Fimmtudagur, 9. október, 2025 @ 0:24
Bílablogg
Advertisement
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt

Einn af 2.606 – kominn á Ystafell

Malín Brand Höf: Malín Brand
22/02/2022
Flokkar: Bílasagan
Lestími: 6 mín.
273 12
0
136
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR
Deila á FacebookDeila á Twitter

Fyrir fáeinum mánuðum bættist enn einn kjörgripurinn við fagran bílaflota Samgönguminjasafnsins að Ystafelli. Það er Armstrong Siddeley Hurricane, árgerð 1946 en aðeins 2.606 eintök voru framleidd af þessari snotru gerð.

Það er margt merkilegt við þessa tilteknu tegund, sem og framleiðandann Armstrong Siddeley. Það er best að við hefjum söguna í Englandi en ljúkum henni svo hér á Íslandi. Nánar tiltekið á Ystafelli. Þetta verður stutta útgáfa sögunnar, gangi allt að óskum!

Með gæðastaðla flugvélaframleiðslu að leiðarljósi

Armstrong Siddeley varð til árið 1919, stofnað af þeim  Armstrong Whitworth og  Siddeley-Deasy, og var einkum þekkt fyrir framleiðslu á eðalbílum og flugvélamótorum á upphafsárunum. Árið 1935 sameinaðist framleiðandinn Hawker Aviation og varð mikilvægur hlekkur í hernaðarstússi Breta.

Flugvélatengingin ætti ekki að fara framhjá neinum.

Ættum við flest að kannast við Hawker Hurricane, vélina sem… já, það er víst rétt að sýna sjálfstjórn og birta bara mynd og hér er hlekkur á frekari umfjöllun um þá merku vél.

Hawker Hurricane frá The Battle of Britain.

Það er nefnilega þannig að undirrituð er forfallinn skýjaglópur og flugáhugamanneskja ofan á allt bílastússið. Þess vegna hætti ég strax að fjalla um Hawker Hurricane áður en þetta breytist í „flugvélablogg“.

Nema hvað! Fyrir vikið rauk framleiðsla í gang um leið og heimsstyrjöldinni síðari lauk og fyrsti „eftirstríðs-bíllinn“ var tilbúinn þann 8. maí 1945. Armstrong Siddeley var á meðal fyrstu bresku framleiðendanna til að „setja allt á fullt“ að stríði loknu.

Og bíllinn fékk nafn við hæfi: Armstrong Siddeley Hurricane.

Þeir voru smíðaðir eftir svipuðum gæðastöðlum og flugvélarnar sem frá framleiðandanum komu.

Hafa margir látið í veðri vaka að gæðastaðallinn hafi verið of hár í samanburði við fjöldaframleiddar gerðir á markaði þess tíma. Enda reyndist framleiðslan of dýr og bílaframleiðslu í nafni Armstrong var hætt með öllu 1960

Til Íslands

Armstrong Siddeley Hurricane voru framleiddir til ársins 1954 og voru víst flestir seldir úr landi.

Sá bíll sem hér er til umfjöllunar var einmitt einn af þeim sem yfirgaf framleiðslulandið þegar í stað og kom þetta tiltekna eintak því alveg nýtt hingað til lands.

Vitna ég hér beint í orð vinar míns Sverris Ingólfssonar á Ystafelli en hann skrifaði eftirfarandi fyrir fáeinum dögum á Facebooksíðu Samgönguminjasafnsins:

„Safnið eignaðist merkilegan bíl á síðasta ári, en það er þessi Armstrong. Þessi bíll kom nýr til landsins og var þá með blæju, fljótlega smíðaði Kjartan Zophoníasson þennan tré topp á hann. Guðmundur Marísson eignaðist bílinn 1963 og átti til febrúar 2021, þegar Guðmundur lést.“

Heldur Sverrir áfram:

„ Það er svolítið sérstakt að skoða hvaða efni voru notuð þegar þessi bíll var smíðaður, það er tré grind í yfirbyggingunni, svo er járn og ál notað til skiptis og svo klætt að utan með áli, þetta sést vel ef myndin innan úr skottlokinu er skoðuð.“

„Armstrong notaði „self changing gearbox“ í þessa bíla, þetta er 4ra gíra næstum því sjálfskifting, 4 stjörnugírar stjórnað með takka við hliðina á stýrinu. Það voru bara framleiddir 2606 svona bílar,“ skrifaði Sverrir Ingólfsson á Ystafelli um þennan merka bíl.

Við þetta má bæta að árið 1928 hóf Siddeley samstarf við Walter Gordon Wilson en það var nú maðurinn sem fann upp skiptinguna sem Sverrir minntist á í færslunni. Skiptingin (eða gírkassinn) var markaðssett með slagorðinu „Cars for the daughters of gentlemen“. Svo fínn var hann að bíllinn var við hæfi dætra herramanna.

Sómabíll fyrir sómastúlkur sómamanna.

Bíllinn þóti svo fínn að sómastúlkur gátu vel látið sjá sig í honum.

Sverrir ætlar aðeins að snyrta bílinn til en hefur hugsað sér að varðveita Armstong Siddeley Hurricane í því ástandi sem hann er.

Saga framleiðandans Armstrong Siddeley og fínar myndir má sjá á vef Coventry Telegraph. Meira um nákvæmlega þessa gerð má lesa hér .

Og svo rakst ég á vel unnið myndband af bíl Ola nokkurs Malm. Bíllinn er af sömu árgerð og bíllinn á Ystafelli en ekki veit ég af hvaða árgerð Ola Malm er. Hann gæti vel verið árgerð 1946 líka en látum það liggja á milli hluta og hér er myndbandið:

Ljósmyndin efst er frá Sigurði Harðarsyni og er hún tekin þann 17. júní 1977. Aðrar myndir fylgdu Facebookfærslu safnsins og var gefið grænt ljós á birtingu þeirra hér á Bílabloggi. Fleiri myndir er að finna hér á Facebook-síðu safnsins og endilega látið ykkur líka við þá fínu síðu.

Fleiri greinar sem tengjast hinu magnaða safni:

DeLorean kominn á Ystafell!

Samgönguminjasafnið á Ystafelli

Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.

Fyrri grein

Top Gear-Ollie segir ID Buzz svaðalega spennandi

Næsta grein

Ljótur leikur á vindubrú

Malín Brand

Malín Brand

Akstursíþrótta- og blaðamaður

Svipaðar greinar

Flaggskipið Ranger Rover SV klætt í svart í tilefni afmælisins

Flaggskipið Ranger Rover SV klætt í svart í tilefni afmælisins

Höf: Pétur R. Pétursson
13/09/2025
0

Land Rover á Íslandi fær innan fárra vikna í sýningarsalinn við Hestháls glæsilega nýja útgáfu af flaggskipi merkisins, sem ber...

Bíll byggður á Hyundai Concept Three kemur á markað árið 2026

Bíll byggður á Hyundai Concept Three kemur á markað árið 2026

Höf: Jóhannes Reykdal
11/09/2025
0

Hyundai stefnir að markaði lítilla rafbíla í Evrópu með rafknúnum hlaðbak með Ioniq-merkinu MÜNCHEN — Hyundai stefnir að því að...

Algjör veisla fyrir rúntara

Höf: Pétur R. Pétursson
12/07/2025
0

Við tókum Guðfinn Eiríksson, stjórnarmann í Bílaklúbbnum Krúser, tali eftir þáttöku hans á Västerås Summermeet sem fram fór fyrir skömmu...

Af hverju er merkið á Audi fjórir hringir?

Af hverju er merkið á Audi fjórir hringir?

Höf: Jóhannes Reykdal
23/06/2025
0

Audi var stofnað árið 1909 en fékk ekki fjóra hringi fyrr en árið 1932. Við skoðum söguna… Ef einhver segði...

Næsta grein
Nancy gerir allt vitlaust meðan „allt reddast“ annars staðar

Nancy gerir allt vitlaust meðan „allt reddast“ annars staðar

Segðu okkur hvað þér finnst! Hætta við svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Greinaflokkar

  • Aðsent
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Fréttatilkynning
  • Hugmyndabílar
  • Kynning
  • Mótorsport
  • Ritstjórn
  • Tækni
  • Umferð

Tögg

Cadillac Eldorado e power Hyundia Ioniq 6 klassík lögreglubílar mahindra Rafgmagnsbíll rafhlöður rafmagn Rafmagnsbíll Shanghai sjúkrabílar tata World car of the year

Óháður bílavefur

Bílablogg.is er sjálfstætt starfandi fjölmiðill sem skrifar með þarfir lesenda í huga. Við leggjum metnað okkar í að reynsluaka nýjum bílum og flytja fréttir af því helsta sem er að gerast í bílaheiminum, bæði heima og erlendis.

Greinar

  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð

Reynsluakstur

  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar
  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar

Nýjustu færslurnar

Bílaframleiðsla

Kia Soul hættir framleiðslu eftir árgerð 2025

08/10/2025
Bílaheimurinn

Tesla kynnir stóra FSD uppfærslu sem endurspeglar akstursstíl þinn

08/10/2025
Bílaframleiðsla

Hugmyndabíllinn Dacia Hipster

07/10/2025

2023 © Bílablogg.is • Allur réttur áskilinn • Bílablogg sf • Kt. 5911211460

Welcome Back!

Skráðu þig inn á aðganginn þinn

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband

© 2022 Bílablogg sf. - Allur réttur áskilinn.