Þriðjudagur, 17. júní, 2025 @ 17:06
Bílablogg
Advertisement
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt

EV9 stóri rafmagnsjeppinn frá Kia frumsýndur 2023

Jóhannes Reykdal Höf: Jóhannes Reykdal
02/09/2022
Flokkar: Bílaframleiðsla
Lestími: 4 mín.
284 3
0
137
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR
Deila á FacebookDeila á Twitter

EV9 stóri rafmagnsjeppinn frá Kia verður frumsýndur árið 2023

Sjö sæta Kia EV9 verður flaggskip rafmagnsbíla kóreska vörumerkisins

Við höfum áður séð ýmislegt á bílavefsíðum um væntanlegan Kia EV9, en þetta er í fyrsta skipti sem við sjáum opinberar myndir frá Kia af þessum nýja rafmagnsjeppa.

Kóreska fyrirtækið hefur einnig opinberað að EV9 verði frumsýndur í ársbyrjun 2023, en búist er við að hann komi á markað í Evrópu síðar á næsta ári.

Fjölskylduvæna flaggskipið EV9 Sást fyrst í hugmyndaformi á bílasýningunni í LA í fyrra og það lítur út fyrir að flest kassalaga hlutföll hugmyndabílsins verði flutt yfir á fullunna gerð.

Að framan má greinilega sjá einkennandi hönnun Kia, en grillið verður algjörlega lokað fyrir þessa rafbílategund. Það er líka minna grill þar fyrir neðan með þunnum lóðréttum LED framljósalistum til hvorrar hliðar.
Hliðarsniðið sýnir að EV9 er frekar lækkaður frá hugmyndabílnum. Þessar breytingar munu án efa hafa komið til vegna loftaflfræði til að hámarka drægni. Til viðbótar munu breiðir hjólbogar og kantaðir hliðarspglar (ekki afturvísandi myndavélar eins og á hugmyndabílnum) hjálpa EV9 að skera sig úr fjölda annarra stærri sportjeppa. Hurðarhandföngin falla að yfirbyggingunni til að auka loftaflfræðilega skilvirkni EV9.

„Þríhyrningslaga lofthönnun“ 22 tommu hjóla Concept EV9 hefur verið skipt út fyrir minna sett af felgum þegar kemur að framleiðslutilbúnu líkaninu.

Þessar myndir voru teknar á alþjóðlegu Namyang rannsóknar- og þróunarstöð Kia í Kóreu og varpa þær ljósi á nokkrar af þeim prófunum sem EV9 gengst nú undir.

Við höfum ekki séð inn í EV9 ennþá, en búast má við innblæstri frá hugmyndabílnum.

27 tommu breiðskjár væri einn stærsti skjár framleiðslubíls (samt minni en 31 tommu einingin í nýju BMW 7 seríunni) og hann situr hátt uppi á mælaborðinu.

Búast má við tiltölulega naumhyggjulegri hönnun í afturrými bílsins, með fáum „alvöru“ hnöppum.

Breytilegt innanrými

Í Concept EV9 getur farþegarýmið í raun breytt skipulagi sínu eftir því hver af þremur stillingum hans er valin.

Það er „Active Mode“ fyrir hefðbundna ökumannsmiðaða uppsetningu, á meðan „Pause Mode“ snýr fremstu og þriðju sætaröðinni við og breytir annarri röðinni í borð til að líkja eftir „fyrsta flokks setustofu“.

„Enjoy Mode“ lætur allar þrjár sætaraðirnar snúa að afturhleranum, sem opnast til að gefa farþegum „tækifæri til að tengjast ytra umhverfi“.

Þó að líkur séu á að hætt verði við að láta sætin snúast í bílnum, má reikna með að það verði úrval af stillingum til að breyta tilfinningu farþegarýmisins.

Stærri en Kia Sorrento

EV9 er 4.930 mm langur, 2.055 mm á breidd og 1.790 mm á hæð, stærri en Sorento sportjeppinn. Ekki er reiknað er með að EV9 muni víkja of mikið frá hugmyndabílnum.

Það kemur ekki á óvart að hann mun sitja fyrir ofan EV6 í framboði rafknúinna sportjeppa Kia og bjóða upp á þrjár sætaraðir, sem keppir við Mercedes EQB og væntanlega Hyundai Ioniq 7.

Rétt eins og Ioniq 7 sem er væntanlegur árið 2023, mun EV9 byggjast á einingamiðuðum E-GMP grunninum. Þetta þýðir að við gætum séð 77,4kWh rafhlöðu EV6 í EV9.

EV6 er með hámarksdrægni upp á 528 km, svo búast má við aðeins minni drægni í EV9 vegna stærðar og þyngdar ef þessi pakki er fluttur í Kia EV9. Auðvitað gæti Kia stækkað rafhlöðuna fyrir þessa stærri, þyngri og minna loftaflfræðilegu gerð, með stærra hjólhafi sem gefur svigrúm til þess í framtíðinni.

Rétt eins og EV6 ætti EV9 einnig að bjóða upp á tvöfaldan mótor, en 800V rafmagnsskipulag hans mun leyfa ofurhraðan hleðsluhraða eða allt að 350kW.

Concept EV9 er kjarninn í áætlun Kia um að „sjálfbærar hreyfanleikalausnir“.

Það miðar að því að ná kolefnishlutleysi í allri virðiskeðju fyrirtækisins fyrir árið 2045 – með flutningum, framleiðslu ökutækja, notkun þeirra og förgun.

(byggt á grein á vef Auto Express – Myndir: Kia)

Fyrri grein

Þegar sonur forsætisráðherra týndist í kappakstri

Næsta grein

Nýr BMW XM ofurjeppi

Jóhannes Reykdal

Jóhannes Reykdal

Ritstjóri og blaðamaður

Svipaðar greinar

Apple CarPlay fær mikla, notendavænni uppfærslu og með sérstillingum

Apple CarPlay fær mikla, notendavænni uppfærslu og með sérstillingum

Höf: Jóhannes Reykdal
17/06/2025
0

Breytingar verða gerðar sem hluti af iOS 26 hugbúnaðaruppfærslunni fyrir iPhone, sem kemur út í haust Apple CarPlay mun fá...

Toyota segir að nýi Aygo X tvinnbíllinn verði hreinasti bíll Evrópu án tengils

Toyota segir að nýi Aygo X tvinnbíllinn verði hreinasti bíll Evrópu án tengils

Höf: Jóhannes Reykdal
11/06/2025
0

BRUSSEL — Toyota segir að nýi smábíllinn Aygo X, sem er full-tvinnbíll, sé hreinasti bíll Evrópu sem þarf ekki að...

Verksmiðjur í Evrópu loka vegna skorts á sjaldgæfum jarðefnum

Verksmiðjur í Evrópu loka vegna skorts á sjaldgæfum jarðefnum

Höf: Jóhannes Reykdal
08/06/2025
0

Reuters News - BERLÍN — Nokkrum evrópskum varahlutaverksmiðjum og framleiðslulínum hefur verið lokað vegna skorts á sjaldgæfum jarðefnum af völdum...

Flottur Renault 4 minnir margt á gamla kassalaga bílinn

Flottur Renault 4 minnir margt á gamla kassalaga bílinn

Höf: Pétur R. Pétursson
03/06/2025
0

Sala á að hefjast í júlí og viðskiptavinir sem kaupa sérstakan R Pass munu geta lagt inn pöntun einhverjum vikum...

Næsta grein
Svona var Mustang auglýstur árið 1965

Svona var Mustang auglýstur árið 1965

Umræður um þessa grein

Greinaflokkar

  • Aðsent
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Fréttatilkynning
  • Hugmyndabílar
  • Kynning
  • Mótorsport
  • Ritstjórn
  • Tækni
  • Umferð

Tögg

Cadillac Eldorado e power Hyundia Ioniq 6 klassík lögreglubílar mahindra Rafgmagnsbíll rafhlöður rafmagn Rafmagnsbíll Shanghai sjúkrabílar tata World car of the year

Óháður bílavefur

Bílablogg.is er sjálfstætt starfandi fjölmiðill sem skrifar með þarfir lesenda í huga. Við leggjum metnað okkar í að reynsluaka nýjum bílum og flytja fréttir af því helsta sem er að gerast í bílaheiminum, bæði heima og erlendis.

Greinar

  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð

Reynsluakstur

  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar
  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar

Nýjustu færslurnar

Bílaframleiðsla

Apple CarPlay fær mikla, notendavænni uppfærslu og með sérstillingum

17/06/2025
Bílaframleiðsla

Toyota segir að nýi Aygo X tvinnbíllinn verði hreinasti bíll Evrópu án tengils

11/06/2025
Bílaframleiðsla

Verksmiðjur í Evrópu loka vegna skorts á sjaldgæfum jarðefnum

08/06/2025

2023 © Bílablogg.is • Allur réttur áskilinn • Bílablogg sf • Kt. 5911211460

Welcome Back!

Skráðu þig inn á aðganginn þinn

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband

© 2022 Bílablogg sf. - Allur réttur áskilinn.