Hyundai á Íslandi heldur upp á tuttugu ára afmæli sportjepplingsins Hyundai Tucson sem kom upphaflega á markað síðla árs 2004.
Síðan hafa verið framleiddar rúmlega sjö milljónir eintaka fyrir alla helstu markaði heims.
Laugardaginn 31. maí heldur Hyundai á Íslandi við Kauptún í Garðabæ upp á 20 ára afmæli Tucson með kynningu á sérstakri afmælisútgáfu bílsins ásamt því að bjóða gestum í pylsupartý og börnunum andlitsmálningu.
Sérkennandi afmælisútgáfa
Afmælisútgáfa Hyundai Tucson 20th Anniversary Edition í sýningarsalnum verður í möttum furugrænum lit með svörtum speglum og gluggaköntum og á 19 tommu satíngráum álfelgum.
Fáeinir aðrir litir verða einnig í boði á afmælisútgáfu bílsins, sem búinn er ríkulegri aukabúnaði en grunngerðin, svo sem svörtum leðursætum með textíl og furugrænum saumi, sérstakri hurðasyllu með afmælismerkinu sem einnig er á höfuðpúðum og utanverðum afturhlera svo nokkuð sé nefnt.
Í bílnum eru tveir 12,3“ stafrænir skjáir, annar fyrir mælaborð og hinn upplýsingasnertiskjáinn.
Einnig er í afmælisútgáfunni vandað hljóðkerfi með átta hátölurum auk bassahátalara frá Krell, þriggja svæða loftkæling auk upphitanlegra og loftræstra framsæta svo nokkuð sé nefnt.
252 hestafla PHEV
Hyundai á Íslandi býður afmælisútgáfu Tucson í aldrifinni tengiltvinnútfærslu (plug-in hybrid) við 1,6 lítra og 252 hestafla bensínvél við sjálfskiptingu og bíllinn allt að 63 km drægni á rafhlöðunni. Hægt er að kynna sér verð og mismunandi búnaðarútfærslur á öðrum gerðum Tucson í verðlista á hyundai.is.
Meðfylgjandi mynd er af Tucson af fyrstu kynslóð og nýja Tucson 20th Anniversary Edition sem Hyundai á Íslandi kynnir í takmörkuðu magni laugardaginn 31. maí.

Umræður um þessa grein