Camaro 1968 í happdrætti SÍBS
„Ertu ekki að grínast?”, gæti alveg verið fyrsta setningin hjá sumum sem byrja að lesa núna.
Já, hann var happdrættisvinningur hjá happdrætti SÍBS árið 1968. Camaroinn var uppbótarvinningur á happdrættisárinu og var kallaður vandaður sportbíll hjá SÍBS.
.jpg)
.jpg)

Átti að keppa við Mustang
Áður en Camaro fór í framleiðslu um miðjan sjöunda áratuginn hafði Ford Mustang yfirburðastöðu á ameríska sportbílamarkaðinum. Sem einn helsti keppinautur Ford, vissu GM menn að Chevy Corvair bíllinn þeirra myndi ekki seljast nógu vel til að eiga roð í Mustanginn.
Fjölmiðlar höfðu tekið fram að Corvair ætti við nokkur öryggisvandamál að etja og hönnun afturhluta bílsins gerði hann óaðlaðandi fyrir marga kaupendur en vélin var aftur í Corvair.
Þessi vandamál urðu til þess að Chevrolet leitaði að öðrum valkostum.
.jpg)
Til að keppa við Ford Mustang hannaði Chevrolet sportbíl með vél fram í og afturdrifi, rétt eins og hönnun svipaðra amerískra sportbíla á markaðnum.
Þegar bíllinn fór í þróun komu varaforseti General Motors, Ed Rollet, og vörustjóri Chevrolet, Bob Lund, með hugmyndina að nafni Camaro eftir að hafa lesið orðið „camaro“ í fransk-enskri orðabók. Og eigum við ekki að trúa því bara?
.jpg)
.jpg)
.jpg)
Furðulegir kanar
Þetta franska slangurorð vísaði til félaga, vinar eða kunningja. Þótt það væri ekki opinbert franskt orð, fíluðu greinilega Lund og Rollet það og sáu það sem hið fullkomna nafn fyrir bíl sem þeir vildu að eigandinn liti á sem vin.
.jpg)
.jpg)
.jpg)
Með hönnunina og nafnið neglt niður, frumsýndi Chevrolet bílinn haustið 1966 og bauð kaupendum hann sem 1967 árgerð.
Camaro heldur áfram að þjóna tilgangi sínum og keppir enn við Mustang.
Árgerð 1968
Reyndar eru myndirnar af bílnum í þessari grein af Resto Mod bíl frá árinu 1968 sem hefur verið gerður ansi vel upp.
.jpg)
.jpg)
.jpg)
Það eru þó nokkrir Camaro á svipuðum aldri hér á landi – allavega tveir ansi flottir árgerð 1968 og svo nokkrir líka ansi skemmtilegir frá áttunda áratugnum.
Umræddur bíll sem er til sölu hja RK Motors í USA kostar um 116 þús. dollara. Hann er búinn 6.2 lítra Mast Motorsports LS3 V8 mótor sem skilar rétt um 700 hestöflum.
Vélin í honum er tjúnnuð fyrir E85 bensín en það er með hærri oktein gildi. Tremec 5-gíra beinskipting með vökvakúplingu. 12 bolta afturöxull. AGR power stýri.
Baer 4-wheel power diskabremsur. Endurbætt framjöðrun. Fjögurra arma afturfjöðrun með stillanlegum dempurum.
.jpg)
.jpg)
Orginal blátt vinyl á sætum. Nýtísku hljómtæki. Bíllinn er málaður með LeMans blárri og hvítum Super Sport strípum.
Hann er á 19 og 20 tommu (framan og aftan) Intro Retro felgum. Extra stór útblástursrör og Magna Flow hljóðkútar.
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
Umræður um þessa grein