Klettaklifur á nýjum Bronco
Bílablaðamaðurinn Greg Rasa sem skrifar fyrir Autoblog birtir tvö myndbönd af nánast óbreyttum Bronco sem ekið er um Rubicon Trail, 35 kílómetra torfærubraut í Nevada eyðimörkinni.
Myndöndin sem fyrst voru birt á spjallrás Bronco6G vefsins sýna klárlega hvernig tveir nýir Broncoar eru látnir skrapa grjótruðninga á þessari hrjúfu leið.
Um er að ræða Bronco Badlands í fjögurra dyra beinskiptri útgáfu en undir honum eru 33 tommu Goodyear MT dekk sem komið hefur verið fyrir á Ford Performance Bead Lock felgum. Umræddur bíll er með 4.70 gírhluföll.
Nánast óbreyttir bílar
Hinn Broncoinn er sjálfskiptur, tveggja dyra á orginal felgum en dekkin á honum eru 33 tommu BFG AT. Gírhlutföll á þeim bíl eru 4.46. Við reiknum með að sá sem tók upp þessi myndbönd hafi einfaldlega spurt þá Ford menn hver gírhlutföllinn væru á hvorum bíl – því þær upplýsingar virðast koma svona nokkurnveginn út í buskann.
En með öðrum orðum – þessir bílar eru nánast óbreyttir og ekki búnir hinum svokallaða Sasquatch pakka. Pakkinn sá innifelur 35 tommu dekk á 17 tommu Bead Lock felgur, læst mismunadrif að framan og aftan og Bilstein dempara svo eitthvað sé nefnt.
Hækkið í græjunum
Allavega – hér eru myndböndin ykkur til skemmtunar – takið eftir náunganum í bláa bolnum á síðara myndbandinu sem eyðilagði næstum daginn hjá sér með því að ganga í veg fyrir jeppann um leið og hann keyrir upp á grjótlagða brekkuna. Og hækkið svo í græjunum til að heyra þegar bílarnar skrapa grjótið.
Byggt á grein Autoblog og myndböndum frá Bronco6G



