Ford vantar merkin sín
Gleymdu örflögum og hálfleiðurum, Ford er að verða uppiskroppa með “Blue Oval” merkin sín
Vandamál að fá nóg af krómuðum hlutum
Ford hefur af illri nauðsyn þurft að fresta afhendingu á sumum nýjum gerðum bíla af sérkennilegri ástæðu: Framleiðandinn er að verða uppiskroppa með merki – já, bláa sporöskjulaga Ford merkið! Merkið sem prýðir farartæki Ford að innan og utan.
Það vantar líka tegundarmerkin á nokkrar einstakar gerðir, samkvæmt frétt í Wall Street Journal. Og þetta vantar Ford sárlega.
Samkvæmt fréttinni eru nýleg birgðakeðjuvandamál Ford að miklu leyti tengd íhlutum sem ekki eru hálfleiðarar, sem þýðir að örgjörvar eru ekki lengur aðalvandamálið.
Stjórnendum Ford var boðið upp á þann möguleika að bæta við framleiðslu merkja (og ef til vill öðrum hlutum, þó það væri ekki tilgreint) með þrívíddarprentuðum merkjum, en áhyggjur af því að uppfylla gæðastaðla hafi að sögn sett tillöguna til hliðar.
Skorturinn kemur harðast niður á pallbílum fyrirtækisins í F-seríunni, sem gæti útskýrt hvers vegna þeir eru aftur að staflast upp á geymslusvæðum eins og við höfum þegar fjallað um hér á vefnum okkar.

Þó að mörg birgðakeðjuvandamál stafi af flutningavandamálum langt að heiman, gæti höfuðverkur Ford verið að minnsta kosti að hluta til um að kenna staðbundnum birgjum.
Tribar, sem framleiðir húðaða utanaðkomandi klæðningarhluta (og, að minnsta kosti áður, hefur framleitt merki fyrir Ford), var nýlega í fréttum fyrir að losa krabbameinsvaldandi króm í Huron River í Michigan.
Króm er notað í húðunarferlinu. Þegar lekans varð vart í skólphreinsistöðvum í nágrenninu neyddist Tribar til að loka frárennsliskerfi sínu. Fyrirtækið fékk leyfi til að hefja aftur losun skólps í september.
(fréttir á Autoblog og Bloomberg)
Umræður um þessa grein