Laugardagur, 28. júní, 2025 @ 21:54
Bílablogg
Advertisement
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt

Meira af hrelli Elon Musk

Malín Brand Höf: Malín Brand
12/02/2022
Flokkar: Bílaheimurinn
Lestími: 4 mín.
270 14
0
136
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR
Deila á FacebookDeila á Twitter

„Mér finnst óhugguleg tilhugsunin um að einhver vitfirringur gæti skotið mig niður,“ skrifaði stofnandi og forstjóri Tesla, Elon Musk í skilaboðum til ungs manns. Ungi maðurinn, sem er nemandi á fyrsta ári í háskóla, er nú í essinu sínu eftir að hafa gert opinber samskipti sín við Musk.

Fjallað var stuttlega um hinn nítján ára gamla Jack Sweeney hér á Bílabloggi í gærmorgun og má lesa þá grein HÉR.

Í fáum orðum snýst þetta um að Sweeney notar „botta“ til að halda utan um allar þær flugferðir sem Musk fer með einkaþotu sinni. Bottinn er forritaður til að birta upplýsingarnar á Twitter og þannig geta þeir sem vilja, fylgst nákvæmlega með ferðum forstjóra Tesla.

Skjáskot af síðunni umdeildu á Twitter.

Auk þess er fylgst með þeim flugvélum sem tengjast Musk og þannig má sjá með hvar lykilmenn Tesla gætu verið á ferðinni. Þetta líkar Musk ekki. Hver kærir sig svo sem um að upplýsingar – sem þó eru aðgengilegar, sé grafið eftir þeim – um nánast hvert ferðalag birtist út um allt?

Skráir ferðir forsetans og líbanskra stjórnmálamanna

Sweeney hefur, sem fram kom í fyrri grein, gríðarlegan áhuga á öllu því sem tengist Musk og Tesla. Hann virðist gjörsamlega gagntekinn af þessu, eða eins og sagt var hér áður fyrr; hann er  „með þetta á heilanum“.

Áhrifamenn virðast sérstaklega vekja áhuga unga mannsins og má þar til dæmis nefna Jeff Bezos, Bill Gates,  Bandaríkjaforseta og Donald nokkurn Trump. Fjölskylda Elon Musk er að sjálfsögðu vöktuð, sem og vélar á vegum æðstu manna flughersins, forsetans, Nasa og svo vélar sem tengjast líbönskum stjórnmálamönnum.  

Sweeney er hugsanlega kominn á býsna hættulega braut, einkum eftir að hann komst í sviðsljósið út af samskiptunum við Elon Musk. En nú er undirrituð komin fram úr sjálfri sér.

Elon Musk hefur samband

Í síðasta mánuði voru þeir Sweeney og Musk í samskiptum. Musk hafði samband við stráksa eftir að hann áttaði sig á kortlagningu allra sinna ferða og í upplýsingum um ferðirnar í rauntíma. Þá skrifaði hann þau orð sem greinin hófst á: „Mér finnst óhugguleg tilhugsunin um að einhver vitfirringur gæti skotið mig niður,“ skrifaði Musk í skilaboðum til Sweeney.

Því næst bauð Musk þessum nítján ára pilti 5.000 dollara (um 660.000 kr.) fyrir að taka þetta bottadrasl niður sem skráði upplýsingar um hann og fyrirtækið.

Skjáskot/Twitter@fox35orlando

Í sjónvarpsviðtali, sem sjá má fyrir neðan greinina og birtist fyrir um sólarhring síðan, sagði Sweeney um þetta: „Þetta var bara sturlað allt saman. Ég átti bágt með að trúa þessu. Hann spurði mig hvort ég gæti ekki bara hætt þessu […]. Hann sagði að kerfið mitt væri frumstætt og ég veit ekki hvað. Því næst bauð hann mér fimm þúsund dollara gegn því að ég hætti með kerfið og tæki það niður,“ sagði Sweeney sem ekki var nú aldeilis á því að henda öllu frá sér fyrir skitna fimm þúsund dollara.

Ein af athugasemdunum undir myndbandinu sem er hér neðst í greininni. Skjáskot/YouTube.

Sweeney færir sig upp á skaftið

Samskiptin sýndi hann fréttamanni, eins og sjá má í myndbandinu og þar með (ef rétt reynist en ekki tilbúningur eins og auðvitað gæti verið) gerði hann samskiptin við Musk opinber.

Nokkuð hróðugur sagði Sweeney svo: „ Ég er búinn að leggja mikla vinnu og tíma í að búa þetta kerfi til og ég hef líka notið þess. Þess vegna finnst mér fimm þúsund dollarar ekki sérlega mikill peningur í samanburði við þá ánægju og annað sem ég fæ út úr þessu.“

Þess vegna stakk stráksi upp á 50.000 dollurum (tæpar sjö milljónir króna) í stað 5.000 og Sweeney stakk líka upp á að hann fengi að koma í starfsnám hjá Musk.

Samningaviðræðurnar fjöruðu út og nú virðist Sweeney til í að gera eitt og annað til að viðhalda þeirri litlu glóð sem hann var farinn að hlýja sér við. Þetta er sérstakt en áfram fylgist drengurinn með ferðum fólksins gegnum bottana sína og það gera fjölmargir aðrir sömuleiðis.

Hér er viðtalið úr fréttunum sem birtist fyrir um sólarhring síðan: 

Fyrri grein

Ótrúlegt að bíll kæmist leikandi yfir Öxnadalsheiði

Næsta grein

Heltekinn táningur hrellir Elon Musk

Malín Brand

Malín Brand

Akstursíþrótta- og blaðamaður

Svipaðar greinar

Nýi Recon-jeppinn frá Jeep er að mótast sem Wrangler rafbílanna

Nýi Recon-jeppinn frá Jeep er að mótast sem Wrangler rafbílanna

Höf: Jóhannes Reykdal
28/06/2025
0

Breytingin í jeppaheiminum er mikil með tilkomu rafbílanna og Peter Johnson hjá electrek-vefnum í Bandaríkjunum var að birta grein um...

Kia EV3 GT-Line frumsýndur á Íslandi

Kia EV3 GT-Line frumsýndur á Íslandi

Höf: Pétur R. Pétursson
25/06/2025
0

Laugardaginn 28. júní kl. 12-16 í sýningarsal Kia að Krókhálsi 13 Við höfum beðið spennt eftir því að frumsýna loksins...

Nýr smart #5 frumsýndur á Íslandi

Nýr smart #5 frumsýndur á Íslandi

Höf: Jóhannes Reykdal
24/06/2025
0

Frumsýning laugardaginn 28. Júní kl. 12-16 í sýningarsal smart að Krókhálsi 11 Bílaumboðið Askja frumsýnir nýjan og alrafmagnaðan smart #5...

Af hverju er merkið á Audi fjórir hringir?

Af hverju er merkið á Audi fjórir hringir?

Höf: Jóhannes Reykdal
23/06/2025
0

Audi var stofnað árið 1909 en fékk ekki fjóra hringi fyrr en árið 1932. Við skoðum söguna… Ef einhver segði...

Næsta grein
Heltekinn táningur hrellir Elon Musk

Heltekinn táningur hrellir Elon Musk

Umræður um þessa grein

Greinaflokkar

  • Aðsent
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Fréttatilkynning
  • Hugmyndabílar
  • Kynning
  • Mótorsport
  • Ritstjórn
  • Tækni
  • Umferð

Tögg

Cadillac Eldorado e power Hyundia Ioniq 6 klassík lögreglubílar mahindra Rafgmagnsbíll rafhlöður rafmagn Rafmagnsbíll Shanghai sjúkrabílar tata World car of the year

Óháður bílavefur

Bílablogg.is er sjálfstætt starfandi fjölmiðill sem skrifar með þarfir lesenda í huga. Við leggjum metnað okkar í að reynsluaka nýjum bílum og flytja fréttir af því helsta sem er að gerast í bílaheiminum, bæði heima og erlendis.

Greinar

  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð

Reynsluakstur

  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar
  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar

Nýjustu færslurnar

Bílaframleiðsla

Nýi Recon-jeppinn frá Jeep er að mótast sem Wrangler rafbílanna

28/06/2025
Bílaheimurinn

Kia EV3 GT-Line frumsýndur á Íslandi

25/06/2025
Bílaframleiðsla

Nýr smart #5 frumsýndur á Íslandi

24/06/2025

2023 © Bílablogg.is • Allur réttur áskilinn • Bílablogg sf • Kt. 5911211460

Welcome Back!

Skráðu þig inn á aðganginn þinn

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband

© 2022 Bílablogg sf. - Allur réttur áskilinn.