Fyrsti „heiti” litli rafbíll VW-samstæðunnar: Cupra

138
DEILINGAR
1.3k
SMELLIR

Fyrsti “heiti” litli rafbíllinn frá VW-samstæðunni verður settur á markað undir Cupra vörumerkinu

Hönnuðir Cupra hafa gefið el-Born meira áberandi framenda í endurhönnun í samanburði við hugmyndabíl Seat frá 2019.

Eitt er vörumerkið undir hatti VW-samstæðunnar sem er lítt þekkt hér á landi, en það er Seat á Spáni. Um síðustu aldamót fóru af stað athuganir á að bæta Seat við framboð VW hér á landi en þær fyrirætlanir runnu út í sandinn. Því miður má segja, því Seat er með marga skemmtilega bíla í sínu framboði, eins og margir þeirra sem hafa haldið til Spánar og leigt sér bílaleigubíla vita vel.

Seat sem er hluti af Volkswagen Group mun hleypa af stokkunum framleiðsluútgáfunni af el-Born rafmagnshlaðbaknum undir sínu sjálfstæða Cupra vörumerki.

Cupra el-Born verður fyrsti bíllinn með sportlegu sniði sem byggður er á MEB rafmagnsgrunni VW Group þegar hann fer í sölu í Evrópu á næsta ári.

Hugmyndabíllinn á sýningunni í Genf 2019

El-Born var afhjúpaður sem Seat hugmyndabíll á bílasýningunni í Genf árið 2019.

Cupra hefur verið valið til að hleypa el-Born af stokkunum í stað Seat vegna þess að rafbíll passar fullkomlega við stefnu Cupra og viðskiptavina þess, sagði Seat.

Wayne Griffiths, forstjóri Cupra, sagði að með því að búa til sportlega gerð el-Born sem Cupra væri leyfilegt fyrir vörumerkið að aðgreina það frá öðrum MEB-smíðuðum rafmagns-hlaðbökum frá VW Group.

Má þar nefna VW ID3, sem mun fara í sölu í Evrópu í september, og Audi Q4 e-tron og Q4 Sportback, sem báðir bíða næsta árs. Útgáfa Skoda, kölluð Enyaq, mun koma í lok ársins.

„Seat og Cupra eru nauðsynleg fyrir þróun fyrirtækisins. Hver og einn hefur sitt skýra hlutverk, persónuleika og eiginleika og tekur á mismunandi sniði viðskiptavina,“ sagði Griffiths á miðvikudag á blaðamannafundi á netinu.

Verkfræðingar hafa þróað nýtt öflugt undirvagnskerfi fyrir el-Born, sagði Seat. Það aðlagast sjálfkrafa öllum aðstæðum og býður upp á framúrskarandi akstursvirkni að sögn vörumerkisins. Cupra el-Born getur hraðað frá 0 til 50 km/klst. á 2,9 sekúndum.

Bíllinn sem er með 500 km aksturssvið, með 77 kílóvattstunda rafhlöðu, sem hægt er að endurhlaða með orkunni sem þarf í að minnsta kosti 260 km á 30 mínútum.

Carsten Isensee, forstjóri Seat, sagði að það muni ekki verða til Seat útgáfa af el-Born.

Cupra el-Born verður smíðaður í verksmiðju VW í Þýskalandi ásamt VW ID3 og Audi Q4 e-tron.

Skoda mun hins vegar smíða Enyaq í verksmiðju sinni í Mlada Boleslav í Tékklandi.

Rafbílar og blendingar (hybrid)

Seat rafmagnar sitt framboð með rafbílum og blendingum. Tengitvinnútgáfur af Seat Leon litla hlaðbaknum og Seat Tarraco millistærðar sportjeppa fara í sölu á seinni hluta ársins.

Tengitvinnafbrigði af Cupra Formentor, litla „crossover“-bílnum, verður í boði á næsta ári. Opnað verður á fyrir fram pantanir á Formentor crossover með 360 hestafla bensínvél, þann 8. júlí. Hann verður verðlagður um það sama og Cupra Ateca með svipaða vél, sagði Griffiths. Cupra Ateca byrjar frá 43.640 evrum á Spáni.

Seat hafði verið valið til að leiða þróun VW Group á nýrri fjölskyldu lítilla rafbíla sem myndi fara í sölu árið 2023 á verði undir 20.000 evrum. VW Group hefur síðan skipt um skoðun og mun nú líklega veita VW vörumerkinu þróunarhlutverkið.

Isensee sagði á miðvikudag að Seat muni taka þátt í verkefninu í einhverri mynd. „Þetta verður ákveðið á næstunni,“ sagði hann.

Griffiths, sem er yfirmaður sölu Seat samhliða því að vera forstjóri Cupra, sagði að Seat muni þurfa minni rafbíl í framtíðinni. „Ég mun berjast eindregið fyrir að ná því fyrir fyrirtækið okkar,“ sagði hann.

Seat selur nú rafmagnsútgáfu af Mii smábílnum sínum, sem byggður er á VW e-Up.

Griffiths sagði að rafmagns Mii hafi staðið sig mun betur en búist var við og væri nú uppseldur. „Við erum að ræða við VW um að fá fleiri einingar árið 2020 og 2021,“ sagði hann.

Seat hyggst verja 5 milljörðum evra í rannsóknir, þróun og búnað rafbíla fyrir árin 2020-2025. Einingin miðar að því að smíða rafbíla í Martorell-verksmiðjunni sinni á Spáni og byrja árið 2025.

Þetta mun krefjast stuðnings stjórnvalda og mun ráðast af stigi í endurnýjanlegri orku og hleðsluinnviðum á Spáni, meðal annars, sagði Isensee.

Hugsanleg rafbílaframleiðsla á Spáni gæti einnig falið í sér samsetningu á rafhlöðum, en það er „enn langt í land,“ sagði Isensee.

Svipaðar greinar