Heimsfrumsýning á ID.Buzz
Nýtt „rúgbrauð“ eða „Bulli“ eins og bíllinn er kallaður heima í Þýskalandi frumsýndur fyrir alrafmagnaða framtíð:
Volkswagen fólksbílar og Volkswagen atvinnubílar heimsfrumsýndu ID.Buzz og ID.Buzz Cargo á miðvikudaginn í Hamborg. Hafa bílarnir vakið mikla athygli enda kemur ekki nýtt rúgbrauð á hverjum degi!
Með fyrstu rafknúnu bílana í þessum flokki í Evrópu, býður Volkswagen upp á enn eina lausnina fyrir sjálfbæran og CO2-lausan hreyfanleika.
ID.Buzz kemur með nýjasta ID. hugbúnaðinn og setur ný gildi í sínum flokki með nýjustu kerfum og aðgerðum fyrir öryggi, þægindi og hleðslu.
Á heimasíðu VW er vitnað í Ralf Brandstätter, stjórnarformann Volkswagen fólksbíla: „ID.Buzz er ósvikið tákn fyrir tíma rafmagnsins. Bíll sem aðeins Volkswagen getur smíðað. Á fimmta áratugnum stóð Volkswagen „Bulli“ („rúgbrauðið“) fyrir nýja tilfinningu um frelsi í bílum, sjálfstæði og miklar tilfinningar.
ID.Buzz tekur upp þennan lífsstíl og yfirfærir hann til okkar tíma: losunarlaus, sjálfbær, fullkomlega tengdur og nú tilbúinn fyrir næsta stóra kafla: Sjálfstæðan akstur. Með þessum bíl sameinum við kjarnaþemu í „ACCELERATE“ stefnu okkar í eina vöru í fyrsta skipti.“

Carsten Intra, stjórnarformaður Volkswagen atvinnubíla, bætir við: „Báðar útgáfur af ID.Buzz eru brautryðjendur hvað sjálfbærni varðar: Framleiðsla þeirra og flutningar hafa kolefnishlutlaust fótspor.
Við notum líka endurunnin gerviefni og innréttingin er algjörlega laus við raunverulegt leður.“ Hann heldur áfram: „ID.Buzz verður einnig notað fyrir framtíðarhugmyndir um sjálfstæðan hreyfanleika eins og akstur – rafræna skutluþjónustu dótturfélagsins MOIA sem hægt er að bóka í gegnum app.
Rafmagnaður „Bulli“ er því einnig hluti af framtíðarsamgöngum í borginni.“

.jpg)


Nokkur helstu atriði nýja bílsins
- Hönnun: ID.Buzz flytur sjö áratuga þekkingu Bulli inn á tímum hugbúnaðar og stafrænnar væðingar
- Hugbúnaður: Nýjasta útgáfan færir nýjustu aðstoðarkerfi eins og „Travel Assist með kvikgögnum“ og sjálfvirk bílastæði á svið
- Hleðsla: „Plug & Charge“ tækni gerir hleðslu á ferð mögulega með allt að 170 kW
- Orkugeymsla: Tvíátta hleðsla (Vehicle-to-Home) gerir samþættingu ID.Buzz inn í orkukerfi heimilisins mögulega
- Innra rými: Í ID.Buzz er pláss fyrir fimm manns og 1.121 lítra af farangri – og í Cargo útgáfu er rúmast tvö vörubretti
- Markaðssetning: Í haust í Evrópu. Í sumum löndum verður hægt að leggja inn pantanir í maí


Volkswagen ID. Buzz fjölnotabíllinn vekur Type 2 húsbílinn aftur til lífsins
Vefur Auto Express fjallar um frumsýninguna á ID.Buzz og þar segir Dean Gibson: Önnur ný gerð hefur bæst við ID. rafmagnslínuna frá Volkswagen í formi VW ID. Buzz.
Nýliðinn er fjölnotabíll (MPV) sem er byggður á sama undirvagni og VW ID.3 rafknúni hlaðbakurinn, en í stað uppfærðrar útgáfu af þeim bíl, sækir hann innblástur til „retróhönnunar“ VW Type 2 eða Bulli, (eða gamla góða rúgbrauðinu), sem byggir á bjöllunni.


Þar sem bíllinn notar sömu drifrás og ID.3, er ID.Buzz með 201 hestafla rafmótor sem knýr afturhjólin, en rafhlaða með 77kWh af nothæfri afkastagetu er einnig til staðar.
VW hefur enn ekki staðfest akstursdrægni fyrir ID. Buzz, en við myndum búast við drægni upp á um 400 km.

Hægt að hlaða 80% á 30 mínútum
Það er 170kW hleðsla um borð, þannig að hægt er að hlaða rafhlöðuna frá 5 til 80 prósent af afkastagetu á 30 mínútum frá nógu öflugri DC-hleðslu.
Það sem meira er, ID.Buzz mun koma með tvíátta hleðslu sem staðalbúnað, þannig að þú munt ekki aðeins geta hlaðið bílinn heima, þú munt líka geta flutt orku frá rafhlöðunni aftur inn í netið.
Framleiðsluútgáfa ID.Buzz er að mestu óbreytt frá hugmyndunum sem kynntar voru 2017.


Það eru smáatriðin sem gera þennan bíl öðruvísi.
Það eru mjó LED framljós að framan með ljósastiku sem teygir sig á milli þeirra til að tengjast stóra VW merkinu í miðjunni, en neðar er möskvagrill fyrir neðri loftinntökin. Hliðarhurðir eru rennihurðir en á öftustu bitunum eru þrjú lárétt strik.
Afturhlerinn er í fullri hæð með mjóum ljósum yfir alla breidd afturendans. Tvílita litasamsetningin sem sést á fyrstu myndunum verður boðin sem valkostur, með gulum, appelsínugulum, bláum eða grænum lit á yfirbyggingu undir hvítum efri hluta.

Á heildina litið er ID. Buzz tiltölulega fyrirferðarlítill. Hann er 4.712 mm langur og er 192 mm styttri en T6 Caravelle, en hjólhafið er 2.988 mm, sem er nánast eins og T6. Þetta hjálpar til við að hámarka farþegarýmið, en á meðan hugmyndabílarnir í upphafi voru með renni- og snúningssætum, er ID.Buzz er með hefðbundnu fimm sæta skipulagi í 2-3 stillingum.
Afturbekkurinn skiptist 60:40 og rennur til að hámarka fóta- eða farangursrýmið, og það er gríðarlegt 1.121 lítra farangursrými í fimm sæta stillingu.
Leggðu afturbekkinn niður og þá eru að hámarki 2.205 lítrar í boði.


Ef tvítóna ytra byrði er valið þá er farþegarýmið með sama litaþema, þó við verðum að bíða og sjá hversu auðvelt það verður að halda hvítu stýrinu og áklæðinu fallegu.
„Buzz Box“ nefnist miðlægt 5 lítra geymsluhólf sem situr á milli framsætanna. Efst er hólf m.a. fyrir íssköfu og upptakara en í stóra hólfinu má geyma flöskur og annað fyrirferðamikið.
Ekkert leður og efni úr endurunnu plasti
Leðuráklæði hafa nú kvatt og er ekkert leður að finna í farþegarýminu. Ysta lag stýrisins er vafið úr endurunnu gerviefni en teppin og sætisáklæði eru úr endurunnu plasti.
Það er hluti af markmiði VW að búa ID.Buzz til kolefnishlutlaust alla leið frá framleiðslu til afhendingar.


Það er nóg af tækni um borð í ID.Buzz, og mest af tækninni kemur frá ID.3 og ID.4. Þar má nefna 5,4 tommu ökumannsskjár, en 10 eða 12 tommu snertiskjár fyrir upplýsinga- og afþreyingarkerfi er miðsvæðis á mælaborðinu.
Eins og með aðrar ID.-gerðir er snertinæm miðstöð í bílnum, en þráðlaus Apple CarPlay og Android Auto, nettenging og raddstýring er sömuleiðis að finna í ID.Buzz.

Framleiðsla hefst síðar á árinu
Framleiðsla á ID. Buzz hefst síðar á þessu ári, og verða fyrstu bílar afhentir í haust. Verð og allar helstu upplýsingar verða kynntar þegar nær dregur.

(byggt á vefsíðu Volkswagen og síðu Auto Express – myndir frá Volkswagen)
Umræður um þessa grein