Miðvikudagur, 18. júní, 2025 @ 1:31
Bílablogg
Advertisement
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt

Gunnar Karl með gott plan í Wales

Malín Brand Höf: Malín Brand
09/04/2022
Flokkar: Mótorsport
Lestími: 5 mín.
268 17
0
136
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR
Deila á FacebookDeila á Twitter

Rallökumaðurinn Gunnar Karl Jóhannesson er sjaldnast kyrr lengi. Enda væri ómögulegt að ná árangri í ralli með mikilli kyrrstöðu! Gunnar Karl er nú í Wales þar sem hann keppir á morgun í Rallynuts rallinu.

Í þetta skiptið er hann þó án Ísaks Guðjónssonar aðstoðarökumanns því Ísak og frú voru að eignast barn fyrir skemmstu og óskum við þeim innilega til hamingju með barnið.

Þeir Gunnar Karl og George Gwynn í morgun.

Við hlið Gunnars Karls verður þó enginn nýgræðingur, heldur er það aðstoðarökumaður að nafni George Gwynn og þeir félagar hafa keppt saman áður.

Hjálmurinn hans Gwynn er vel merktur.

„Hann er mjög góður og reynslumikill. Hann þekkir aðstæður í Bretlandi mjög vel,“ sagði Gunnar Karl um hinn þrautreynda breska akstursíþróttamann, George Gwynn, sem hann hefur þekkt í fjölda ára.

George Gwynn við bílinn. Ljósmyndir/Jóhannes Gunnarsson

Undirrituð fjallaði raunar um áhöfnina fyrst árið 2015 á öðrum fjölmiðli og í viðtali í febrúar 2015 sagði Gunnar Karl frá því að Gwynn hefði áður keppt með föður hans, Jóhannesi Gunnarsyni, í Bretlandi fyrir allnokkrum árum.

„Þokkalega kunnungur staðháttum“

Það er ekki verra að þekkja vel þann sem keppir með manni í rallinu. Þvert á móti er það oft mikill og góður kostur. Svo ekki sé minnst á að þekkja aðeins til landslagsins sem ekið er um.

„Við prófuðum bílinn í gær og hann var góður en tían [MMC EVO X] er nýkomin úr uppgerð. Það var skipt um kúplingu, það eru nýjar driflæsingar í aftirdrifinu, nýbúið að hjólastilla bílinn og svo eru nýjar spyrnur að aftan. Þannig að bíllinn er klár í slaginn og þetta var í rauninni upptekt fyrir Íslandsmótið þannig að þessi keppni er svona til að hrista mig í gang fyrir Íslandsmótið. Planið er að skila bílnum heim en auðvitað ætla ég að reyna að komast á pall líka,“ sagði Gunnar Karl í morgun en þeir Ísak voru býsna nálægt því að komast á pall í keppninni í nóvember síðastliðnum. Vonandi tekst það á morgun.

Ný KM6 dekk sem eru opin og mjúk, plús extra sterkar hliðar

„Í þetta skiptið er ég þokkalega kunnugur staðháttum þannig að ég ætla að fara á nokkuð góða ferð og reyna að klóra eitthvað í þessa toppgæja og það ætti bara að vera gaman,“ segir hann.

Það er ekki bara á Íslandi sem getur snjóað skyndilega en það snjóaði aðeins í dag. Og svo skein sólin.

Leiðirnar aldrei keyrðar eins

„Það er keyrt aðeins öðruvísi núna. Fyrsta leiðin er sú sama en næsta er keyrð í öfuga átt miðað við í fyrra og þriðja leiðin verður öðruvísi. Þær eru keyrðar tvisvar en aldrei eins. Á fyrstu leið keyrum við langan aukahring inni á miðri leiðinni og förum síðan aftur inn á leiðina og í seinna skiptið förum við styttri útgáfu af leiðinni,“ segir Gunnar Karl um muninn á þessu ralli og því síðasta. „Það sama á við um hinar leiðirnar. Þær eru aldrei keyrðar eins en alltaf svipaðar.“

Allt að verða klárt fyrir stóra daginn.

Sjöttu af stað og með gott plan

Í morgun var rallýbíllinn settur á kerru og ekið með allt heila gillið frá Birmingham til Wales þar sem Rallynuts rallið fer fram á morgun. Tuttugu og þrír bílar keppa flokknum og eru okkar menn á bíl númer 23 og þeir sjöttu sem ræsa.

Skipt um keppnisnúmer og jú, nöfnin á ökumönnunum þurfa að vera rétt.

„Það er ansi hátt level af performance í þessum flokki, mjög hraðir ökumenn og góðir bílar,“ segir Gunnar Karl um keppinautana. Hann horfir þá sérstaklega til Ford Escort sem þeir Ian Joel og Graeme Wood keppa á. „Hann [Ian Joel] ræsti á undan mér í Cambrian rallinu í fyrra og ég hef aldrei náð að vinna hann. En ég var tiltölulega nálægt því síðast en ég átti ekki alveg hraðann í það. Planið mitt er að halda í við hann og reyna að vinna hann. Mig langar að vinna hann!“ segir Gunnar Karl.

Ian Joel hefur oft verið í 3. – 4. sæti og það gæti því vel komið okkar mönnum á pall ef þeir fram úr Escortinum og fylgja planinu góða.

Fyrsti bíll ræsir klukkan 09:03 (08:03 að íslenskum tíma) í fyrramálið og þeir Gunnar Karl og Gwynn ræsa sem fyrr segir, sjöttu í röðinni. Hér er síða þar sem hægt er að fylgjast með stöðu mála.

En þangað til, bíður „Tían“ og allir hinir bílarnir hér: 

Tengdar greinar: 

Gaman að vinna enskan meistara

Gunnar Karl og Ísak keppa í Wales

Gunnar Karl og Ísak: 5, 4, 3, 2, 1…

Frábær árangur Gunnars Karls og Ísaks í rallinu

?Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.

Fyrri grein

Uppruni tegundanna

Næsta grein

Í skýjunum: Ekið yfir hæstu brú heims

Malín Brand

Malín Brand

Akstursíþrótta- og blaðamaður

Svipaðar greinar

Ítalskur íhlutaframleiðandi bjargar Recaro Automotive

Ítalskur íhlutaframleiðandi bjargar Recaro Automotive

Höf: Jóhannes Reykdal
08/12/2024
0

Þýski bílstólaframleiðandinn fær fjárfestingu frá Proma Group, sem gerir framleiðslu kleift að hefjast að nýju Ítalski bílavarahlutaframleiðandinn Proma Group hefur...

Átján ára stúlka vann Porsche meistaratitil

Átján ára stúlka vann Porsche meistaratitil

Höf: Pétur R. Pétursson
23/09/2024
0

Isabell Rustad hefur átt nánast fullkomið tímabil í Porsche Sprint Challenge Scandinavia. Um helgina á lokakeppninni á Mantorp Park fékk...

Ford Mustang GTD verður frumsýndur í Evrópu á 24 stunda Le Mans

Ford Mustang GTD verður frumsýndur í Evrópu á 24 stunda Le Mans

Höf: Jóhannes Reykdal
27/05/2024
0

Ford hefur verið að undirbúa nýja Mustang GTD til að gera hann að fullkomnum bíl til að bera „hestanafnið“. Áætlað...

Audi Q8 e-tron breytt í öflugan rafdrifinn torfærubíl með nýrri Dakar útgáfu

Audi Q8 e-tron breytt í öflugan rafdrifinn torfærubíl með nýrri Dakar útgáfu

Höf: Jóhannes Reykdal
06/01/2024
0

Audi tók Q8 e-tron og breytti honum í alrafmagnaðan torfærubíl. Audi Q8 e-tron Dakar- útgáfan er sérgerð fyrir ævintýramenn sem...

Næsta grein
Í skýjunum: Ekið yfir hæstu brú heims

Í skýjunum: Ekið yfir hæstu brú heims

Umræður um þessa grein

Greinaflokkar

  • Aðsent
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Fréttatilkynning
  • Hugmyndabílar
  • Kynning
  • Mótorsport
  • Ritstjórn
  • Tækni
  • Umferð

Tögg

Cadillac Eldorado e power Hyundia Ioniq 6 klassík lögreglubílar mahindra Rafgmagnsbíll rafhlöður rafmagn Rafmagnsbíll Shanghai sjúkrabílar tata World car of the year

Óháður bílavefur

Bílablogg.is er sjálfstætt starfandi fjölmiðill sem skrifar með þarfir lesenda í huga. Við leggjum metnað okkar í að reynsluaka nýjum bílum og flytja fréttir af því helsta sem er að gerast í bílaheiminum, bæði heima og erlendis.

Greinar

  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð

Reynsluakstur

  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar
  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar

Nýjustu færslurnar

Bílaframleiðsla

Apple CarPlay fær mikla, notendavænni uppfærslu og með sérstillingum

17/06/2025
Bílaframleiðsla

Toyota segir að nýi Aygo X tvinnbíllinn verði hreinasti bíll Evrópu án tengils

11/06/2025
Bílaframleiðsla

Verksmiðjur í Evrópu loka vegna skorts á sjaldgæfum jarðefnum

08/06/2025

2023 © Bílablogg.is • Allur réttur áskilinn • Bílablogg sf • Kt. 5911211460

Welcome Back!

Skráðu þig inn á aðganginn þinn

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband

© 2022 Bílablogg sf. - Allur réttur áskilinn.