100% rafmagnsjeppling fyrir Evrópumarkað. Bíllinn er í flokknum C-SUV þar sem mesta samkeppnin ríkir og markar mikilvægt skref í rafvæðingu Mitsubishi.

Hannaður í Evrópu, fyrir Evrópu sameinar alrafmagnaður Eclipse háþróaða aflrásartækni, djarfa hönnun, nýjustu stefnur og strauma í stafrænum lausnum til að mæta kröfum notenda í þessum stærsta ökutækjaflokki Evrópu.

Hlynur Hjartarson Vörustjóri Mitsubishi og Magnea Björg Jónsdóttir samfélagsmiðlasérfræðingur ásamt nýjum Eclipse Cross í Brussel

Mikilvægur áfangi fyrir Mitsubishi í Evrópu

Nýr Eclipse Cross markar endurkomu Mitsubishi Motors á evrópskan rafbílamarkað á eftir brautryðjandanum i-MiEV – fyrsta fjöldaframleidda rafbíl heims. Bíllinn kemur fyrst með 87 kWh rafhlöðu sem verður með áætlaða WLTP drægni yfir 600 km, en meðaldræg útgáfa bætist við seinna á árinu 2026. Hraðhleðslumöguleikar allt að 150 kW tryggja áhyggjuleysi í daglegum akstri sem og á löngum ferðum.

Framleiðsla hefst í lok árs 2025 í Douai-verksmiðjunni í Frakklandi, þar sem hann bætist í endurnýjað vöruúrval Mitsubishi í Evrópu sem inniheldur einnig Outlander PHEV og nýjan Grandis. Eclipse Cross mun gegna lykilhlutverki í vexti Mitsubishi í álfunni en fyrirtækið hefur jafnframt tilkynnt endurkomu sína á belgíska markaðinn.

Djörf hönnun og hagnýtt notagildi

Nýr Eclipse Cross endurspeglar nýjustu hönnunarstefnu Mitsubishi með þróaðri Dynamic Shield concept framhlið og áberandi Wide Hexagon formum. Sportlegt útlitið er undirstrikað stílhreinu litavali og 19” eða 20” álfelgum. Fyrir þá sem vilja verður einnig hægt að fá hann tvílitan.

Að innan sameinar hann hagnýta eiginleika og fágun. Stórt rafstýrt glerþakið gerir ökumönnum kleift að stjórna birtustigi með einum hnappi og það ættu allir að finna lit við hæfi með 48 lita LED-stemmingslýsingunni. Farangursrýmið (allt að 1.670 lítrar) og fjölbreytt úrval aukabúnaðar tryggja að bíllinn hentar jafnt fjölskyldufólki og öðrum sem þurfa gott pláss á ferðalögum.

Tækni fyrir tengda framtíð

Stafrænar lausnir eru í fyrirrúmi í nýjum Eclipse Cross. Með Google stýrikerfi hafa ökumenn aðgang að Google Maps, Google Assistant og fjölbreyttu úrvali öppum í gegnum Google Play.

Þráðlaust Apple CarPlay og Android Auto er einnig í boði. Reglulegar hugbúnaðaruppfærslur í gegnum netið halda kerfum uppfærðum. Mitsubishi Motors smáforritið gerir notendum kleift að skoða upplýsingar um bílinn í rauntíma t.d. um stöðu rafhlöðu.

Eclipse Cross verður fáanlegur með Harman & Kardon hljóðkerfi sem tryggir fyrsta flokks upplifun þegar hlustað er á tónlist eða spjallþætti.

Öryggi, þægindi og traust

Nýr Eclipse Cross er útbúinn nýjustu öryggis- og akstursaðstoðarkerfum Mitsubishi. Hann byggir á sterkri og öruggri burðarvirkishönnun með háþróaðri höggvörn og rafhlöðuvernd. Allt að 20 öryggis- og aðstoðarkerfi (ADAS) eru í boði, þar á meðal MI-PILOT hálfsjálfvirkt aksturskerfi, sjálfvirk neyðarhemlun, Blind punkts viðvörun og skynvæddur hraðastillir með akreinamiðjun.

Framúrskarandi ábyrgð

Eclipse Cross kemur að sjálfsögðu með 8 ára ábyrgð. Rafhlaðan sjálf er tryggð í 8 ár eða allt að 160.000 km. Þetta undirstrikar sjálfstraust Mitsubishi á eigin tækni og skuldbindingu gagnvart viðskiptavinum sínum.

Sjálfsörugg framtíðarsýn

„Nýr Eclipse Cross er mikilvægur áfangi fyrir Mitsubishi Motors í Evrópu,“ sagði Frank Krol, forstjóri Mitsubishi Motors Europe. „Þetta er fyrsti 100% rafmagnsjeppinn okkar fyrir þennan markað, hann sameinar það besta úr hönnun, tækni og verkfræði – og gegnir lykilhlutverki í ferðalagi okkar inn í rafmagnaða framtíð.

(Fréttatilkynning frá Heklu)

Fyrri grein

Verður seinkun á rafknúnum VW Golf?

Jóhannes Reykdal

Jóhannes Reykdal

Ritstjóri og blaðamaður

Svipaðar greinar

Verður seinkun á rafknúnum VW Golf?

Verður seinkun á rafknúnum VW Golf?

Höf: Jóhannes Reykdal
18/09/2025
0

Talið að VW fresti rafknúnum Golf þar sem niðurskurður tefur endurbætur á verksmiðjunni Samkvæmt frétt frá Bloomberg stendur Volkswagen frammi...

Flaggskipið Ranger Rover SV klætt í svart í tilefni afmælisins

Flaggskipið Ranger Rover SV klætt í svart í tilefni afmælisins

Höf: Pétur R. Pétursson
13/09/2025
0

Land Rover á Íslandi fær innan fárra vikna í sýningarsalinn við Hestháls glæsilega nýja útgáfu af flaggskipi merkisins, sem ber...

Bíll byggður á Hyundai Concept Three kemur á markað árið 2026

Bíll byggður á Hyundai Concept Three kemur á markað árið 2026

Höf: Jóhannes Reykdal
11/09/2025
0

Hyundai stefnir að markaði lítilla rafbíla í Evrópu með rafknúnum hlaðbak með Ioniq-merkinu MÜNCHEN — Hyundai stefnir að því að...

Kia sýnir breitt úrval rafbíla á IAA Mobility í München

Kia sýnir breitt úrval rafbíla á IAA Mobility í München

Höf: Pétur R. Pétursson
10/09/2025
0

IAA Mobility er haldið dagana 8.–14. september í München, Þýskalandi. Ein stærsta sýning í heimi Kia kynnir víðtækt úrval rafbíla...

Greinaflokkar

  • Aðsent
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Fréttatilkynning
  • Hugmyndabílar
  • Kynning
  • Mótorsport
  • Ritstjórn
  • Tækni
  • Umferð

Tögg

Cadillac Eldorado e power Hyundia Ioniq 6 klassík lögreglubílar mahindra Rafgmagnsbíll rafhlöður rafmagn Rafmagnsbíll Shanghai sjúkrabílar tata World car of the year

Óháður bílavefur

Bílablogg.is er sjálfstætt starfandi fjölmiðill sem skrifar með þarfir lesenda í huga. Við leggjum metnað okkar í að reynsluaka nýjum bílum og flytja fréttir af því helsta sem er að gerast í bílaheiminum, bæði heima og erlendis.

Greinar

  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð

Reynsluakstur

  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar
  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar

Nýjustu færslurnar

Bílaframleiðsla

Mitsubishi Motors Europe kynnir nýjan 100% rafmagnaðan Eclipse Cross

19/09/2025
Bílaframleiðsla

Verður seinkun á rafknúnum VW Golf?

18/09/2025
Álit

MG EHS PHEV – samspil fegurðar, þæginda og hagkvæmni

15/09/2025

2023 © Bílablogg.is • Allur réttur áskilinn • Bílablogg sf • Kt. 5911211460

Welcome Back!

Skráðu þig inn á aðganginn þinn

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband

© 2022 Bílablogg sf. - Allur réttur áskilinn.