Þrýstinginn þarf að passa!

138
DEILINGAR
1.3k
SMELLIR

Mikilvægt að vera með réttan loftþrýsting í vetrardekkjunum!

Af hverju er það svona mikilvægt? Aðeins við ákjósanlegasta þrýstinginn sem framleiðandi tiltekins bíls tiltekur mun dekkið – vegna þyngdar bílsins – ná að snerta yfirborð vegarins með öllum slitfletinum, og í vetrarfærð er mikilvægt að nýta allt mynstrið til að ná sem bestu viðnámi.

Ef of lítið loft er í dekkinu þá eru það aðeins kantarnir á dekkinu sem eru með fulla snertingu (sjá dekkið í miðjunni á myndinni hér að neðan) – ekki miðjan á dekkinu – með snertingu við veginn.

Ef þrýstingurinn er of hár kemst dekkið heldur ekki í snertingu við veginn eins og það ætti að gera – dekkið rétt aðeins tyllir miðjunni á yfirborð vegarins, sem þýðir að aðeins mjó rönd af slitfletinum í miðju slitlagsins er með fulla snertingu.

Til að nýta alla möguleika tiltekins dekks er mikilvægt að það komist í snertingu við veginn með allri dekkjabreidd slitlagsins.

Skýringarmyndin sýnir áhrif mismunandi loftþýstings á snertingu við veginn.
Um að gera að nýta allan slitflötinn, sérstaklega í snjó og hálku!

Fleira dekkjatengt: 

Hvað kosta vetrardekkin?

Dekkjamynstur – kostir og gallar

Hvenær var fyrsta vetrardekkið búið til?

Hvað þýða bókstafir og tölustafir á dekkjunum?

Svipaðar greinar