Fiat stefnir að því að hætta smíði smábíla í Evrópu

137
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR

Fiat stefnir að því að hætta smíði smábíla í Evrópu

Það gæti verið of dýrt að endurnýja Fiat 500 til að uppfylla komandi losunarreglur í Evrópu.

MÍLANÓ – Fiat Chrysler Automobiles stefnir að því að hætta í flokki smábíla Evrópu, þar sem þeir eru leiðandi, og ganga til liðs við aðra bílaframleiðendur við að hætta með sína minnstu bíla vegna aukins þróunarkostnaðar til að gera þá hæfa til að mæta harðari losunarmörkum.

Forstjóri FCA, Mike Manley, sagði að bílaframleiðandinn hyggist reyna að færa viðskiptavini smabíla hjá Fiat yfir í „B“ stærðarflokk bíla.

„Í mjög náinni framtíð muntu sjá okkur einbeita okkur að þessu meira magni, hærri framlegð, og það mun fela í sér að losa okkur við smábílana“, sagði Manley við greiningaraðila um tekjuöflun FCA á þriðja ársfjórðungi þann 31. október.

Manley gaf ekki tímasetninguna á ferðinni.

Fiat 500 og Panda eru að eldast

Hinn gamalgróni Fiat 500 þriggja dyra hlaðbakur og hinn hagnýti Panda hlaðbakur eru ráðandi í smábílaflokki Evrópu en þeir eru að eldast og er þörf á endurnýjun til staðar.

Þriggja dyra 500 er 12 ára. Honum var hleypt af stokkunum í júlí 2007 með stíl innblásnum frá upphaflega Fiat 500 sem hleypt var af stokkunum árið 1957, bíll sem varð að táknmynd smábíla þess tíma. Sala í Evrópu á 500 féll um 9 prósent í 100.150 selda bíla á fyrri hluta ársins.

Þriðja kynslóð Panda fór í sölu í febrúar 2012 og sala hennar jókst 15 prósent 105.534 bíla á fyrri hluta ársins samkvæmt greiningu Automotive News Europe á sölu.

Panda var söluhæsti smábíll Evrópu á fyrri helmingi ársins en það er ekki víst að þessi bíll haldi áfram í núverandi mynd.

Tap í Evrópu

Samkvæmt upplýsingum FCA var tap samsteypunnar 55 milljónir í Evrópu á þriðja ársfjórðungi.

Manley sagði greiningaraðilum að „viðskiptaáskoranir“ Fiat í Evrópu stafi af mjög miklum áhrifum vegna lítils ágóða frá flokki smábíla og gerð bílenna þar sem meðalaldur er „hæstur í greininni.“

Fiat stefnir nú að því að vinna til baka viðskiptavini í smábílahlutanum (subcompact) sem hann fór úr á síðasta ári þegar sölu var hætt á Fiat Punto.

Punto hafði verið söluhæsti bíll Fiat í Evrópu í langan tíma en Sergio Marchionne, fyrrverandi forstjóri FCA, sagði að sala hans væri ekki nógu mikil til að smíða arftaka með hagnaði.

Fiat mun stefna að því að færa dygga viðskiptavini smábíla sinna yfir í millistóra bíla en halda einnig viðskiptavinum sem enn eiga Punto, sagði Manley.

Hluti smábíla er stærsti Evrópa og er „mun hærri hagnaður þar en í A (minicar) hlutanum“, sagði hann.

Manley ræddi ekki hvaða nýjar gerðir Fiat kynnir í millistærðarflokki. Hann tjáði sig heldur ekki um framtíð Panda og 500.

PSA hjálpar

Fyrirhuguð sameining FCA við PSA Group myndi veita Fiat aðgang að sameiginlegum módelpalli PSA sem liggur til grundvallar nýjustu smábílum hópsins eins og Peugeot 208 og Opel Corsa. Þessir bílar eru með rafmagnsútgáfur auk þess að vera með útgáfur með brunahreyfla.

Fiat selur eins og er aðra bíla sem nota 500 nafnið en keppa í smábílum. 500L leiddi „minivan“-hluta Evrópu í fyrri helming ársins með 24.112 bíla sölu. 500X var 10. söluhæsti í litlu jepplingunum / „crossover“-hlutanum.

500L og 500X eru byggðir að hluta á litlum bandarískum palli sem einnig er notaður fyrir Jeep Compass og Renegade. Panda og 500 nota hins vegar grunn frá Fiat.

Felipe Munoz, sérfræðingur hjá JATO Dynamics, sagðist efast um að Fiat muni hætta í flokki smábíla.

Fiat gæti bætt innihald og verðlagningu 500 og Panda „til að láta þá spila í smábílahlutanum,“ sagði hann við Automotive News Europe.

Fiat gæti einnig reynt að endurtaka 500 formúluna með aðeins stærri bíl, sagði hann.

Lancia Ypsilon – seldur sem lítill bíll en byggður á sama smábílapalli og Panda – er dæmi um hvernig þetta gæti virkað, sagði Munoz.

FCA gengur til liðs við aðra bílaframleiðendur sem eru að endurskoða stefnu sína varðandi smábíla til að bregðast við kostnaðarsamri nýrri löggjöf Evrópusambandsins sem fjallar um öryggi og útblástur, einkum útblástur CO2.

Ford og Opel hafa þegar yfirgefið smábílaflokk Evrópu. Ford er að hætta að flytja inn til Evrópu hina indversk smíðuðu Ka+ á meðan Opel hefur fallið frá sínum kóresku smíðuðu gerðum Karl og Adam.

Forráðamenn Volkswagen hafa sagt einslega að bílaframleiðandinn sé að búa sig undir að hætta með útgáfur af smábílnum Up með brunahreyflum, sem myndi nær örugglega þýða að eldsneytisknúinn Seat Mii og Skoda Citigo myndu einnig hverfa.

(Automotive News Europe)

Svipaðar greinar