Hugsanlega ekkert sérstaklega merkilegur bíll nær merkilegum áfanga þegar Honda lítur um öxl á þrjá áratugi af „þægilegum ferðabíl“
Vefur Car Throllle í Bandaríkjunum er með þáttaröð sem þeir kalla „Random“, þar sem þeir færa lesendur sögurnar sem enginn leitar að, en reynast oft áhugaverðar

Honda CR-V (fyrsta kynslóð)
Við hugsar líklega ekki mikið um Honda CR-V. Jafnvel þótt þú eigir eða hafi átt einn. Þetta er bíll sem er hannaður til að vera einmitt það – bíll – sérstaklega þar sem hann hefur smám saman breyst úr kassalaga, hálffærum „mjúkum vegabíl“ í einn af þeim fjölda einfaldra blendinga-jepplinga sem eru á vegum dagsins í dag.

Honda CR-V (sjötta kynslóð)
Allt þetta þýðir að þú hefur líklega ekki tekið eftir því að CR-V hefur nú verið til sölu í 30 ár, sem gerir hann jafngamlan söngkonunni Dua Lipa og Schengen-samkomulaginu. Takk, Wikipedia.
Til að fagna þessum, ehm, sögulega áfanga, eru hér nokkrir hlutir sem þú gætir ekki vitað um CR-V. Til dæmis, vissir þú að nafnið stendur fyrir „Comfort Runabout Vehicle“ (sem við gætum þýtt lauslega í „þægilegt ökutæki til snúninga“?
Við vissum það ekki, en nú vitum við það, og líf okkar líður aðeins ríkara fyrir að vita það.

Hönnunarteikning af fyrstu kynslóð Honda CR-V
Á þeim 30 árum sem hann hefur verið til sölu hefur Honda selt yfir 15 milljónir CR-V bíla, sem samsvarar um hálfri milljón á ári. Við reiknuðum það út án reiknivélar. En alvarlega talað, þetta er ansi áhrifamikil söluhringrás.
Kannski er það áhugaverðasta sem komið hefur úr þessari frekar lágværu afmælisveislu að Honda hefur verið að grafa í gegnum skjalasöfn sín og dregið fram nokkrar snemmbúnar hönnunarteikningar fyrir hverja kynslóð af CR-V.
Ef við spólum aftur til fyrstu kynslóðarinnar sjáum við að það voru nokkrar áhugaverðar hönnunarhugmyndir á kreiki, þar á meðal ein með framgrill sem minnir svolítið á Jeep og önnur með undarlegri, kúlulaga afturrúðu sem umlykur hana.

Hönnunarteikning af fyrstu kynslóð Honda CR-V
Allavega, nú í sjöttu kynslóð og seld í um 150 löndum um allan heim, er CR-V ekki að fara neitt í bráð. Megi okkur lengi halda áfram að halda áfram að taka ekki eftir þeim þegar við sjáum þá á götunni.
(Mike Bartholomew – Car Throttle)