Sunnudagur, 29. júní, 2025 @ 18:30
Bílablogg
Advertisement
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt

Hyundai nýtir möguleika næstu kynslóðar rafbíla með Ioniq 5

Jóhannes Reykdal Höf: Jóhannes Reykdal
23/02/2021
Flokkar: Bílaheimurinn
Lestími: 4 mín.
271 15
0
137
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR
Deila á FacebookDeila á Twitter

Hyundai nýtir möguleika næstu kynslóðar rafbíla með Ioniq 5

Nýi Ioniq 5 rafknúni krossover-bíllinn frá Hyundai lofar góðri hröðun, rúmgóðu innanrými og framúrstefnulegu stafrænu mælaborði – í einu orði sagt, allt sem er í nútíma rafbíl.

Ökutækið, sem kynnt var á þriðjudag, 23. febrúar, í sýndarveruleika, er upphafsgerð fyrir nýja kynslóð rafbíla sem Hyundai vonar að geri fyrirtækið að leiðandi í þessum flokki.

Ioniq 5 er með fyrstu útgáfuna af skeljalaga vélarhlíf frá Hyundai sem lágmarkar eyður í yfirbygginunni til að fá sem best loftflæði. Framstuðarinn er skilgreindur með V-lögun sem inniheldur dagljós. Þessir litlu ljóspunkta klasar birtast einnig aftast í ökutækinu.

Millistærðin er svar Hyundai við Tesla og vaxandi fjöldi keppinauta sem flæða inn í samkeppni rafbíla.

Ioniq 5 stendur greinilega jafn mikið fyrir útlitið og tæknina.

Ioniq 5 fær fyrstu skeljalaga vélarhlífina frá Hyundai Motor Group, sem lágmarkar glufur á yfirbyggingunni en bætir loftflæðið. Dagljósin búa til nýja V-laga ljósalínu, og á hliðinni, mynda innfelld hurðarhandföng svolítið Tesla-yfirbragð. Hreina, kantaða hönnunin að utan með stutt yfirhangi og löngu hjólhafi er ætlað að undirstrika auðkenni rafbílsins.

Sportleg hönnun

Ioniq 5 er einnig fáanlegur með „supersize“ 20 tommu felgum til að gefa sérstakt og sportlegt útlit.

3.000 mm hjólhafið gerði hönnuðum kleift að opna innréttinguna og búa til „búseturými“ í innanrýminu með hreyfanlegum miðjustokki sem getur runnið aftur sem nemur nærri 135 cm.

Ásamt sléttu gólfi er markmiðið mjög sérhannaðar innréttingar.

Hjólhafið er í raun lengra en á flaggskipi Hyundai, Palisade crossover. Og Hyundai segir að skipulagið hjálpi til við að skila innanrými bílsins yfir í sér stærri bíla.

Umhverfi ökumanns er með 12 tommu snertiskjá og 12-tommu stafræna mæla. Einnig er til staðar nýr „sprettiskjár“ í sjónlínu ökumanns („reality head-up“), sá fyrsti í bíl frá Hyundai.

Undir skeljalaga vélarhlífinni er ný rafknúin aflrás byggð í kringum tvo rafhlöðuvalkosti: langdræga 77,4 kílóvattstunda rafhlöðu og staðalagerð 58 kílóvattstunda rafhlöðu.

Báðir aflpakkar eru fáanlegir í annaðhvort tveggja hjóla eða fjórhjóladrifs útgáfum.

Drifrásin fær mótor að framan og aftan fyrir samanlagt afköst allt að 225 kílóvöttum; í tveggja hjóla útgáfu er aðeins með mótor að aftan, með afköstum annaðhvort 160 kílóvött eða 125 kílóvött, allt eftir rafhlöðunni.

185 km hámarkshraði og 480 km aksturssvið

Allar útgáfur af Ioniq 5 eru með hámarkshraða sem nemur 185 km/klst. Hvað varðar afköst nær stóra rafhlaðan, í fjórhjóladrifsútgáfunni, 0 til 100 km/klst á 5,2 sekúndum.

Þegar kemur að aksturssviðinu er Ioniq 5, með stærri rafhlöðunni og einum mótor að skila allt að 480 kílómetrum á fullri hleðslu.

Sú tala er dregin af evrópska staðlinum, „Worldwide Harmonized Light Vehicles Test Procedure“, og er talin betri en bandaríski staðallinn sem EPA setur.

Betri hraðhleðsla

Ioniq 5 getur stutt bæði 400 volta og 800 volta hleðslu, sem þýðir að hér er gert ráð fyrir betri hraðhleðslu. Með 350 kílóvatta hleðslutæki getur ökutækið endurhlaðið frá 10 til 80 prósent á 18 mínútum. Fimm mínútna hleðsla veitir 100 kílómetra akstursvegalengd, sagði Hyundai.

Ioniq 5 byggir á nýjum, sérstökum rafknúnum grunni sem Hyundai Motor Group kynnir fyrir Hyundai, Kia og Genesis vörumerkin. Kallað e-GMP, stytting á „Electric-Global Modular Platform“, og mun styðja framleiðandann í að selja 1 milljón rafbíla um allan heim árið 2025.

Það markmið mun ná til 23 rafknúinna gerða, þar á meðal afleiðna á rafbílum af gerðum sem einnig eru í boði með brunahreyflum. Ioniq 5 er fyrsta e-GMP nafnmerkið, en síðar á þessu ári mun Kia fylgja með eigin e-GMP crossover-bíl, kallaður CV. Hyundai vörumerkið ætlar að stækka línu rafbíla með Ioniq 6, rafknúnum fólksbíl, og Ioniq 7, stórum rafknúnum krossover.

Kemur í sölu á miðju ári

Hyundai gerir ráð fyrir að selja 70.000 Ioniq 5 ökutæki á þessu ári og 100.000 árlega frá og með 2022, sagði forstjóri Jaehoon Chang. Um 40 prósent af sölunni koma frá Evrópu og búist er við að um 30 prósent komi frá Norður-Ameríku.

Ioniq 5 verður fáanlegur á völdum mörkuðum þar á meðal Evrópu og Bandaríkjunum um mitt ár.

(Automotive News Europe – myndir frá Hyundai)

Fyrri grein

Staðfest að nýr Volkswagen ID.5 coupe-sportjeppi komi í framleiðslu

Næsta grein

Alvöru prófun á Ford Bronco Sport Badlands í Ameríku

Jóhannes Reykdal

Jóhannes Reykdal

Ritstjóri og blaðamaður

Svipaðar greinar

Novan var vinsæl á rúntinum í denn

Novan var vinsæl á rúntinum í denn

Höf: Pétur R. Pétursson
29/06/2025
0

Þessi Nova hefur farið í gegnum algera „Frame Off“ endurbyggingu þar sem engu hefur verið til sparað. Bíllinn er sprautaður...

Nýi Recon-jeppinn frá Jeep er að mótast sem Wrangler rafbílanna

Nýi Recon-jeppinn frá Jeep er að mótast sem Wrangler rafbílanna

Höf: Jóhannes Reykdal
28/06/2025
0

Breytingin í jeppaheiminum er mikil með tilkomu rafbílanna og Peter Johnson hjá electrek-vefnum í Bandaríkjunum var að birta grein um...

Kia EV3 GT-Line frumsýndur á Íslandi

Kia EV3 GT-Line frumsýndur á Íslandi

Höf: Pétur R. Pétursson
25/06/2025
0

Laugardaginn 28. júní kl. 12-16 í sýningarsal Kia að Krókhálsi 13 Við höfum beðið spennt eftir því að frumsýna loksins...

Nýr smart #5 frumsýndur á Íslandi

Nýr smart #5 frumsýndur á Íslandi

Höf: Jóhannes Reykdal
24/06/2025
0

Frumsýning laugardaginn 28. Júní kl. 12-16 í sýningarsal smart að Krókhálsi 11 Bílaumboðið Askja frumsýnir nýjan og alrafmagnaðan smart #5...

Næsta grein
Alvöru prófun á Ford Bronco Sport Badlands í Ameríku

Alvöru prófun á Ford Bronco Sport Badlands í Ameríku

Umræður um þessa grein

Greinaflokkar

  • Aðsent
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Fréttatilkynning
  • Hugmyndabílar
  • Kynning
  • Mótorsport
  • Ritstjórn
  • Tækni
  • Umferð

Tögg

Cadillac Eldorado e power Hyundia Ioniq 6 klassík lögreglubílar mahindra Rafgmagnsbíll rafhlöður rafmagn Rafmagnsbíll Shanghai sjúkrabílar tata World car of the year

Óháður bílavefur

Bílablogg.is er sjálfstætt starfandi fjölmiðill sem skrifar með þarfir lesenda í huga. Við leggjum metnað okkar í að reynsluaka nýjum bílum og flytja fréttir af því helsta sem er að gerast í bílaheiminum, bæði heima og erlendis.

Greinar

  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð

Reynsluakstur

  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar
  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar

Nýjustu færslurnar

Bílaheimurinn

Novan var vinsæl á rúntinum í denn

29/06/2025
Bílaframleiðsla

Nýi Recon-jeppinn frá Jeep er að mótast sem Wrangler rafbílanna

28/06/2025
Bílaheimurinn

Kia EV3 GT-Line frumsýndur á Íslandi

25/06/2025

2023 © Bílablogg.is • Allur réttur áskilinn • Bílablogg sf • Kt. 5911211460

Welcome Back!

Skráðu þig inn á aðganginn þinn

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband

© 2022 Bílablogg sf. - Allur réttur áskilinn.