Þriðjudagur, 19. ágúst, 2025 @ 23:01
Bílablogg
Advertisement
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt

Geðveikustu hugmyndabílar sem hafa verið búnir til – 1/4

Jóhannes Reykdal Höf: Jóhannes Reykdal
28/11/2022
Flokkar: Hugmyndabílar
Lestími: 6 mín.
282 6
0
138
DEILINGAR
1.3k
SMELLIR
Deila á FacebookDeila á Twitter

Geðveikustu hugmyndabílar sem hafa verið búnir til – 1/4

Of margir hugmyndabílar nú á dögum eru bara útþynnt forsýning á framleiðslubílum. En ekki þessir sem við ætlum að skoða í dag – þeir voru allir allt of sérstæðir til að fara nokkru sinni í sölu
  • Allur tilgangurinn með hugmyndabílnum er að þrýsta á mörk hönnunar og tækni.
  • En stundum veit bílaframleiðandi eða hönnunarhús ekki hvenær á að hætta. Þetta eru hugmyndabílarnir sem voru svo yfirgengilegir að þeim var aldrei ætlað að komast á göturnar í neinni mynd.
  • Sumir náði því að verða goðsagnir en flestir gleymdust fljótt – sem er það besta sem gæti hafa komið fyrir þá.
  • Richard Dredge hjá Autocar vefsíðunni hefur tekið saman lista yfir 55 sérstæða hugmyndabíla. Við ætlum að skipta þessu niður í fjóra hluta og ætlum að skoða fyrst skammtinn af fjórum í dag.

Bertone BAT3/5/7 (1953)

Bertone bjó ekki til einn heldur þrjá aðskilda BAT-hugmyndabíla á milli 1953 og 1955. Hannaðir til að kanna möguleika loftaflfræðilegrar hönnunar, vísbendingin var í nafninu – BAT stóð fyrir „Berlinetta Aerodinamica Tecnica“.

Á þeim tíma þegar vegir voru fullir af hönnun frá því fyrir seinni heimsstyrjöldina hljóta þessi ökutæki að hafa litið út eins og geimfar frá Mars.

Ghia Selene (1960)

Ghia hélt því fram að þetta væri bíltegundin sem við myndum öll keyra innan áratugar. Sem betur fer varð það aldrei. Hannað af Tom Tjaarda (1934-2017), á þessari mynd snýr þessi Selene með vélina að aftan en með framendann til vinstri.

Ghia Selene Seconda (1962)

Þrátt fyrir að vera undarlegur, þá vakti fyrsti Selene-bíllinn mikla athygli og ekki bara af því bara! Í kjölfarið var hönnuðinum Tjaarda sleppt lausum til að koma með framhald.

Selene Seconda, sem leit út eins og eitthvað úr Jetson-teiknimyndunum, var einnig með vélina að aftan og eins og forveri hans var hann með afturvísandi aftursætum.

Bertone Carabo (1968)

Carabo var einn af frábæru hugmyndabílunum frá upphafi og var byggður á Alfa Romeo 33 kappakstursbílnum, sem þýddi að hann var með V8-vél í miðjunni.

Hann var einnig með lituðu gleri og fiðrildahurðum, en var einnig með mjög litla loftmótstöðu.

Chevrolet Astro III (1969)

Ef þú ert að byrja með hvítt blað til að hanna bíl, þá er einfalt mál að koma hjólaskipaninni á rétt ról, en ekki bara einvhern veginn.

Enginn sagði hönnuðum GM þó þetta; þeir settu tvö framhjól Astro III við hliðina á hvort öðru þannig að hann leit út eins og þriggja hjóla hjól, sem dregur verulega úr stöðugleika. Skoðið bara myndina af þessu!

Bertone Stratos Zero (1970)

Hér er einn sem vakti athygli í bílahönnun, hér var ekki verið að skoða hagkvæmni en þessi hönnun ýtti á mörkin. Þessi hönnunarvinna leiddi til samnefnds bíls Lancia, endurgerð Andy Saunders og þátttöku í Moonwalker myndbandi Michael Jackson.

Pininfarina Modulo (1970)

Nánast ekkert sem var í Modulo var nothæft í framleiðslubíl, allt frá tjaldhimninum til innfelldra hjólanna. Reyndar kom hönnun Modulo með fjölda vandamála sem krefjast flókinnar verkfræði með miklum kostnaði.

Mazda EX-005 (1970)

EX-005, sem var sérstaklega hugsaður sem ferðabíll í þéttbýli, bauð upp á sæti fyrir fjóra, en lítil þægindi þar sem þessi sæti voru úr mótuðu plasti.

Veðurvörnin var líka ekki upp á marga fiska og hvað slysaöryggi varðar, enn minna. Hins vegar bauð snúnings-/rafmagnshybridaflrásin upp á gott útsýni.

Dome Zero (1978)

Það væri erfitt að teikna kantaðri eða meira árásargjarnari hönnun en Lamborghini Countach, en það er það sem japanska sérsmíðafyrirtækinu Dome tókst með Zero hugmyndinni.

Planið var að keppa á Le Mans; það gerðist samt ekki.

Ghia Action (1978)

Ekki er ljóst hvort tíminn rann út eða peningarnir, en Ghia tókst að hanna aðeins hálfan bíl með Action. Eftir að hafa byrjað vel á framendanum, náði fyrirtækið ekki lengra en aftur að B-bitanum, þar virðist eins og verkefnið hafi klárast.

Aston Martin Bulldog (1979)

Hönnuðurinn William Towns (1936-1993) útbjó ansi geðveika hugmyndabíla á sínum tíma, en þetta hlýtur að teljast ein sú vitlausasta.

Það byrjaði sem tilraunadæmi fyrir Aston Martin, hugmyndin var að framleiða 25 slíka – svo kom skynsemin til sögunnar og bara einn bíll var smíðaður.

Hann er enn til og hefur nýlega verið tekinn í nefið og gerður upp.

Toyota CX-80 (1979)

CX-80 var ætlað að bjóða upp á nóg pláss fyrir fjögurra manna fjölskyldu á sama tíma og hann tók minna vegapláss en minnsta gerð Toyota, Starlet.

Bíllinn leit hins vegar út eins og hann hefði verið hannaður af ungu barni – kannski með bundið fyrir augun.

Þetta táknaði í raun ákveðið lágmark í hönnunarsögu Toyota að mati Autocar.

Við skoðum síðan næstu þrjá kafla í þessari sögu fljótlega

Fyrri grein

Fiat framleiðir smábíla áfram

Næsta grein

Framtíðar GT-bíll frá Ferrari í tölvuleik

Jóhannes Reykdal

Jóhannes Reykdal

Ritstjóri og blaðamaður

Svipaðar greinar

Bentley byrjar nýja tíma með róttækri hönnun lúxusfólksbíls

Bentley byrjar nýja tíma með róttækri hönnun lúxusfólksbíls

Höf: Jóhannes Reykdal
18/07/2025
0

Nýr Bentley EXP 15 upphækkaður hugmyndabíll býður upp á innsýn í framtíð lúxusmerkisins sem er rafknúinn Djarfur þriggja sæta coupé...

Nýr Mercedes Vision V Concept forsýnir framtíð lúxus fjölnotabíla

Nýr Mercedes Vision V Concept forsýnir framtíð lúxus fjölnotabíla

Höf: Jóhannes Reykdal
28/04/2025
0

Mercedes Vision V Concept forsýnir úrval af ofurlúxus fólksflutningabílum sem líta út fyrir að vera tilbúnir í framleiðslu, en sá...

Vetrarhátíð Heklu

Vetrarhátíð Heklu

Höf: Jóhannes Reykdal
23/01/2025
0

Við blásum til Vetrarhátíðar í húsakynnum okkar hér á Laugaveginum nk. laugardag 25. janúar frá klukkan 12 til 16. Við...

Eru þetta rafbílar framtíðarinnar?

Höf: Pétur R. Pétursson
07/01/2025
0

Jepplingur og sportari eru tvær nýjar rafbílahugmyndir frá Honda á CES 2025. Síðastliðinn þriðjudagsmorgun sló Honda heldur betur í gegn...

Næsta grein
Framtíðar GT-bíll frá Ferrari í tölvuleik

Framtíðar GT-bíll frá Ferrari í tölvuleik

Umræður um þessa grein

Greinaflokkar

  • Aðsent
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Fréttatilkynning
  • Hugmyndabílar
  • Kynning
  • Mótorsport
  • Ritstjórn
  • Tækni
  • Umferð

Tögg

Cadillac Eldorado e power Hyundia Ioniq 6 klassík lögreglubílar mahindra Rafgmagnsbíll rafhlöður rafmagn Rafmagnsbíll Shanghai sjúkrabílar tata World car of the year

Óháður bílavefur

Bílablogg.is er sjálfstætt starfandi fjölmiðill sem skrifar með þarfir lesenda í huga. Við leggjum metnað okkar í að reynsluaka nýjum bílum og flytja fréttir af því helsta sem er að gerast í bílaheiminum, bæði heima og erlendis.

Greinar

  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð

Reynsluakstur

  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar
  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar

Nýjustu færslurnar

Álit

Volkswagen ID.Buzz GTX – fortíðin mætir nútímanum

18/08/2025
Bílaframleiðsla

Nýr rafknúinn Nissan Micra

18/08/2025
Bílaframleiðsla

Nýr Skoda Octavia Electric er forsýndur með Vision O hugmyndabílnum

05/08/2025

2023 © Bílablogg.is • Allur réttur áskilinn • Bílablogg sf • Kt. 5911211460

Welcome Back!

Skráðu þig inn á aðganginn þinn

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband

© 2022 Bílablogg sf. - Allur réttur áskilinn.