Miðvikudagur, 18. júní, 2025 @ 18:04
Bílablogg
Advertisement
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt
Bílablogg
Ekkert fannst
Skoða allt

Dakar: Leið dagsins og nokkrar staðreyndir

Malín Brand Höf: Malín Brand
04/01/2022
Flokkar: Mótorsport
Lestími: 4 mín.
264 20
0
136
DEILINGAR
1.2k
SMELLIR
Deila á FacebookDeila á Twitter

Heildarvegalengdin sem hver og einn ökumaður leggur (vonandi) að baki í dag er í kílómetrum talin 636 og þar af er sérleiðin 255 kílómetrar. Þetta er vonandi ágætur undirbúningur fyrir morgundaginn en hann verður sko strembinn. Eknir verða alls 707 kílómetrar en sérleiðin er 465 kílómetra löng. Sú lengsta í öllu rallinu.

Í heildina verða í rallinu eknir 8.375 kílómetrar og sérleiðir sem keppt er á eru samtals 4.258 kílómetrar af heildinni.

Þetta á við um alla flokka aðra en fornbílaflokkinn (Classic). Þar er heildarvegalengdin 6.133 kílómetrar og sérleiðirnar þar af 2.612 kílómetrar.

Hér má sjá bíla sem keppt er á í fornbílaflokki. Mynd/@Fotop

Í dag skipta dekkin mestu máli

Ekið er fra Al Artawiyah til Al Qaisumah og rétt eins og annars staðar í eyðimörkinni mega menn búast við góðum skammti af sandi. Ef þetta væri myndskeið en ekki grein myndi óma hér undir íslenska útgáfa lagsins „Return to Sender“ sem í flutningi Hauka (hljómsveitarinnar) árið 1975 nefndist „Þrjú tonn af sandi“.

Það er eitthvað af sandi í eyðimörkinni. Mynd@A.S.O./F.Gooden/DPPI

Segir í upplýsingum keppnishaldara um leiðina að fyrsti hluti hennar sé nokkuð strembinn. Annar hluti virðist auðveldari, tæknilega séð, en í raun og veru skarist þarna nokkrar leiðir (kann illa við að nota orðið „gatnamót“ um eitthvað í eyðimerkurlandslagi) og því töluverð hætta á að keppendur villist, þurfi að snúa við og tapi dýrmætum sekúndum meðan þeir reyna að ná áttum.

Hér segja þeir skipta öllu máli að velja réttu dekkin til að ljúka leiðinni án andstyggilegra uppákoma.

Skemmtileg tölfræði

Tölfræði getur verið ákaflega skemmtileg, einkum og sér í lagi þegar aðrir hafa séð um útreikningana. Hér eru nokkrar skemmtilegar staðreyndir með tölustöfum og bókstöfum:

Allt í allt taka 1.065 ökumenn þátt í Dakar 2022. 750 ökumenn og aðstoðarökumenn keppa í Dakar rallinu og 315 í fornbílaflokki en sá flokkur lýtur öðrum lögmálum, eðli máls samkvæmt.

Skiptist þetta svona* eftir reynslu þátttakenda (athugið að fornbílaflokkurinn er ekki talinn með):

Nýliðar: um 50%  

Sprellifandi hetjur eða kempur í sportinu sem allir eiga að þekkja (Carlos Sainz o.fl.): 35%

Keppendur frá Motul: 15%

*þetta er ekki hárnákvæmt en ég þurfti að reikna smá og er af málabraut.

Fólk frá 63 löndum er þarna samankomið og teljast þá með allir sem tengjast liðunum sem keppa.

Af þeim 60 konum sem taka þátt í ár keppa 34 þeirra í fornbílaflokki.

Fimm áhafnir eru kvenáhafnir.

Mynd@A.S.O./F.Gooden/DPPI

En af ökutækjum er það að segja að alls eru þau 578 talsins: 149 mótorhjól, 21 fjórhjól, 97 bílar, 58 trukkar, 44 ökutæki keppa í T3 og 61 í T4 (flokkar skilgreindir annars staðar). Fornbílarnir eru 128 og forntrukkarnir 20.

Aðeins meira af þessari ágætu tölfræði

Frakkar eru fjölmennastir þjóða í keppninni en alls eru þeir 196, 81 Spánverji keppir og 67 Hollendingar. Annars koma þátttakendur, sem fyrr segir, frá 63 löndum (eða þjóðarbrotum – of flókið til að fjalla um í þessu samhengi).

Mynd@A.S.O./F.Gooden/DPPI

Ekki veit ég hvernig svona lagað er talið en keppnishaldarar segja að 4.3 milljónir manna um heim allan fylgist með Dakar rallinu og 70 sjónvarpsstöðvar í 190 löndum sýna rallið í imbakössum heimsins. Ótrúlegt en satt, þá er engin norræn stöð á listanum. Það er fúlt.

Hvað um það! Við fylgjumst með hvernig þetta fer í dag og meira um það eftir nokkur tonn af sandi.

Fyrri grein

Þetta fannst lesendum áhugaverðast 2021

Næsta grein

Flytjum 88 bíla úr landi í hverjum mánuði

Malín Brand

Malín Brand

Akstursíþrótta- og blaðamaður

Svipaðar greinar

Ítalskur íhlutaframleiðandi bjargar Recaro Automotive

Ítalskur íhlutaframleiðandi bjargar Recaro Automotive

Höf: Jóhannes Reykdal
08/12/2024
0

Þýski bílstólaframleiðandinn fær fjárfestingu frá Proma Group, sem gerir framleiðslu kleift að hefjast að nýju Ítalski bílavarahlutaframleiðandinn Proma Group hefur...

Átján ára stúlka vann Porsche meistaratitil

Átján ára stúlka vann Porsche meistaratitil

Höf: Pétur R. Pétursson
23/09/2024
0

Isabell Rustad hefur átt nánast fullkomið tímabil í Porsche Sprint Challenge Scandinavia. Um helgina á lokakeppninni á Mantorp Park fékk...

Ford Mustang GTD verður frumsýndur í Evrópu á 24 stunda Le Mans

Ford Mustang GTD verður frumsýndur í Evrópu á 24 stunda Le Mans

Höf: Jóhannes Reykdal
27/05/2024
0

Ford hefur verið að undirbúa nýja Mustang GTD til að gera hann að fullkomnum bíl til að bera „hestanafnið“. Áætlað...

Audi Q8 e-tron breytt í öflugan rafdrifinn torfærubíl með nýrri Dakar útgáfu

Audi Q8 e-tron breytt í öflugan rafdrifinn torfærubíl með nýrri Dakar útgáfu

Höf: Jóhannes Reykdal
06/01/2024
0

Audi tók Q8 e-tron og breytti honum í alrafmagnaðan torfærubíl. Audi Q8 e-tron Dakar- útgáfan er sérgerð fyrir ævintýramenn sem...

Næsta grein
Flytjum 88 bíla úr landi í hverjum mánuði

Flytjum 88 bíla úr landi í hverjum mánuði

Umræður um þessa grein

Greinaflokkar

  • Aðsent
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Fréttatilkynning
  • Hugmyndabílar
  • Kynning
  • Mótorsport
  • Ritstjórn
  • Tækni
  • Umferð

Tögg

Cadillac Eldorado e power Hyundia Ioniq 6 klassík lögreglubílar mahindra Rafgmagnsbíll rafhlöður rafmagn Rafmagnsbíll Shanghai sjúkrabílar tata World car of the year

Óháður bílavefur

Bílablogg.is er sjálfstætt starfandi fjölmiðill sem skrifar með þarfir lesenda í huga. Við leggjum metnað okkar í að reynsluaka nýjum bílum og flytja fréttir af því helsta sem er að gerast í bílaheiminum, bæði heima og erlendis.

Greinar

  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð
  • Bílaframleiðsla
  • Bílaheimurinn
  • Bílasagan
  • Bílasýningar
  • Fornbílar
  • Hugmyndabílar
  • Mótorsport
  • Tækni
  • Umferð

Reynsluakstur

  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar
  • Atvinnubílar
  • Fólksbíll
  • Jeppi
  • Skutbíll
  • Sportjeppar

Nýjustu færslurnar

Bílaframleiðsla

Apple CarPlay fær mikla, notendavænni uppfærslu og með sérstillingum

17/06/2025
Bílaframleiðsla

Toyota segir að nýi Aygo X tvinnbíllinn verði hreinasti bíll Evrópu án tengils

11/06/2025
Bílaframleiðsla

Verksmiðjur í Evrópu loka vegna skorts á sjaldgæfum jarðefnum

08/06/2025

2023 © Bílablogg.is • Allur réttur áskilinn • Bílablogg sf • Kt. 5911211460

Welcome Back!

Skráðu þig inn á aðganginn þinn

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Ekkert fannst
Skoða allt
  • Heim
  • Greinar
    • Bílaframleiðsla
    • Bílaheimurinn
    • Bílasagan
    • Bílasýningar
    • Fornbílar
    • Fréttatilkynning
    • Hugmyndabílar
    • Mótorsport
    • Tækni
    • Umferð
  • Okkar álit
    • Atvinnubílar
    • Fólksbíll
    • Jeppi
    • Skutbíll
    • Sportjeppar
  • Myndbönd
  • Um okkur
  • Samband

© 2022 Bílablogg sf. - Allur réttur áskilinn.