Fimmtudagur, 9. október, 2025 @ 8:37
Bílablogg
Advertisement
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt

Fjórhjóladrifinn, langdrægur, rafmagnsjeppi frá Volvo

Pétur R. Pétursson Höf: Pétur R. Pétursson
04/06/2021
Flokkar: Fréttatilkynning
Lestími: 3 mín.
297 3
0
143
DEILINGAR
1.3k
SMELLIR
Deila á FacebookDeila á Twitter

Fjórhjóladrifinn, langdrægur, rafmagnsjeppi frá Volvo

Brimborg hefur hafið sölu á netinu á Volvo XC40 Recharge, nýjum, sjálfskiptum, fjórhjóladrifnum jeppa sem gengur 100% fyrir hreinu rafmagni.

Volvo XC40 Recharge er yfir 400 hestöfl, aðeins 4,9 sekúndur í 100 km hraða og með drægni á hreinu rafmagni allt að 418 km skv.

WLTP mælingu. Snögg hraðhleðslan kemur 78 kWh tómri drifrafhlöðu í 80% hleðslu eða 334 km drægni á aðeins 40 mínútum.

Volvo rafmagnsjeppinn er einstakur, fjórhjóladrifinn, ferðabíll. Frábær sæti sem fara vel með ökumann og farþega er einkennismerki Volvo ásamt því að farangursrými eru tvö, eitt að aftan og annað að framan.

Að aftan er það 452 lítrar og stækkanlegt í 1.328 lítra og að framan er 31 lítra farangursgeymsla. Veghæð er 17,6 cm undir lægsta punkt og dráttargeta eftirvagns með hemlum er 1.800 kg.

Care By Volvo í fyrsta sinn á Íslandi

Með nýja Volvo rafmagnsjeppanum kynnir Brimborg í fyrsta sinn á Íslandi Care By Volvo sem tryggir áhyggjulaus kaup, notkun og rekstur.

Í Care By Volvo felst að bíllinn kemur á sérhönnuðum heilsársdekkjum fyrir rafbíla og öll þjónusta, viðhald, ábyrgðar- og kaskótrygging með drifrafhlöðutryggingu í 3 ár eða að 100.000 km er innifalið í kaupverði.

Að auki er bíllinn með lengri verksmiðjuábyrgð sem er 5 ár og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu sem tryggir að endursöluvirði Volvo er með því hæsta sem þekkist.

Sé langtímaleiga valin er Care By Volvo einnig innfalið en að auki eru vetrardekk og umfelgun innifalin í leiguverði.

Volvo öryggi aldrei verið meira

Eins og með aðra Volvo bíla er öryggi ökumanns, farþega og annarra vegfarenda í hávegum haft og hafa Volvo bílar aldrei verið öruggari.

Öryggiskerfi eins og ABS hemlakerfi, SIPS hliðarárekstrarvörn, WHIPS bakhnykksvörn, veglínuskynjari, borgaröryggi (City Safety), BLIS myndavél fyrir hliðarumferð, Cross-Traffic öryggiskerfi og Pilot Assist hjálparstýring tryggir fimm stjörnu öryggi í umferðinni.

Framúrskarandi tækni með Android Auto stýrikerfi

Volvo XC40 Recharge er tæknilega framúrskarandi með 12,3“ skjá með einstöku Android Auto stýrikerfi sem m.a. inniheldur Google Assistant, Google Maps og Google Play, Apple Car Play og Android Auto þráðlausa speglun, Volvo appi og sjálfvirka netuppfærslu hugbúnaðar (OTA).

Ríkulegur Nordic staðalbúnaður fyrir kalt loftslag

Volvo XC40 Recharge rafmagnsjeppinn býðst í tveimur útfærslum, Plus og Pro, báðar ríkulega búnar og sérstaklega aðlagaðar að köldu loftslagi.

Þar má finna upphitanlegt leðurstýri, upphitanleg framsæti, varmadælu, forhitara sem er fjarstýrður með appi eða á skjá og jafnvel Volvo merkið í grillinu er upphitað.

Pro útfærslan kemur aukalega með Panorama glerþaki með sóllúgu, Harman Kardon hljómtækjum, rafdrifnum sætastillingum, LED aðalljós með beygjustýringu og 360 gráðu myndavél.

Bein kaup, græn fjármögnun eða langtímaleiga. Uppítaka á eldri bíl

Volvo XC40 Recharge kostar frá 8.090.000 kr. með Care By Volvo í beinum kaupum og býður Brimborg margvíslega kosti í hagstæðri grænni fjármögnun.

Einnig býður Brimborg langtímaleigu í 36 mánuði með mánaðarlegum greiðslum. Í öllum tilvikum býður Brimborg að kaupverð eldri bíls renni upp í kaupverð nýja bílsins eða að það sé greitt út ef um langtímaleigu er að ræða.

Nú til sölu á netinu

Volvo XC40 Recharge rafmagnsjeppinn er nú þegar til sölu á netinu í Vefsýningarsal Brimborgar á www.brimborg.is. Þar er hægt að velja um úrval bíla á leið til landsins í fjölmörgum litum.

Þegar draumabíllinn er fundinn er hægt með einum netsmelli að fá samband við söluráðgjafa, skipuleggja reynsluakstur, ganga frá kaupum eða leigu og uppítöku á eldri bíl.

Fyrri grein

Arftaki Aygo smíðaður í Tékklandi

Næsta grein

Komu Ariya á markað seinkar

Pétur R. Pétursson

Pétur R. Pétursson

Vefstjóri og blaðamaður

Svipaðar greinar

XPENG frumsýnir nýja G6 og G9 á Íslandi.

XPENG frumsýnir nýja G6 og G9 á Íslandi.

Höf: Pétur R. Pétursson
25/09/2025
0

Laugardaginn 27. september kl. 12-16 í sýningarsal XPENG að Vínlandsleið 6-8 Reykjavík, september 2025 – XPENG, eitt hraðast vaxandi rafbílamerki...

Mitsubishi Motors Europe kynnir nýjan 100% rafmagnaðan Eclipse Cross

Mitsubishi Motors Europe kynnir nýjan 100% rafmagnaðan Eclipse Cross

Höf: Jóhannes Reykdal
19/09/2025
0

Mitsubishi Motors Europe frumsýndi í gær, 17. september, nýjan Eclipse Cross, 100% rafmagnsjeppling fyrir Evrópumarkað. Bíllinn er í flokknum C-SUV...

Flaggskipið Ranger Rover SV klætt í svart í tilefni afmælisins

Flaggskipið Ranger Rover SV klætt í svart í tilefni afmælisins

Höf: Pétur R. Pétursson
13/09/2025
0

Land Rover á Íslandi fær innan fárra vikna í sýningarsalinn við Hestháls glæsilega nýja útgáfu af flaggskipi merkisins, sem ber...

Við kynnum nýjan Model Y Performance

Við kynnum nýjan Model Y Performance

Höf: Pétur R. Pétursson
06/09/2025
0

Fyrr á þessu ári setti Tesla á markað mikið endurbætta útgáfu af þessum vinsæla bíl og í dag kynnir Tesla...

Næsta grein
Komu Ariya á markað seinkar

Komu Ariya á markað seinkar

Segðu okkur hvað þér finnst! Hætta við svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Greinaflokkar

  • Aðsent
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Fréttatilkynning
  • Hugmyndabílar
  • Kynning
  • Mótorsport
  • Ritstjórn
  • Tækni
  • Umferð

Tögg

Cadillac Eldorado e power Hyundia Ioniq 6 klassík lögreglubílar mahindra Rafgmagnsbíll rafhlöður rafmagn Rafmagnsbíll Shanghai sjúkrabílar tata World car of the year

Óháður bílavefur

Bílablogg.is er sjálfstætt starfandi fjölmiðill sem skrifar með þarfir lesenda í huga. Við leggjum metnað okkar í að reynsluaka nýjum bílum og flytja fréttir af því helsta sem er að gerast í bílaheiminum, bæði heima og erlendis.

Greinar

  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð

Reynsluakstur

  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar
  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar

Nýjustu færslurnar

Bílaframleiðsla

Kia Soul hættir framleiðslu eftir árgerð 2025

08/10/2025
Bílaheimurinn

Tesla kynnir stóra FSD uppfærslu sem endurspeglar akstursstíl þinn

08/10/2025
Bílaframleiðsla

Hugmyndabíllinn Dacia Hipster

07/10/2025

2023 © Bílablogg.is • Allur réttur áskilinn • Bílablogg sf • Kt. 5911211460

Welcome Back!

Skráðu þig inn á aðganginn þinn

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband

© 2022 Bílablogg sf. - Allur réttur áskilinn.