Hvað er hálfleiðari?

142
DEILINGAR
1.3k
SMELLIR

Hvað er hálfleiðari?

Síðastliðin tvö ár hafa sífellt borist fréttir af því að bílaframleiðsla hafi tafist vegna skorts á svonefndum „hálfleiðurum“ (semiconductors) – en hvað er þetta fyrirbæri hálfleiðari?

Hér er tilraun okkar til að útskýra málið:

Hægt er að skilgreina hálfleiðara sem efni sem hefur eiginleika og getu til að leiða lítið magn af rafstraumi.

Hálfleiðarar hafa mun lægra viðnám gegn flæði rafstraums í eina átt en í aðra. Grunn-rafeindaíhlutir eins og díóður, transistorar og margar ljósasellur innihalda hálfleiðandi efni.

Hægt er að stjórna rafleiðni hálfleiðara tækis yfir breitt svið, annað hvort varanlega eða á aflfræðilegan hátt.

Hvernig virka hálfleiðarar?

Hálfleiðarar hafa haft mikil áhrif á samfélag okkar. Þú finnur hálfleiðara í hjarta örgjörvakubba sem og smára (transistora). Allt sem er tölvustýrt eða notar útvarpsbylgjur fer eftir hálfleiðurum.

Í dag eru flestir hálfleiðarakubbar og smárar (transistorar) búnir til með sílikoni.

Þú gætir hafa heyrt orðatiltæki eins og „Silicon Valley” og „kísilhagkerfið“ – og þess vegna – er sílíkon hjarta hvers rafeindatækis.

Réttsælis ofan frá: Tölvukubbur („chip“), LED-ljós og smári (transistor) eru allir úr hálfleiðaraefni.

Svipaðar greinar