Frumsýna nýjar kynslóðir Range Rover Sport og Range Rover

136
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR

Frumsýna nýjar kynslóðir Range Rover Sport og Range Rover

Jaguar Land Rover við Hestháls frumsýnir nk. laugardag, 8. október, nýjar kynslóðir tveggja bíla frá Land Rover í Bretlandi. Um er að ræða Range Rover Sport (L461) og Ranger Rover (L460), en framleiðandinn frumsýndi þann fyrr nefnda á heimsvísu með eftirminnilegu myndbandi við Kárahnjúka fyrr á árinu, sem streymt var á netinu.

Þar var tekist á við akstur í Hafrahvammagljúfri í kapphlaupi við tímann áður en vatnsborð Hálslóns færi á yfirfall með beljandi fljótinu sem þá yfirtekur gljúfrið með 750 tonna vatnsmagni á mínútu.

Range Rover Sport á fullri ferð við Káraknjúka.

Range Rover Sport

Nokkrar mismunandi útfærslur Range Rover Sport eru í boði hjá Jaguar Land Rover á Íslandi en höfuðáherslan verður lögð á tengiltvinnbílinn (PHEV) með sex strokka bensínvél og forþjöppu auk rafmótors og eru gerðirnar annars vegar 440 hestöfl og hins vegar 510 hestöfl sem skila hröðun frá 5,4 sekúndum í 5,8 sekúndur í 100 km/klst.

Rafhlaðan í tengitvinnbílnum er ein sú stærsta sem boðin er í nokkrum bíl í dag eða 38 kWh og er uppgefin drægni 113 kílómetrar samkvæmt WLTP.

Allar gerðir Range Rover Sport eru að sjálfsögðu búnar allri nýjustu þæginda- og driftækni Land Rover ásamt einstökum þægindabúnaði í farþegarýminu sem gestum frumsýningarinnar gefst kostur á að kynna sér nánar á sýningunni. Verð Range Rover Sport er frá kr. 17.490.000.

Range Rover First Edition.

Range Rover

Í tilfelli flaggskipsins Ranger Rover verður lögð áhersla á kynningu á fyrstu útgáfu bílsins (First Edition) sem kemur í sérstöku möttum kynningarlit.

Þessi nýjasta kynslóð Range Rover er ný frá grunni, svo miklar eru breytingarnar þótt engum dyljist að öll megineinkenni flaggskipsins séu enn á sínum stað.

Meðal nýjunga, fyrir utan breytt útlit, má nefna óvenjulítinn beygjuradíus miðað við lengd, eða aðeins 10,9 m enda beygir bíllinn á öllum fjórum hjólum.

Auk þess er Range Rover nú í fyrsta sinn fáanlegur 7 manna í lengri útgáfunni. Range Rover er, eins og í tilfelli Range Rover Sport, boðinn í mismunandi vélaútgáfum, bæði sex strokka dísilvélum, sem gefa allt að 350 hestöfl, og einni átta strokka 530 hestafla bensínvél. Á næsta ári kemur bíllinn svo í tengitvinnútgáfu, annars vegar 440 hestöfl og hins vegar 510 hestöfl. Verð Range Rover er frá kr. 21.890.000.

Þessu tengt:

Nýr Range Rover Sport við Kárahnjúka

Svipaðar greinar