Þriðjudagur, 20. maí, 2025 @ 11:26
Bílablogg
Advertisement
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt

Einn af 475 eintökum

Pétur R. Pétursson Höf: Pétur R. Pétursson
30/05/2022
Flokkar: Fornbílar
Lestími: 4 mín.
273 12
0
136
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR
Deila á FacebookDeila á Twitter

Einn af 475 eintökum

Alfa Romeo 475 Touring Series 2, 1900C Super Sprints – já, það vantar ekkert upp á að nafnið sé „fancy“ en það verður að segjast að bíllinn er það líka. Hvað sem menn hafa að segja um Alfa Romeo bíla eru þeir umfram allt byggðir í form fegurðar. Þessi bíll er árgerð 1954.

Eintakið sem um er fjallað í dag er búið að vera í eigu sama aðila í 36 ár eða frá því um 1985.

Bíllinn var allur tekinn í gegn seint á níunda áratugnum og lítur út eins og hann sé að renna út af færibandinu í verksmiðjunni.

Á meðan þjóðir Evrópu voru að jafna sig eftir hamfarir seinni heimstyrjaldarinnar uppúr 1945 fóru bílaframleiðendur misfljótt í gang aftur. Það var ekki fyrr en árið 1947 að Alfa Romeo fór í gang með framleiðsluna með Alfa 6C 2500 sportarann sem var hannaður fyrir stríð. Þannig héldu þeir verksmiðjunni gangandi næstu þrjú árin.

Byrja stórt árið 1950

Það var síðan árið 1950 sem Alfa Romeo kynnti sinn fyrsta nýja bíl eftir stríð. Það var Alfa 1900. Þessi bíll var ekki einatt sá fyrsti sem Alfa framleiddi eftir stríð heldur einnig sá fyrsti sem var „unibody“ bíll frá Alfa Romeo í Mílanó. Undir vélarhlífinni var 1,9 lítra fjögurra strokka með tvöföldum kambási og skilaði nokkuð sportlega um 90 hestöflum.

1900 fékk einnig klofspyrnu (wishbone, eða í laginu eins og „óskabein“ úr kjúklingi) og gormafjöðrun að framan, sem virkaði samhliða “lifandi” afturöxli.

Framúrskarandi í kappakstri

Þetta þótti eflaust vel í lagt hjá Alfa Romeo með þennan kagga á þessum uppbyggingar tímum. En hann sór sig í fjölskylduna. Það kom því ekki ekki á óvart að 1900C kom árið eftir og þá með Sprint í gerðarnafninu líka. Bíllinn var að mestu leyti eins og 1900 bíllinn en aðeins styttri. Að sjálfsögðu vel sportlegur bíll. 1900C var með „cabriolet“ hönnun frá Pinnafarina og „coupé“ bíllinn var hannaður af Touring.

Það er mál manna að Sprint 1900C hafi markað tímamót í þessar gerð Alfa bíla og talinn besta afbrigði bílsins og stóð sig vel í kappakstursheiminum.

Með stærri vél upp í 1975cc sem gaf um 115 hestöfl og smíðuð úr áli var afl og þyngdarhlutfall þessa kúpubaks algerlega frábært og því stóð hann sig best á kappakstursbrautinni.

Þessi bíll kom af færibandinu þann 31. mars árið 1954 og afhentur kaupanda að nafni Guiseppo Mattioli. Bíllinn var skráður í Bretlandi þann 12. maí 1960.

Athyglisvert er að sagan sem fannst með þessum 1900 bíl bendir til þess að bíllinn hafi verið notaður í keppnisskyni á sínum tíma á Ítalíu með bílaklúbbnum Roma, áður en hann fer um hendur fimm eiganda í Bretlandi.

Þetta er samskonar gerð bíls sem Alfa hóf aftur framleiðslu á eftir stríð á meðan þeir voru að ná sér á strik eftir stríðið.
Og uppfærður Alfa 6C 2500 frá 1948.
[Birtist fyrst í ágúst 2021]
Fyrri grein

Furðulegt að Trabant kæmist svo hratt

Næsta grein

Fegurstu bílar heims út frá gullinsniði

Pétur R. Pétursson

Pétur R. Pétursson

Vefstjóri og blaðamaður

Svipaðar greinar

Ford Pinto, elskaður og hataður

Ford Pinto, elskaður og hataður

Höf: Pétur R. Pétursson
08/04/2025
0

Ford Pinto var svar Ford Motor Company við vaxandi samkeppni frá japönskum og evrópskum smábílum á sjöunda áratugnum. Pinto var...

1969 BMW 2000CS – klassískur kúpubakur!

Höf: Pétur R. Pétursson
09/03/2025
0

BMW 2000CS er hluti af „Neue Klasse“ línunni frá BMW og var framleiddur frá árinu 1965 til 1969. Þetta var...

1971 Buick Riviera Boat Tail

1971 Buick Riviera Boat Tail

Höf: Pétur R. Pétursson
25/02/2025
0

1971 Buick Riviera Boat Tail er einstök og táknræn bandarísk bílahönnun sem kom fram á sjöunda áratugnum. Bíllinn var framleiddur...

1987 Ford Sierra RS500 Cosworth

1987 Ford Sierra RS500 Cosworth

Höf: Pétur R. Pétursson
01/02/2025
0

150.0000 pund er verðið sem eigandinn vill fá fyrir gripinn 27.000 mílur - aðeins þrír eigendur frá upphafi Númer 39...

Næsta grein
Frænkurnar og bílauppboðið

Frænkurnar og bílauppboðið

Umræður um þessa grein

Greinaflokkar

  • Aðsent
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Fréttatilkynning
  • Hugmyndabílar
  • Kynning
  • Mótorsport
  • Ritstjórn
  • Tækni
  • Umferð

Tögg

Cadillac Eldorado e power Hyundia Ioniq 6 klassík lögreglubílar mahindra Rafgmagnsbíll rafhlöður rafmagn Rafmagnsbíll Shanghai sjúkrabílar tata World car of the year

Óháður bílavefur

Bílablogg.is er sjálfstætt starfandi fjölmiðill sem skrifar með þarfir lesenda í huga. Við leggjum metnað okkar í að reynsluaka nýjum bílum og flytja fréttir af því helsta sem er að gerast í bílaheiminum, bæði heima og erlendis.

Greinar

  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð

Reynsluakstur

  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar
  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar

Nýjustu færslurnar

Álit

BYD Sealion 7 – fágaður lúxus og kraftmikið tæknibúnt

19/05/2025
Bílaheimurinn

Þjónustudagur Toyota

16/05/2025
Bílasýningar

Vígalegur 35″ Defender og fjallahjólhýsi á vorsýningu Land Rover á laugardag

16/05/2025

2023 © Bílablogg.is • Allur réttur áskilinn • Bílablogg sf • Kt. 5911211460

Welcome Back!

Skráðu þig inn á aðganginn þinn

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband

© 2022 Bílablogg sf. - Allur réttur áskilinn.