Formúla 1: Skemmtilegar staðreyndir og tímamót

136
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR

Það er sannarlega af mörgu að taka eftir daginn en best er að byrja hreinlega á sjálfum úrslitunum:

Lewis Hamilton (Mercedes) vann keppnina sem fram fór í Katar í dag. Þetta er í fyrsta skipti sem keppt er þar og því margt „fyrst“, „best“ og „mest“ á brautinni, sem er auðvitað bara gaman!

Max Verstappen (Red Bull) varð í 2. sæti og Fernando Alonso (Alpine) í því þriðja.

Góður dagur fyrir marga. Hamilton sagðist í betra formi en nokkru sinni. Myndir/Mercedes

Magnað alls konar

  • Þetta er 102. sigur Hamiltons í Formúlu eitt og hefur enginn unnið fleiri keppni en þessi frábæri ökumaður.
  • Alonso er loks aftur á verðlaunapalli eftir sjö ára „bið“.
  • Níuhrundraðasta keppni McLaren-liðsins í Formúlu 1 frá upphafi.
  • Keppnin í dag er sú 1.055. í Formúlu 1.
  • Aldrei nokkurn tíma áður hefur keppni í Formúlu 1 farið fram 21. nóvember
  • Hamilton varð í dag sá fyrsti í sögunni sem unnið hefur á 30 mismunandi brautum í Formúlu 1.
Nokkrar dekkja og pitt staðreyndir dagsins. Mynd/Pirelli

Smá um Losail brautina í Katar

  • Losail International brautin var upphaflega lögð fyrir mótorhjólakeppnir.
  • Rétt rúmt ár tók að búa brautina til.
  • Brautin var fyrst notuð fyrir MOTOGP keppni árið 2004, eða fyrir 17 árum síðan.
  • Katar hefur undirritað tíu ára samning um að keppt verði á brautinni og tekur samkomulagið gildi árið 2023.
  • Nico Hülkenberg og Sergio Perez hafa keppt á þessari braut áður en það var árið 2009 í GP2 Asia Series.

Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.

Svipaðar greinar