Sunnudagur, 29. júní, 2025 @ 9:14
Bílablogg
Advertisement
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt

Hreinni framtíð hjá Kletti

Jóhannes Reykdal Höf: Jóhannes Reykdal
13/04/2024
Flokkar: Fréttatilkynning
Lestími: 5 mín.
282 11
0
140
DEILINGAR
1.3k
SMELLIR
Deila á FacebookDeila á Twitter

Klettur bauð nýverið viðskiptavinum á kynningu sem bar yfirskriftina Hreinni framtíð og var haldin í nýrri þjónustumiðstöð fyrirtækisins að Einhellu 1 í Hafnarfirði.

 „Hugmyndin að kynningunni kviknaði vegna áhuga bátageirans á nýrri rafknúinni vél frá Scania þannig að við ákváðum að sýna í heild sinni hvað við höfum að bjóða í tengslum við orkuskiptin en sýna um leið þann mikla árangur sem hefur náðst með þróun dísilvéla sem stöðugt hafa verið að minnka kolefnisspor sitt og skila hreinni útblæstri.

Enn fremur voru kynntar starfrænar lausnir sem hafa gagnast vel við að stuðla að aukinni skilvirkni í orkunotkun og rekstri,” segir Kristján Már Atlason, forstjóri Kletts.

Åsa Bennerstam, viðskiptastjóri hjá Scania, og Torben Dabrowski, sérfræðingur í orkuskiptalausnum bátavéla, sýndu hybrid-lausn fyrir báta sem samanstendur af öflugum rafmótor og dísilvél sem hægt er að keyra saman eða hvort í sínu lagi.

Búnaðurinn skilar framúrskarandi afli, minnkar útblástur og losun á CO2, sparar eldsneyti, dregur úr hávaða og lækkar rekstrarkostnað. Þetta er lausn sem hentar t.d. í hvalaskoðun, minni ferjur, þjónustu- og dagróðrabáta. 

Åsa Bennerstam, viðskiptastjóri hjá Scania, og Torben Dabrowski, sérfræðingur í orkuskiptalausnum bátavéla, sýndu hybrid-lausn fyrir báta.

Rafknúnir vörubílar frá Scania

Scania er með tvær gerðir rafknúinna vörubíla; annars vegar Urban til notkunar að mestu innanbæjar og hins vegar Regional sem býr yfir 350–400 km drægni, tekur meiri þunga og er með öflugustu fáanlegu hleðslueiginleika. Klettur er þegar kominn með Urban og von er á Regional sem vann Evrópsk verðlaun í desember sem umhverfisvænasti rafknúni vörubíllinn.

Super er ný vörubílalína frá Scania með nýrri 13 lítra dísilvél, nýjum gírkassa og driflínu. Mikil framþróun hefur orðið á dísilvélinni sem eyðir nú 8–10% minna eldsneyti en síðasta kynslóð.

Super vann Green Truck of the Year og var eyðslugrennsti flutningabíll Evrópu á síðasta ári.

„Við sjáum ekki að hægt sé á allra næstu árum að ýta dísiltrukkum alveg út af markaðnum en þá er mikilvægt að endurnýja elstu bílana því það skilar rekstrarhagræðingu og jákvæðum umhverfisáhrifum, bæði hvað varðar NOx og CO2, en níturoxið er nú orðið aðeins brot af því sem það var í eldri kynslóðum véla,“ segir Kristján Már.

Klettur býður upp á stafræna þjónustu bæði fyrir Scania og CAT. My Scania-appið er í raun flotastýringarkerfi sem hjálpar að minnka kolefnisspor, halda utan um viðhaldsþörf og hámarka nýtingu bílanna.

Sjálfvirkt niðurhal ökurita er í appinu og öll gögn geymd í skýjalausn Scania.

CAT VisionLink er skýjahýstur hugbúnaður sem auðveldar daglegan rekstur og viðhald Caterpillar atvinnutækja sem öll eru nettengd. Hægt er að fylgjast með eldsneytiseyðslu, lesa bilanakóða, sjá viðhaldsyfirlit o.fl.

Fyrsta hádrifs hybrid-jarðýtan

CAT D6XE er af nýjustu kynslóð G6 jarðýta og fyrsta hádrifs hybrid-jarðýtan á markaðnum. Hún byggir á dísil-electric tækni sem skilar allt að 50% eldsneytissparnaði borið saman við sambærilegar eldri vélar. Sífellt stærri CAT-lyftarar fara af dísil yfir í rafmagn og nýverið var meðal annars kynntur nýr 12 tonna rafmagnslyftari.

Meðal annarra tækja sem sýnd voru á kynningunni má nefna rafmagnsútfærslu af Ausa vélhjólbörum og rafknúinn liðléttingur frá MultiOne. Einnig var sýndur nýr rafmagnssorpbíl ásamt metanknúnum vörubíl frá Scania. Klettur á farsæla sögu í sölu á metanbílum. Nýju húsakynnin hjá Kletti vöktu hrifningu gesta enda aðstaðan glæsileg í alla staði.

Sveinn Símonarson, Kristján Már Atlassen og Bjarni Arnarson hjá Kletti.

„Við höfum tröllatrú á þessari staðsetningu, hér er Löður að opna trukkaþvottastöð, Frumherji er með skoðunarstöð í húsinu og Orkan er við endann á lóðinni með öflugar eldsneytisdælur fyrir allar gerðir ökutækja.

Þannig að hér verður alhliða þjónusta fyrir verktaka í akstri, jarðvinnu- og byggingaframkvæmdum.

Okkur hjá Kletti er mjög hugleikið það jafnvægi sem þarf að vera á milli þjónustu og seldra tækja og við segjum gjarnan að Klettur sé í raun þjónustufyrirtæki sem selur tæki,“ segir Kristján Már að lokum.

(fréttatilkynning frá Kletti)

Fyrri grein

Alfa Romeo snýr aftur í smábíla með Milano rafmagnssportjeppa

Næsta grein

Nýr Kia EV3 verður frumsýndur sumarið 2024

Jóhannes Reykdal

Jóhannes Reykdal

Ritstjóri og blaðamaður

Svipaðar greinar

Kia EV3 GT-Line frumsýndur á Íslandi

Kia EV3 GT-Line frumsýndur á Íslandi

Höf: Pétur R. Pétursson
25/06/2025
0

Laugardaginn 28. júní kl. 12-16 í sýningarsal Kia að Krókhálsi 13 Við höfum beðið spennt eftir því að frumsýna loksins...

Hyundai kynnir 20 ára afmælisútgáfu Tucson

Hyundai kynnir 20 ára afmælisútgáfu Tucson

Höf: Pétur R. Pétursson
28/05/2025
0

Hyundai á Íslandi heldur upp á tuttugu ára afmæli sportjepplingsins Hyundai Tucson sem kom upphaflega á markað síðla árs 2004....

Nýr Kia EV6 frumsýndur á Íslandi

Nýr Kia EV6 frumsýndur á Íslandi

Höf: Pétur R. Pétursson
22/05/2025
0

Laugardaginn 24. maí frá kl. 12-16Í sýningarsal Kia að Krókhálsi 13 og hjá umboðsaðilum Kia um land allt. Staðsetningar:Askja Vesturlandi...

Þjónustudagur Toyota

Þjónustudagur Toyota

Höf: Pétur R. Pétursson
16/05/2025
0

Árlegur þjónustudagur Toyota verður á laugardag, 17. maí frá kl. 11 – 15. Valdir þjónustuaðilar taka vel á móti Toyota-...

Næsta grein
Nýr Kia EV3 verður frumsýndur sumarið 2024

Nýr Kia EV3 verður frumsýndur sumarið 2024

Umræður um þessa grein

Greinaflokkar

  • Aðsent
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Fréttatilkynning
  • Hugmyndabílar
  • Kynning
  • Mótorsport
  • Ritstjórn
  • Tækni
  • Umferð

Tögg

Cadillac Eldorado e power Hyundia Ioniq 6 klassík lögreglubílar mahindra Rafgmagnsbíll rafhlöður rafmagn Rafmagnsbíll Shanghai sjúkrabílar tata World car of the year

Óháður bílavefur

Bílablogg.is er sjálfstætt starfandi fjölmiðill sem skrifar með þarfir lesenda í huga. Við leggjum metnað okkar í að reynsluaka nýjum bílum og flytja fréttir af því helsta sem er að gerast í bílaheiminum, bæði heima og erlendis.

Greinar

  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð

Reynsluakstur

  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar
  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar

Nýjustu færslurnar

Bílaframleiðsla

Nýi Recon-jeppinn frá Jeep er að mótast sem Wrangler rafbílanna

28/06/2025
Bílaheimurinn

Kia EV3 GT-Line frumsýndur á Íslandi

25/06/2025
Bílaframleiðsla

Nýr smart #5 frumsýndur á Íslandi

24/06/2025

2023 © Bílablogg.is • Allur réttur áskilinn • Bílablogg sf • Kt. 5911211460

Welcome Back!

Skráðu þig inn á aðganginn þinn

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband

© 2022 Bílablogg sf. - Allur réttur áskilinn.