Fimmtudagur, 9. október, 2025 @ 22:41
Bílablogg
Advertisement
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt

Forpantanir á fjórhjóladrifna Volvo XC40 rafmagnsjeppanum hafnar

Pétur R. Pétursson Höf: Pétur R. Pétursson
02/09/2020
Flokkar: Bílaheimurinn
Lestími: 5 mín.
281 3
0
136
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR
Deila á FacebookDeila á Twitter

Forpantanir á fjórhjóladrifna Volvo XC40 rafmagnsjeppanum hafnar

Beðið hefur verið með mikilli eftirvæntingu eftir fjórhjóladrifna rafmagnsjeppanum Volvo XC40 P8 AWD Recharge. Brimborg mun byrja að taka við forpöntunum á ríkulega útbúinni R-Design útfærslu rafmagnsjeppans á miðnætti þann 1. september í Vefsýningarsal bílaumboðsins. Sýnis- og reynsluakstursbílar verða hjá Brimborg í nóvember og afhendingar til kaupenda hefjast vorið 2021.

Volvo XC40 P8 AWD Recharge R-Design í hnotskurn:

  • Fjórhjóladrifinn, 408 hestafla rafmagnsjeppi sem togar 660 Nm og er 4,9 sekúndur í hundrað
  • Langdrægur með 78 kWh drifrafhlöðu með 400 km. drægni og aðeins 40 mínútur að ná 320 km. drægni í hraðhleðslu
  • Fullkominn ferðabíll með 1.500 kg. dráttargetu og 17,6 sm. veghæð
  • Notendavænt rými með fullt af geymsluplássi, 452 lítra farangursrými og aukarými í húddi
  • Notendavæn tækni með Android Auto stýrkerfi með Google Maps leiðsögukerfi, forhitari fjarstýrður með Volvo On Call  og varmadæla
  • 5 ára víðtæk verksmiðjuábyrgð og 8 ára verksmiðjuábyrgð á drifrafhlöðu aðeins í boði á bílum seldum hjá Brimborg

Allir Volvo bílar rafmagnaðir árið 2025

Með Volvo XC40 rafmagnsjeppanum stígur Volvo enn eitt skrefið í átt að krefjandi markmiði að fyrir árið 2025 verði helmingur af öllum Volvo bílum keyptum á heimsvísu knúnir rafmagni eingöngu og hinn helmingurinn verði tvinnbílar. Nú þegar á árinu 2020 er sala Brimborgar á Volvo 96% tvinnbílar og ljóst að allir seldir Volvo bílar á Íslandi hjá Brimborg verða annaðhvort 100% hreinir rafbílar eða tvinnbílar árið 2021.

Fjórhjóladrif, 408 hestöfl, 4,9 sekúndur í hundrað og 400 km. drægni

Volvo XC40 P8 AWD Recharge er fjórhjóladrifinn, 100% hreinn rafmagnsjeppi búinn tveimur öflugum rafmagnsvélum sem skila saman 408 hestöflum og 660 Nm togi og er bíllinn 4,9 sekúndur að ná 100 km. hraða.

Drifrafhlaðan er 78 kWh og skilar jeppanum 400 km. í einni aksturslotu skv. WLTP staðli. Áætluð orkunotun per 100 km. er um 18,75 kWh. sem jafngildir um 300 kr. orkukostnaði m.v. heimilisrafmagn og því má ætla að orkukostnaður á ferðalagi fram og og til baka milli Reykjavíkur og Akureyrar væri um 2.300 kr.

Stuttur hleðslutími

Bíllinn er búinn 11 kW hleðslubúnaði með Type 2 tengi og hægt er að hlaða drifrafhlöðuna í 320 km. drægni á aðeins 40 mínútum í 150 kW hraðhleðslustöð (DC). Í 11 kW eða stærri heimahleðslustöð (AC) eða sambærilegri stöð á vinnustað fullhleðst tóm drifrafhlaða í 100% drægni á aðeins 8 tímum.

Rúmgóður fjórhjóladrifinn jeppi fyrir íslenskar aðstæður

Nýi Volvo XC40 P8 rafmagnsjeppinn hentar einstaklega vel við íslenskar aðstæður með fjórhjóladrifi, góðri veghæð og hárri sætisstöðu ásamt því að vera einstaklega praktískur með notendavænu rými fyrir farþega og farangur, mikið afl og góða drægni á hreinu rafmagni.

Volvo XC40 P8 AWD Recharge er sjálfskiptur, 5 sæta með 452 lítra farangursrými sem er stækkanlegt í 1328 lítra auk þess að viðbótar farangursrými er í húddi. Dráttargetan er 1.500 kg. fyrir vagn með hemlum og hæð undir lægsta punkt er 17,6 sm. Rafmagnsjeppinn er 4425 mm á lengd, 1863 mm á breidd og 1647 mm á hæð, vegur 2113 kg. með einstaklega hagstæða þyngdardreifingu þar sem 52% hvílir á framás og 48% á afturás.

Ríkulegur staðalbúnaður sérsniðinn að norðlægum slóðum

Volvo XC40 P8 AWD Recharge R-Design er hlaðinn búnaði og má þar nefna til viðbótar við einstakan öryggisbúnað Volvo bíla m.a. rafdrifinn afturhlera, 19 tommu álfelgur, lyklalaust aðgengi, 9 tommu snertiskjá, forhitari með Volvo On Call fjarstýringu, upphituð framsæti, upphitað stýri, upphituð rúðupissstútar, hraðastilli, Bluetooth tengingu og Volvo On Call appið.

Android Auto stýrikerfi með Google Maps, forhitari með Volvo On Call fjarstýringu og varmadæla

Volvo XC40 P8 er fyrsti Volvo bíllinn sem kemur með innbyggðu Android Auto stýrikerfi með Google Maps leiðsögukerfi og gerir það kleift að nota Android öpp beint í bílnum.

Þetta gerir það að verkum að mjög einfalt er að nota stýrikerfi bílsins. Einnig er staðalbúnaður þráðlaus speglun fyrir Apple Car Play.

Forhitari fjarstýrður í gegnum Volvo On Call appið er einstaklega þægilegur eiginleiki sem er staðalbúnaður og hluti af Nordic Cold Climate pakkanum sem Brimborg býður með bílnum á Íslandi. Með Volvo On Call appinu er líka hægt að kveikja á sætis- og stýrisupphitun.

Varmadæla er mikilvægur búnaður í rafbílum, sérstaklega á Íslandi og hún er staðalbúnaður í Volvo XC40 á Íslandi. Varmadæla endurnýtir orku úr umhverfinu fyrir bæði miðstöð og drifrafhlöðu bílsins sem gerir kleift að að spara orku drifrafhlöðunnar við hitun eða kælingu bílsins. Það getur munað allt að 60 km eða um 15% af drægni bílsins hvort varmadæla er í bílnum eða ekki.

Hagstætt verð og víðtæk verksmiðjuábyrgð

Volvo XC40 P8 AWD Recharge R-Design kostar frá 7.990.000 kr. kominn á götuna með 5 ára víðtækri verksmiðjuábyrgð á bíl og 8 ára verksmiðjuábyrgð á drifrafhlöðu. Ábyrgðin er aðeins í boði á bílum seldum hjá Brimborg skv. nánari skilmálum Volvo Cars Group og Brimborgar.

First Edition aukahlutapakki

Fyrstu bílarnir verða í boði með sérstökum First Edition aukahlutapakka á 369.000 kr. sem inniheldur Þráðlausa farsímahleðslu í mælaborði, bakkmyndavél, nálægðarskynjara að framan, rafdrifin farþega og bílstjórasæti og BLIS öryggiskerfi.

Sýningar- og reynsluakstursbílarnir sem Brimborg fær verða að auki með sérlit, leðuráklæði, sjálfkeyrandi ökumannsaðstoð og Harmon Kardon premium hljómkerfi.

Forpantanir í Vefsýningarsal Brimborgar frá 1. september

Forpantanir fara fram í Vefsýningarsal Brimborgar frá miðnætti 1. september. Þar er hægt að velja sér bíl, smella á hnapp, fylla út form, lýsa mögulegum uppítökbíl og senda fyrirspurn eða pöntun.

Söluráðgjafi verður í kjölfarið í sambandi með nánari upplýsingar. Staðfestingargjald við staðfestingu pöntunar er 10% eða 800.000 kr.

Fyrri grein

„Fjölbreytnin er komin á rafbílamarkaðnum – loksins“

Næsta grein

Renault Twingo Electric bætist í hóp ódýrra rafbíla

Pétur R. Pétursson

Pétur R. Pétursson

Vefstjóri og blaðamaður

Svipaðar greinar

Nýr Kia PV5 mun keppa við VW ID Buzz

Nýr Kia PV5 mun keppa við VW ID Buzz

Höf: Jóhannes Reykdal
09/10/2025
0

Kia keppir við VW um forystu í markaðssetningu rafknúinna fólksflutningabíla SEÚL — Volkswagen ID Buzz, söluhæsti meðalstóri fólksflutningabíll Evrópu, mun...

Kia Soul hættir framleiðslu eftir árgerð 2025

Kia Soul hættir framleiðslu eftir árgerð 2025

Höf: Jóhannes Reykdal
08/10/2025
0

Eftir meira en áratug á markaðnum er Kia Soul að hverfa á braut. Kia hefur staðfest að framleiðslu Soul lýkur...

Tesla kynnir stóra FSD uppfærslu sem endurspeglar akstursstíl þinn

Tesla kynnir stóra FSD uppfærslu sem endurspeglar akstursstíl þinn

Höf: Pétur R. Pétursson
08/10/2025
0

FSD stenur fyrir „full self driving” Útgáfa 14.1 er stærsta FSD uppfærsla í eitt ár FSD 14.1 hefur einnig nokkrar...

Hugmyndabíllinn Dacia Hipster

Hugmyndabíllinn Dacia Hipster

Höf: Jóhannes Reykdal
07/10/2025
0

Sagður endurskapa smárafbílinn þar sem ESB íhugar nýjar reglur um smábíla MEUDON, Frakkland — Dacia segir að Hipster hugmyndabíllinn þeirra,...

Næsta grein
Renault Twingo Electric bætist í hóp ódýrra rafbíla

Renault Twingo Electric bætist í hóp ódýrra rafbíla

Segðu okkur hvað þér finnst! Hætta við svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Greinaflokkar

  • Aðsent
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Fréttatilkynning
  • Hugmyndabílar
  • Kynning
  • Mótorsport
  • Ritstjórn
  • Tækni
  • Umferð

Tögg

Cadillac Eldorado e power Hyundia Ioniq 6 klassík lögreglubílar mahindra Rafgmagnsbíll rafhlöður rafmagn Rafmagnsbíll Shanghai sjúkrabílar tata World car of the year

Óháður bílavefur

Bílablogg.is er sjálfstætt starfandi fjölmiðill sem skrifar með þarfir lesenda í huga. Við leggjum metnað okkar í að reynsluaka nýjum bílum og flytja fréttir af því helsta sem er að gerast í bílaheiminum, bæði heima og erlendis.

Greinar

  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð

Reynsluakstur

  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar
  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar

Nýjustu færslurnar

Bílaframleiðsla

Nýr Kia PV5 mun keppa við VW ID Buzz

09/10/2025
Bílasýningar

Nýr og alrafmagnaður Kia EV4 frumsýndur um land allt

09/10/2025
Bílaframleiðsla

Kia Soul hættir framleiðslu eftir árgerð 2025

08/10/2025

2023 © Bílablogg.is • Allur réttur áskilinn • Bílablogg sf • Kt. 5911211460

Welcome Back!

Skráðu þig inn á aðganginn þinn

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband

© 2022 Bílablogg sf. - Allur réttur áskilinn.