Föstudagur, 10. október, 2025 @ 3:21
Bílablogg
Advertisement
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt

Hugmyndabíll BMW sýnir „sjálfbæran bíl framtíðarinnar“

Jóhannes Reykdal Höf: Jóhannes Reykdal
08/09/2021
Flokkar: Bílasýningar
Lestími: 4 mín.
273 11
0
136
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR
Deila á FacebookDeila á Twitter
Litli hugmyndabíllinn, sem er ætlaður á markað 2040, verður smíðaður nánast alfarið úr endurvinnanlegu efni

BMW i Vision Circular hugmyndabíllinn er „forsýning á sjálfbærum bíl framtíðarinnar,“ fullyrti forstjórinn Oliver Zipse án þess að hika, við kynningu á bílnum á bílasýningunni í München.

Það er stór fullyrðing og skoðum nú aðeins hvað býr að baki orðum stjórans. Þar njótum við aðstoðar Automotive News Europe sem er með góðar tengingar beint inn á sýningarsvæðið í München.

Hugmyndin, i Vision Circular, byggir nánast eingöngu á endurvinnslu hráefna og endurnýtingu. Það kom fram í máli Zipse við afhjúpun bílsins á IAA München bílasýningunni á mánudag. Hafa ber í huga að hér er um framtíðarsýn framleiðandans að ræða en ekki áþreifanlegt ökutæki, þrátt fyrir að á myndunum sé eitthvað á fjórum hjólum. Hönnun bílsins, sem áætlaður er á markað 2040, liggur ekki fyrir.

Fjögurra sæta rafbíllinn endurspeglar sýn bílaframleiðandans á „sjálfbæran hreyfanleika“ (e. sustainable mobility), að sögn Zipse.

Forstjóri BMW, Oliver Zipse, kynnir hugmyndabílinn i Vision Circular á IAA bílasýningunni í München.

Hringrás orku og efna höfð að leiðarljósi

Hönnun bílsins byggir á því að nýta hráefni til fulls; endurnýta allt sem til fellur, t.d. eftir að vörur hafa gegnt hlutverki sínu í annarri mynd! Hringrás efna og orku er kjarni málsins og virkilega athyglisvert er að rafhlaða hugmyndabílsins, „Solid-state“ rafhlaðan, er sögð vera 100 prósent endurvinnanleg.

„Rafhlaðan nær mun meiri orkuþéttleika með minni nýtingu á verðmætustu auðlindunum,“ sagði BMW í yfirlýsingu.

Zipse sagði að hugmyndin sé ekki forsýning á væntanlegum rafbílum bílaframleiðandans sem byggist á arkitektúr „Neue Klasse“.

Þess í stað horfir BMW til smábíls í framtíðinni, út frá sjónarhorni i Vision Circular hugmyndafræðinni. Smábíls sem kemur á markað eftir tæp 20 ár. i Vision Circular er framtíðarsýn en, eins og fyrr sagði, ekki endilega áþreifanlegt ökutæki.

BMW i Vision Circular hugmyndabíllinn með grill í anda BMW en „nasalaust“ þó

„Það gleður okkur að sjá hve margir BMW aðdáendur bíða spenntir eftir fyrsta sýnishorninu af „Neue Klasse“, en BMW i Vision Circular er ekki það sýnishorn,“ sagði Zipse. „Ég get hins vegar lofað því að á grundvelli sjálfbærni er verið að þróa „Neue Klasse“ með sama hugarfari og var notað fyrir BMW i Vision Circular.“

Hönnunarstjóri BMW, Adrian van Hooydonk, sagði að hugmyndin endurspegli sýn bílaframleiðandans um að sameina sjálfbærni með nýrri „hringrásar hönnun“, nálgun sem skilur eftir sig lágmarks fótspor.

Hugmyndinni er ætlað að fækka íhlutum, efnishópum og yfirborðsvinnslu.

Nýrnagrillið (eða nasagrillið, eins og sum okkar kalla það) er ekki inni í framtíðarmyndinni. Af orðum hönnunarstjórans má ráða að bíllinn verði ekki málaður með þeim hætti sem jafnan hefur tíðkast og prjál á borð við leður og króm heyrir brátt sögunni til. Í það minnsta verður ekkert slíkt í framtíðarbílum BMW og það sama á við um bíla sænska framleiðandans Volvo.

4000 mm langi hugmyndabíllinn er á stærð við BMW i3 rafmagns hlaðbakinn. Í hönnuninni er blandað saman hönnun jeppa og fólksbíla.

BMW gaf engar tæknilegar upplýsingar um hugmyndabílinn, enda tæp tuttugu ár í að hann bruni fram á sjónarsviðið og eflaust margt sem á eftir að breytast fyrir árið 2040!

Fyrri grein

BL frumsýnir nýjan og breyttan Nissan Qashqai

Næsta grein

Svona væri hinn fullkomni rafbíll

Jóhannes Reykdal

Jóhannes Reykdal

Ritstjóri og blaðamaður

Svipaðar greinar

Nýr og alrafmagnaður Kia EV4 frumsýndur um land allt

Nýr og alrafmagnaður Kia EV4 frumsýndur um land allt

Höf: Pétur R. Pétursson
09/10/2025
0

Laugardaginn 11. október kl. 12-16 í sýningarsal Kia að Krókhálsi 13 og hjá umboðsaðilum Kia um land allt. Reykjavík, október...

Kíkti í BL um helgina og sá lúxusbíl á lægra verði en keppinautanna

Höf: Pétur R. Pétursson
05/10/2025
0

Renault Rafale var frumsýndur á Íslandi hjá BL um helgina og á, án efa eftir að vekja athygli fyrir að...

XPENG frumsýnir nýja G6 og G9 á Íslandi.

XPENG frumsýnir nýja G6 og G9 á Íslandi.

Höf: Pétur R. Pétursson
25/09/2025
0

Laugardaginn 27. september kl. 12-16 í sýningarsal XPENG að Vínlandsleið 6-8 Reykjavík, september 2025 – XPENG, eitt hraðast vaxandi rafbílamerki...

Bíll byggður á Hyundai Concept Three kemur á markað árið 2026

Bíll byggður á Hyundai Concept Three kemur á markað árið 2026

Höf: Jóhannes Reykdal
11/09/2025
0

Hyundai stefnir að markaði lítilla rafbíla í Evrópu með rafknúnum hlaðbak með Ioniq-merkinu MÜNCHEN — Hyundai stefnir að því að...

Næsta grein
Svona væri hinn fullkomni rafbíll

Svona væri hinn fullkomni rafbíll

Segðu okkur hvað þér finnst! Hætta við svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Greinaflokkar

  • Aðsent
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Fréttatilkynning
  • Hugmyndabílar
  • Kynning
  • Mótorsport
  • Ritstjórn
  • Tækni
  • Umferð

Tögg

Cadillac Eldorado e power Hyundia Ioniq 6 klassík lögreglubílar mahindra Rafgmagnsbíll rafhlöður rafmagn Rafmagnsbíll Shanghai sjúkrabílar tata World car of the year

Óháður bílavefur

Bílablogg.is er sjálfstætt starfandi fjölmiðill sem skrifar með þarfir lesenda í huga. Við leggjum metnað okkar í að reynsluaka nýjum bílum og flytja fréttir af því helsta sem er að gerast í bílaheiminum, bæði heima og erlendis.

Greinar

  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð

Reynsluakstur

  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar
  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar

Nýjustu færslurnar

Bílaframleiðsla

Nýr Kia PV5 mun keppa við VW ID Buzz

09/10/2025
Bílasýningar

Nýr og alrafmagnaður Kia EV4 frumsýndur um land allt

09/10/2025
Bílaframleiðsla

Kia Soul hættir framleiðslu eftir árgerð 2025

08/10/2025

2023 © Bílablogg.is • Allur réttur áskilinn • Bílablogg sf • Kt. 5911211460

Welcome Back!

Skráðu þig inn á aðganginn þinn

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband

© 2022 Bílablogg sf. - Allur réttur áskilinn.