Það hlýtur að vera dálítið merkilegt að fylgjast með bíl verða til: Frá því hann er hugmynd á blaði þar til hann kemur fullskapaður út úr verksmiðjunni.

Í morgun hófst framleiðsla á Volvo C40 Recharge í verksmiðjum framleiðandans í bænum Ghent í Belgíu. C40 er rafbíll og annar í röð margra gerða rafbíla sem eiga eftir að koma á næstu árum frá Volvo.
Fyrsti 100% rafbíllinn er XC40 Recharge sem við höfum reynsluekið en um hann má lesa hér. Markmið Volvo er að framleiða eingöngu rafbíla og sú umbreyting á framleiðslunni mun verða fyrir árið 2030 en um framtíðarstefnu framleiðandans má meðal annars lesa í grein sem hér birtist fyrr á árinu.
Risavaxin verksmiðja
Verksmiðjan í Ghent ku vera ein sú stærsta sem framleiðandinn hefur yfir að ráða. Þar starfa um 6.500 manns og árið 2020 voru 194.890 bílar framleiddir í þeirri verksmiðju.

Á sama stað er hinn rafbíllinn, XC40, smíðaður og þar sem rafbílaframleiðslan fer ört vaxandi má gera ráð fyrir að á næsta ári verði rafbílar rúmlega helmingur allrar framleiðslu Volvo í Ghent.
Vilja sjá almennilega!
Í tilkynningu frá framleiðandanum segir m.a. að sætisstaðan í C40 sé há (að maður „sitji hátt“ í bílnum) þó svo að bíllinn sé hvorki jepplingur né sportjeppi. Í samræmi við „óskir viðskiptavina er staða sætanna há, eins og flestir ökumenn Volvo vilja að hún sé,“ segir þar.

Þeir vilja sem sagt sjá amennilega út og sennilega setjast beint inn í bílinn en ekki „ofan í“ hann.
Verður gaman að sjá hvernig til hefur tekist en von er á fyrstu C40 Recharge hingað til lands fyrir áramót.

Rétt eins og XC40 er C40 tæknilega vel búinn og sennilega rúmlega það, sé tekið mið af niðurstöðu undirritaðrar eftir reynsluakstur þess fyrrnefnda.
Drægni C40 er um 420 kílómetrar og má hlaða hann úr 10 í 80% á 40 mínútum í hraðhleðslu. Hröðunin úr 0 í 100 km/klst er 4,7 sekúndur. Bíllinn er 100% leðurlaus og verður hann fáanlegur í sjö mismunandi litum

Meira um C40 síðar en meðfylgjandi myndir voru teknar í Ghent í Belgíu í morgun og voru starfsmenn og gestir að vonum kátir þegar fyrstu bílarnir „litu dagsins ljós“.
Myndir: Volvo
Umræður um þessa grein