Geggjaður Kaggi
Ég hef sagt það áður þegar ég reynsluek bíl og segi það enn og aftur, það að fólk velji sér jepplinga yfir jafn magnaða, plássmikla og þægilega fólksbíla og Toyota Camry er eitthvað sem er ofar mínum skilningi. Tala nú ekki um þegar að Camryinn mætir á svæðið með tvinnvél.
Toyota Camry hefur ekki verið í boði í langan tíma hér heima en ég hef á ferðalögum mínum í vesturheimum Ameríku og Kanada séð mikið af honum á götum þar. Camry var til dæmis í fyrsta sæti yfir mest selda bílinn í sínum stærðarflokki í Ameríku á síðasta ári. Það er vel skiljanlegt enda er þessi bíll vel búinn og gífurlega vel settur saman. Nýr forstjóri Toyota er einmitt fyrrum kappakstursmaður og það finnst örlítið við aksturinn á Camry.

Aksturseiginleikum Camry er erfitt að lýsa í orðum því á götum úti er hann fimur og hvikur í stýri og auðvelt að átta sig á stærð bílsins.

Speglarnir á bílnum og hversu þægilegt er að sjá út um hann hjálpa mikið til við aksturinn. Allar rúður eru stórar og styrktarbitar ekki þykkir. Camry er því mjög bjartur að innan og maður nýtur sín vel undir stýri. Tvinntækni Toyota er í stöðugri framför og kemur hún mjög á óvart í Camry. Bílinn er næstum alltaf knúinn áfram á rafmagninu einu saman. Við prufu hjá mér var þessi bíll nálægt uppgefinni eyðslu upp á 4.3 l/100km, eða um einum lítra yfir það. Þú finnur ekki fyrir þessari tækni sinna sínum verkum. Þú einfaldlega gefur inn og bíllinn sér um restina.

Smíði og samsetning til fyrirmyndar
Í mínum huga er alveg ótrúlegt hversu stöðug framleiðslan hjá Toyota er þegar kemur að innréttingum og samsetningu á bíl. Næstum hvergi að finna illa samsett plast eða eitthvað sem skröltir í og gæti losnað fyrstu tíu ár bílsins á götunni.


Efnisvalið í mælaborðinu er eftirtektavert og minnir það mann mest á dýrari bíla. Saumurinn í mælaborðinu er líka áhugaverður og að hafa sauminn í sama lit og áklæði í sætum er ánægulegt smáatriði.

Farangursrýmið í Camry er líka stórgott og skotthlerinn opnast vel uppávið svo það er lítil hætta á að maður sé að reka hausinn í. Hvernig maður leggur niður sætin er stórsniðugt, ef þess gerist þörf. Hönnuðir Toyota hafa sett lítinn hnúð efst í skottið sem sparar þér að þurfa að ganga að afturhurðunum.

Talandi um afturhurðir, þær eru í stærra lagi. Auðvelt aðgengi og lítið mál er að troða inn stórum barnabílstól, jafnvel þó að hann sé bakvísandi af stærstu gerð. Einn galli þó á aftursætunum er að ekki er hægt að stilla höfuðpúðana. Þó svo að það sé ekki hægt gat ég hægilega komið mér vel fyrir í aftursætinu með bílstjórasætið í heppilegri akstursstöðu fyrir mig. Mér hefði liðið vel sitjandi þarna frá Tálknafirði til Bakkafjarðar.


Ekkert Android Auto né Apple Carplay
Nýlega náði Toyota samningi við tæknirisana í Kaliforníuríki um að hægt væri að tengja farsíma við afþreyingarkerfi bílsins, þessi tækni er samt ekki enn komin, en mun koma von bráðar. Þar til látum við okkur nægja að tengja símanna með blátannarbúnaði og er það einfalt. Best er þó að ef þú skellir þér á Luxury útfærslu, sem ég mæli með, þá er að finna akkurat á þeim stað þar sem þú hendir frá þér símanum þráðlausa hleðslu. Afþreyingarkerfið er síðan staðlað eins og í öllum Toyotum og er einfalt í notkun. Kerfið meira að segja varar þig við hraða- og rauðaljósmyndavélum.

Camry kemur með fjarlægðaskynvæddum hraðastilli og hægt er að láta kerfið takamarka hraðann sinn. Hraðamælirinn og aflmælirinn eru síðan aðskildir í miðjunni með stafrænum skjá og er þar hægt að kalla fram alls kyns upplýsingar, eins og hvað sé í gangi í útvarpinu og fleira í þeim dúr. Þar koma líka fram leiðbeiningar leiðsögukerfisins sem er einkar hentugt ef þú ert villtur í Kópavogi í hverfum sem þú vissir ekki að væru til.


Lokaorð
Eins og ég sagði í upphafi þá á ég oft á tíðum erfitt að skilja af hverju við veljum okkur jepplinga í staðinn fyrir stóra og rúmgóða fólksbíla. Er það af því að við nennum ekki að setjast niður lengur? Og þá meina ég niður í bíla. Toyota Camry færir þér samt eitthvað sem jepplingur í svipaðri stærð getur ekki fært þér jafn sterkt og það er góð akstursupplifun og ánæguleg viðvera á þjóðvegum landsins. Toyota Camry er fullbúinn bíll með afbragðs sparsamri aflrás og góðu plássi, tilbúinn til að takast á við hvað sem gæti verið krafist af honum.
Ég mæli með Camry fyrir alla þá sem eru að leita sér að stórum og góðum bíl, sem er hvikur í stýri og ánægjulegt er að keyra. Taktu hann í Luxury útfærslu, perluhvítan eða rauðan og ljóst leður. Segðu svo öllum að þú sért að reyna að vera straumbreytir og sért að fá alla til að fá sér stóra og almennilega bíla aftur. Eða segðu öllum að þú vildir vera sá eini í götunni sem leggur stórum bíl fyrir utan heima hjá sér. Nú eða þá að þú sért leigubílstjóri.
Ef þér lýst á’ann, keyptann!
Helst utölur:
Verð frá: 6.790.000 (Október 2019)
Verð á sýndum bíl: 6.860.000 (Október 2019)
Vél: 2,5 l bensín tvinnkerfi
Hestöfl: 218
0-100k á klst: 8,3 sek
CO2: 98-101
Eigin þyngd: 1595 kg
L/B/H:4885/1840/1445 mm
Eyðsla bl ak: 4,3 l/100 km